Jæja!
Á morgunn fljúgum við skötuhjúin til Ameríku. Fyrirhuguð helgargisting í Minneapolis og síðan kemur Óttar bróðir að sækja okkur á þriðjudaginn. Síðan verðum við 16 daga hjá honum í Iowa. Verður bara gaman.
Ætlum að kaupa okkur fullt af dóti og slatta af drasli.
Boltinn
Mínir menn höfðu það af að klára eina dollu í vetur. Millwall var auðveld bráð fyrir Ronaldo og félaga sem hreinlega yfirspiluðu fyrstu deildarliðið enda ekki við öðru að búast. Ronaldo var alveg hrikalega góður í þessum leik og algjört hneyksli að hann skyldi ekki vera valinn maður leiksins. Kvíði ekki framtíðinni með þennan mann á kantinum eða hreinlega bara í liðinu. Auk þess fannst mér Fletcher vera mjög góður inni á miðjunni og greinilegt að þar fer mikið efni. Frammistaða hans hefði líklega nægt til að verða maður leiksins í flestum öðrum bikarúrslitaleikjum en Ronaldo átti bara stórleik.
Mínir menn í Víkingi hafa hins vegar byrjað heldur illa á Íslandsmótinu og tapað fyrstu tveimur leikjunum. Stefni á að fara á leikinn í kvöld og styðja mína menn í botnbaráttuslag gegn KR. Ætli það komi ekki í hlut þessara liða að berjast gegn falli í sumar ásamt Fram, Grindavík og KA?
Áfram Víkingur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli