Próf í dag
Var að koma úr vitjun í lyflæknisfræði. Þetta er próf sem felst í því að taka á móti sjúklingi, taka sjúkrasögu, framkvæma líkamsskoðun og koma því síðan frá sér á skýran og skilmerkilegan hátt til prófara og prófdómara sem eru viðstaddir alla seremóníuna. Síðan spyrja þeir mann út úr um mögulegar rannsóknir, niðurstöður þeirra og túlkun. Raunar sérlega skemmtilegt en mjög stressandi - sérstaklega þar sem miklu getur ráðið um úrslit hjá hverjum maður lendir. Í stuttu máli þá gekk mér ekki nógu vel. Stressið gerði mér enn einu sinni óleik en ég fékk þó sæmilega einkunn því ég gat reddað málunum í lokin. Það er alla vega búið og einu prófinu færra að hafa áhyggjur af.
Fjölmiðlafrumvarpið
Nú er ég tiltölulega hægrisinnaður bolti með mikla sannfæringu um ágæti frjálsrar samkeppni og lítilla ríkisafskipta. Það er nú hins vegar stundum svo að ákveðin fyrirtæki ná markaðsráðandi stöðu á litlum markaði og við fáum í praxís einokunarverslun sem er lítið skárra en ríkisrekið kaupfélag. Nú er ég alls ekki að mæla fjölmiðlafrumvarpinu bót því það litla sem ég hef náð að kynna mér það hljómar afskaplega afkáralega í mínum eyrum.
Í fyrsta lagi finnst mér að stjórnvöld eigi að forðast að setja hamlandi reglur á vöxt fyrirtækja sem eiga í beinni samkeppni við ríkisrekin fyrirtæki. Það er einfaldlega misnotkun á valdi af verstu tegund og algerlega óafsakanlegt. Það væri því ráðlegt af stjórnvöldum að skjóta öllum áformum um ný fjölmiðlalög á frest þar til Ríkisútvarpið hefur verið einkavætt.
Í öðru lagi finnst mér undirbúningurinn og vinnubrögðin vera fyrir neðan allar hellur. Svona umdeilt frumvarp þarf að vinna af metnaði og vandvirkni til að koma í veg fyrir bótaskyldu ríkisins ef til lögsóknar einkaaðila kæmi. Það litla sem ég hef séð í þessu máli bendir sterklega til þess að Davíð hafi riðið helst til ógyrtur á vaðið og er farið að sundla ískyggilega. Ekki kæmi það mér á óvart þó hann dytti af baki og blotnaði eilítið áður en öll kurl koma til grafar í þessu máli. Það versta af öllu finnst mér hins vegar að hinur ungu holdgervingar frelsis í þingflokki Sjálfstæðismanna hafa allir gleypt dúsuna sína og steinhalda kjafti af ótta við að styggja drekann í stólnum.
Það er kominn tími til að einhver hugrakkur riddari taki sig til og stjaki aðeins við formanninum, skori hann jafnvel á hólm líkt og Davíð gerði við Þorstein á sínum tíma. Það er þó líklegt að í þeim slag yrði Davíð Golíat en andstæðingurinn Davíð - eins undarlegt og það kann að hljóma. Mér finnst að minnsta kosti að raddir þeirra sjálfstæðismanna sem ekki hafa glatað skynsemi sinni og eru enn gagnrýnir á stjórnarhætti Davíðs megi vera háværari og jafnvel svolítið fleiri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli