Fyndið
Jæja, ákvað að taka mér smá pásu til að blogga pínu. Renndi yfir skyldubloggin í favorites en þar er meðal annars Haukur Þór Hauksson sem er einn af snillingunum úr Garðabæ og mikill SUSari. Haukur er nú með greindari mönnum en í dag virðist hann vera eitthvað ruglaður í ríminu því hann kemur með eina sósíalískustu færslu sem nokkurn tíma hefur birst á bloggsíðunni hans. Hann stendur í þeirri meiningu að þeir sem ekki taki þátt í pólítík ættu ekki að vera að gaspra eitthvað um það í fjölmiðlum eða bloggum hvað þeim finnst um framferði þeirra sem kosið hafa að taka þátt í slíkri baráttu. Fáránlegt, pólítík snýst einmitt um það að þeir sem taka þátt í henni hagi sér þannig að þeir séu kosnir og hinir sem tapa reyna á einhvern hátt að vekja athygli á sínum málstað, stundum með rökum en alltof oft með skítkasti og látum.
Ég held nú að Haukur hafi ekki lesið færsluna sína yfir áður en hann birti hana. Sennilega hefur hann verið reiður yfir einhverri færslu á einhverri bloggsíðu (kannski minni - hver veit) og gleymt að jafna sig aðeins áður en hann skrifaði. Haukur verður hins vegar að muna að hann hefur valið sér að taka þátt í pólítísku starfi og hefur þar með gengist undir það hlutverk að sæta gagnrýni fyrir hugmyndir sínar og gjörðir í því starfi. Hann getur ekki ætlast til að þeir sem ekki voru kosnir eða jafnvel þeir sem ekki voru í framboði hafi ekki skoðanir á þeim hlutum eða gjörðum sem hann stendur fyrir. Þó maður sé kosinn þýðir það ekki að maður sé yfir alla gagnrýni hafin.
Kannski er ástæðan fyrir því að fólkið sem gagnrýnir og fer í taugarnar á Hauki er ekki í eldlínunni sú að það hefur eitthvað að gera sem því finnst merkilegra. Ef allir stæðu í eldlínunni væri ekki til mikils að kalla það eldlínu. Það hefur því kosið að fela öðrum trúnaðarstörfin og oft á tíðum er það einhver sem því finnst standa fyrir svipaðar skoðanir og það hefur sjálft. Kjósandinn hefur að sjálfsögðu rétt til að gagnrýna opinberlega og/eða óopinberlega gjörðir hins kosna ef því finnst hann hafa brugðist í starfi sínu. Það heitir lýðræði Haukur og við stöndum vörð um það með litlum réttindum sem kallast tjáningarfrelsi og skoðanafrelsi. Ef þér líkar það ekki þá ættir þú kannski ekki að taka þátt í lýðræðislegum kosningum.
Ég get reyndar skilið að SUSarar ruglist aðeins í ríminu því þar hefur lengi tíðkast að hafa aðalfundina á haustin eins og réttirnar í sveitinni. Þá er grunlausum kjósendum (lesist vinum þeirra sem eru í framboði) smalað eins og heimskum rollum í "réttir" (kallað aðalfundir) sem oft eru haldnar í sveitinni. Þar eru rolurnar (ath. ekki rollurnar) dregnar í dilka og sagt hvernig á að haga sér, hvern á að kjósa og hvenær. Síðan eru allir fylltir ærlega kvöldið fyrir kosninguna þannig að þeir séu svo þunnir á kosningadaginn sjálfan að þeir hafi hvorki þrek né vilja til að hlusta á framboðsræður vina sinna og kjósa því bara eins og þeim er sagt. Aðalfundir SUS (og reyndar Heimdallar) eru því alls ekki ósvipaðir réttum, sá vinnur sem er duglegastur að smala rolum í sinn dilk.
Verst er nú samt það að réttir SUSara eru ekki fyrir alla - bara vini þeirra sem þegar eiga rolur í réttinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli