3. maí 2004

Eiríkur Gestsson...
...er jafngamall mér (í heilum árum talið) fjóra daga á ári. Í dag (2. maí) stakk hann mig aftur af og er orðinn 27. Til hamingju með það gamli. Þú varst heppinn að það var bolti í millitíðinni svo þú gast látið ljós þitt skína. Næsta laugardag verður gamlinginn aftur farinn að segja til sín og ég salta þig eins og venjulega.

Boltinn
Helginn var meira en lítið tíðindasöm í boltanum. Mínir menn misstu endanlega af öðru sætinu eftir tap gegn Blackburn en baráttan um fjórða sætið er orðinn gífurlega spennandi eftir að Aston Villa vann Tottenham í dag. Liverpool er reyndar í fjórða sætinu eftir ágætan sigur gegn Middlesbrough en Villamenn eru bara einu stigi á eftir þeim og Newcastle sem á leik til góða er síðan tveimur stigum á eftir Villa.
Á botninum skýrðust líka málin en nú getur aðeins kraftaverk bjargað Leeds og Úlfunum frá falli enda þurfa þau að vinna síðustu tvo leikina með miklum mun og Manchester City þyrfi helst að tapa með miklum mun líka. Mjög ólíklegt að þetta gerist þannig að ég held að það sé tiltölulega öruggt að veðja á að Úlfarnir og Leeds falli.

Á öðrum vígstöðvum tókst mínum mönnum í AC Milan að tryggja sér sigurinn í Serie A með sigri á höfuðandstæðingum sínum í Roma. Það var við hæfi að snillingurinn Shevschenko tryggði Mílíngum sigurinn enda aðalsnillingurinn í liðinu. Á Spáni tókst Börsungum (sem eru líka mínir menn) að minnka forystu Real í baráttunni um annað sætið í eitt stig með glæsilegum sigri á grönnunum í Espanyol. Valencia er hins vegar komið með aðra höndina á bikarinn eftir sigur í dag og hafa þeir nú 4 stiga forystu á Real og fimm á Barca þegar þrjár umferðir eru eftir. Þeim nægir einn sigur og eitt jafntefli þar sem þeir eru með miklu betri markatölu en bæði Real og Barca.

Hér heima töpuðu KA-menn fyrir Haukum í handboltanum þannig að maður neyðist víst til að halda með Valsmönnum í úrslitunum. Ég var feginn að ÍR vann ekki Valsmennina því ég hef enga trú á að þeir geti tekið Haukana. Valsmenn verða bara að vinna þetta núna.

Engin ummæli: