4. maí 2004

Glöggir lesendur...
...munu taka eftir því að ég hef uppfært hlekkjalistann hér til hliðar. Einhverjir hafa misst hlekkina sína en þrír nýjir hafa bæst í hópinn.
Arnór Hauksson sem er gamall félagi úr MR og skrifar stundum skemmtilega hluti, sérstaklega er gaman að umfjöllun hans um NBA og útivist.
Tómas Hafliðason er annar gamall félagi og höfum við oft rætt kröftuglega um áherslur í hægristefnunni. Skemmst er að minnast eins skemmtilegasta símtals sem ég hef fengið en það var þegar Tommi hringdi til að ræða við mig skrif mín um kosningu til stjórnar Heimdallar sl. haust. Úr því varð heljarinnar rimma en einhvern veginn tekst okkur Tomma alltaf að skilja í góðu. Leiðinlegt hvað við höfum lítið samband en ég bæti það upp með því að kíkja reglulega á síðuna hans - nú getið þið það líka.
Stefán Pálsson er gamall jaxl sem ég kynntist þegar ég var liðsstjóri spurningaliðsins í MR en hann var þá einn þjálfaranna. Stefán er drengur góður, skarpgáfaður, flugmælskur og skemmtilegur penni. Það versta við hann er hvað hann er mikill "kommi". Ekki svo að skilja að ég láti komma fara í taugarnar á mér því þvert á móti finnst mér þeir yfirleitt miklu skemmtilegri til pólítískrar umræðu en stuttbuxnadrengirnir í SUS (ekki sárir strákar). Það vill nú reyndar þannig til að margir ágætir kunningjar mínir eru framakólfar í SUS en ég passa mig nú yfirleitt á að tala ekki við þá um pólítík. Þeir eru svo gegnsósa af heilaþvottinum að maður verður bara blautur af því að grauta í hausnum á þeim. Stefán skrifar stundum skemmtilegar færslur og hann er einn af þeim sem ég les staf fyrir staf því gullkornin leynast víða.

Magnús Gísli missti hlekkinn sinn enda hefur hann lýst yfir krónísku bloggfalli.
Gunni Thor er enn á listanum fyrir náð og miskunn Geislans en hlekkurinn hans verður brotinn í næstu hreingerningu ef hann tekur sig ekki taki.

Aðrir eru tiltölulega öruggir með sinn hlekk og geta andað léttar.
Að lokum ákvað ég að hætta með langsóttu viðurnefnin mín og nefna fólk sínum réttu nöfnum/viðurnefnum til að auðvelda lesendum mínum frekari útreiðar á brimi netsins. Nú eru hlekkirnir líka í stafrófsröð.

Engin ummæli: