Pyntingarnar í Írak
Ég hef eins og aðrir fyllst viðbjóði að fylgjast með þeim fréttum sem borist hafa af pyntingum Bandaríkjamanna og Breta í Írak. Slíkt á ekki að viðgangast og þeir sem bera ábyrgð á slíku eiga að svara fyrir gerðir sínar. Jafnt sá sem fyrirskipar slíkt og sá sem framkvæmir.
Það er hins vegar eitt í umræðunni sem truflar mig og það heyrði ég fyrst frá einhverri konu frá Amnesty International á Íslandi. Hún kvartaði undan því að það giltu ekki sömu reglur um þá sem lögreglan í Írak handtekur og þá sem hernámsliðið handtekur. Mér finnst hins vegar ástæðan vera augljós. Lögreglan er að handtaka menn fyrir glæpi sem ekki endilega tengjast hernáminu en hernámsliðið er að handtaka andstæðinga sína í stríðinu. Þeir eru því stríðsfangar og eins og allir vita þarf ekki að nauðsynlega að rétta yfir þeim. Ef ég man rétt er andstæðum fylkingum leyfilegt að hafa stríðsfanga í haldi þar til skrifað hefur verið undir vopnahlé. Annað væri fáránlegt enda mundu fangarnir líklega hlaupa beint aftur til sinna manna og hefja bardaga aftur. Ekki mundi það stytta stríðið.
Ég held því að við verðum að gera skýran greinarmun á því hvort um er að ræða stríðsfanga eða hegningarbrotafanga. Að því sögðu vil ég ítreka að ég er algjörlega mótfallinn öllum pyntingum á stríðsföngum og reyndar bara pyntingum yfir höfuð. Ég legg því til að Mósaík verði tekinn af dagskrá RÚV hið fyrsta áður en ég dey úr leiðindum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli