28. sep. 2003

Jæja!!!
Þá er enn ein snilldarhelgin á enda. Föstudagskvöldið var reyndar ekki æðislegt þar sem ég sat yfir eiturefnafræði vegna prófs sem ég síðan fór í á laugardagsmorguninn. Prófið gekk fínt og strax á eftir fór ég í laugardagsboltann. Mæting var slök en slapp þó og boltinn var ágætur. Á eftir var svo farið á Nesbalann að hjálpa Svenna mág að flytja en hann er loksins eftir 2ja mánaða framkvæmdir búinn að gera nýja húsið sitt íbúðarhæft. Þetta var fljótgert og gistu þau í fyrsta skipti í fína húsinu í gær. Ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju með nýja húsið.
Um kvöldið fórum við síðan til Helgu og Sverris þar sem við elduðum saman nauta entre cote piparsteik með bökuðum kartöflubátum og salati. Þessu var síðan rennt niður með 1999 árgerð af Konunga Hill rauðvíni sem er alveg sérdeilis gott. Júlía hélt fyrir okkur margar áhugaverðar ræður við matarborðið og sagði margt sem eflaust væri mjög skemmtilegt ef maður skildi orð af því sem hún segir. Kvöldstundin fær hæglega 5 bolta í skeytin og inn. Á leiðinni heim fékk ég síðan afar harðort símtal þar sem ég var hvattur til að mæta í bekkjarpartý sem enn stóð í blóma þrátt fyrir að klukkan væri hlaupin dágóðan hálftíma fram yfir miðja nótt. Ég gat að sjálfsögðu ekki hunsað þessa áskorun og úr varð að ég notaði leigubílinn til að komast í Safamýrina þar sem ónefndur bekkjarfélagi minn hafði sundrað teitinni með yfirlýsingum, punghittandi olnbogaskotum og með því að ganga í skrokk á lítilli stúlku sem síðan hafði hann undir og fíflaði hann. Þetta var að sjálfsögðu allt í gamni en stuðið var engu að síður rafmagnað enda entist teitin til að verða fjögur árdegis.
Ég vaknaði því fremur slakur í morgunn og fór beint í Hannesarboltann. Á eftir matreiddi undirritaður amrískar pönnukökur með sýrópi og ís sem runnu ljúflega niður en þegar þær höfðu runnið dágóða stund var kominn tími á að fylla í tómarúmið með fajitas a la Gilli með nautakjöti. Nú liggjum við hér á meltunni, matargestirnir Ingvar og Magga mágkona farnir og bitur veruleiki mánudagsmorgunsins blasir við. Ég ætla að takast á við hann með að því að skrópa og lesa frekar því á morgunn eru ekki margir skemmtilegir fyrirlestrar.

Boltinn
Unitedmaskínan er að hrökkva í gang því Leicester var tekið í gegn á sannfærandi hátt. Rúðan er líka hrokkin í gang og er að sjálfsögðu búinn að taka forystu í keppninni um markheppnasta mann Bretlandseyja. Ánægður með þetta og vona að þeir séu nú loksins komnir á beinu brautinni.

Maggi nafni...
...á afmæli í dag. Ég held að hann sé 26 ára í dag en hann lítur ekki út fyrir að vera nema í mesta lagi fertugur. Til hamingju Maggi minn. Þú ert fallegsti Hannesinn fyrir utan Óla sem að sjálfsögðu fallegasti maður í heimi.

25. sep. 2003

Ísland í dag í gær...
...var fyrir margra hluta sakir skemmtilegt/áhugvert. Fyrst ber að nefna komu þeirra Lúða Bergvinssonar og Birgis Ármannssonar en þeir ræddu um hræðilegt hlutskipti þeirra sem verða gjaldþrota og hversu hrikalegt er fyrir þessa menn að lifa lífinu fyrst eftir gjaldþrotið. Þeir félagar vildu liðka reglurnar svo þessum einstaklingum væri gert auðveldara fyrir að koma undir sig fótunum aftur. Nú er mér ekkert sérlega illa við fólk sem verður gjaldþrota enda hefur fólk sem ég þekki og virði lent í þessari óskemmtilegu lífsreynslu. Á hinn bóginn er ég ákafur talsmaður þess að fólk greiði þær skuldir sem það sekkur sér í og því vil ég alls ekki að reglur séu liðkaðar frekar en ég vil minnka endurgreiðslubyrði námslána. Eins og staðan er í dag greiðir til dæmis hluti námsmanna aldrei öll námslánin sín til baka. Það má hins vegar alltaf ræða í mín eyru hvort réttlætanlegt sé að hafa enga vexti á þeim nema fólk lendi í vanskilum því það er miklu ábyrgari leið til að stuðla að námi í þjóðfélaginu. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég þekki ekki nákvæmlega hvernig vaxtamálum er háttað á námslánum en ég geri ráð fyrir að þar sem talað er um að vextir á námslánum séu hagstæðir þá séu þeir að minnsta kosti til staðar. Skilaboð mín eru því - fólk á að greiða skuldir sínar og ef það verður gjaldþrota þá að því marki sem það framast getur og halda áfram að gera það eftir að gjaldþrotaskiptum er lokið.
Í öðru lagi var gestur þáttarins hinn ákaflega skemmtilegi Lord Nelson sem er talandi páfagaukur úr Hafnarfirði að ég held. Þessi stórskemmtilegi páfagaukur spjallaði heilmikið við myndavélar heima hjá sér en var furðu spakur í sjónvarpssal og sagði fátt. Best fannst mér þó þegar hann ropaði og sagði "afsakið" í kjölfarið.

Eftirmálar helgarinnar
Í gær voru kærðir nokkrir leikmenn Arsenal og Manchester fyrir ólætin á sunnudaginn og verður gaman að sjá útkomuna úr því máli öllu saman. Ég held að nokkrir leikmanna Arsenal gætu fengið langan dóm en líklega sleppa þó flestir við sektir og eins leiks bann. Það verða líklega helst Vieira, Lauren og Keown sem eiga lengri bönn yfir höfði sér. Gaman verður að fylgjast með þessu.

Bloggarar
Flestir bloggarar eru nú slappir þessa daganna og það er helst að Önni litli skutulsbróðir haldi uppi merki þeirra sem ég heimsæki hvað oftast. Viðar er dauður úr öllum æðum, Inga Huld skrifar á hálfsárs fresti, Heiðar og Fríða hafa kastað fögrum fyrirheitum fyrir róða og hafa aðeins einu sinni sent línu úr ríki Kalla klámhunds, Skutullinn þegir þunnu hljóði og það er helst að maður fái eitthvað fyrir sinn snúð á Hlíðarenda af öllum stöðum. Ef Gunni bloggar einu sinni enn í þessum mánuði verður um að ræða nýtt met hjá honum eftir því sem ég kemst næst. Hleypidómar og Stóridómur koma með einstöku gullkorn en þau eru alltof sjaldgæf.

Nýir hlekkir
Hef bætt inn hlekkjum á Heiðar og Fríðu á blogglínunni en svo koma hlekkir á Ólaf Kára Kristjánsson (Elínarson) og Erlu Hlín Guðmundsdóttur(Rögnudóttir) aðeins neðar.

22. sep. 2003

Enn væla Arsenalmenn
Er ekki í lagi með þennan Wenger aumingja. Hann heldur því fram að Vieira hefði ekki átt að fá gult vegna þess að Nistelrooy byrjaði. Ég skal, eftir að hafa séð þetta aftur, viðurkenna að hann fór fremur harkalega í þennan skallabolta þarna á undan en hefði Vieira farið í boltann í staðinn fyrir að hugsa um að halda Ruud frá með því að standa kyrr og beygja sig hefði þetta líklega orðið venjulegt skallaeinvígi. Auk þess sem Ruud fékk gult spjald fyrir viðureignina. Málið er hins vegar það að Vieira var heppinn að sleppa með bara gult fyrir þetta væskilslega hefnispark og það skiptir engu máli hvort hann hitti eða ekki, það á að gefa mönnum rautt fyrir svona. En Arsenalmenn höfðu ekki sagt sitt síðasta orð því eftir að vítaspyrnan var dæmd í lokin slepptu þeir alveg virðingunni og skitu á sig. Ég skal verða fyrsti maðurinn til að viðurkenna að þetta var fremur harður dómur en reyndar sér maður þetta ekki frá eins góðu sjónarhorni og Bennett dómari. Engu að síður fannst mér mjög hart að dæma vítaspyrnu miðað við myndirnar. Arsenalmenn, bæði leikmenn og áhangendur ættu hins vegar að skammast sín fyrir framkomu nokkurra leikmanna í lok leiksins og er ég þar fyrst og fremst að tala um leikmenn eins og Keown, Lauren, Parlour og Cole sem gerðu allt sem þeir gátu til að æsa Nistelrooy upp því þeir vissu að hann þyrfti bara eitt lítið gult spjald og þá fengi hann rautt.

Arsenalmenn hafa sl. ár talað um að þeir séu lagðir í einelti af ensku pressunni og enska knattspyrnusambandinu, jafnvel almannarómi. Í gær sáum við hvers vegna.

Aðrir virðast vera sammála um það að ekki aðeins séu þeir grófasta liðið í deildinni heldur líka mestu dómaravælukjóarnir. Það eru yfirleitt 2-3 leikmenn Arsenal komnir í kringum dómarann um leið og hann flautar til að heimta spjald á þann brotlega og eru Vieira vælukjói og Ashley Cole yfirleitt fremstir í flokki en Ljungberg, Pires og Henry eru duglegir líka auk Keown. Vona bara að myndbandsnefnd knattspyrnusambandsins setji alla þessa aumingja í bann því þeir eiga það skilið.

En hvað leikinn snertir þá fannst mér þetta nokkuð sanngjörn úrslit. Hvorugt liðið spilaði almennilegan fótbolta, voru bæði hrædd við að sækja en þó voru Arsenalmenn slappari enda á útivelli. Ruud átti að klára skallann í fyrri hálfleik og að sjálfsögðu vítið í lokinn en hann virðist vera eitthvað ragur við Lehmann greyið. Málið er hins vegar það að Arsenal er ekki að byrja vel í ár og allir vita að endaspretturinn er yfirleitt slakur hjá þeim (nema kannski vorið 2002). Mínir menn hafa hins vegar yfirleitt ekki komist í gang fyrr en eftir áramót. Ég held því að baráttan í ár muni standa á milli United, Chelsea og kannski Arsenal ef þeim tekst að halda sér inni á vellinum. Ég held að ef mínir menn komast ekki í rosagír næsta mánuðinn þá muni Chelsea hirða titilinn.

Skólinn...
...er helvíti fínn þessa dagana. Ég er bara að koma mér á óvart með því að mæta og held mér meira að segja vakandi í sumum fyrirlestrum en eins og ég hef líklega áður sagt hér á síðunni er ég ekkert sérstaklega hrifinn af fyrirlestrum sem kennsluformi. Það er verst hvað það er ófyrirsegjanlegt hverjir halda góða fyrirlestra og hverjir vonda.

19. sep. 2003

Ælupest dauðans
Er óðum að jafna mig eftir ógeðslegasta sólarhring í lífi mínu. Það byrjaði allt í gærkvöldi með nokkrum kröftugum uppköstum en í kjölfarið fylgdi nótt hinna mörgu klósettferða þar sem strókurinn stóð ýmist upp eða niður og stundum hvoru tveggja í einu. Ég fór a.m.k. 15x á klósettið í nótt. Í morgun var ég nú aðeins farinn að skána og hef verið að skríða saman í dag. Þetta var nú ekki heppilegasti tíminn fyrir slíka útúrdúra því ég á að fara í próf í réttarlæknisfræði á morgunn og hef eiginlega ekkert getað lesið sl. sólarhrings en ég ætla nú að reyna að bjarga málunum í kvöld. Nú er ég reyndar dottinn í Idol-þáttinn á stöð 2. Ætli ég reyni ekki að drulla mér í lestur snöggvast. Heyrumst

18. sep. 2003

Ahh!
Gleymdi næstum bíódómi vikunnar.

Phone Booth
Símaklefinn er ágætisafþreying sem skartar þremur góðum leikurum. Fyrstan skal nefna Colin Farrell sem hefur skotist upp á stjörnuhimininn síðustu misseri. Hann skilar hlutverki sínu ágætlega sem súkkulaðismjaðrarinn. Forrest Whitaker hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og ég skil ekki af hverju þessi maður fær ekki fleiri hlutverk í stórmyndum. Maðurinn sem stelur hins vegar senunni í myndinni er Kiefer Sutherland sem ljáir skyttunni rödd sína. Hann er hreint út sagt frábær í þessu erfiða hlutverki þar sem hann þarf að gefa manni mynd af klikkuðum pata án þess þó að sjást sjálfur. Myndin fær 3 bolta hjá mér, þar af einn í skeytin fyrir frammistöðu Kiefers. Einn stór plús er líka að hún er ekki nema tæpar 90 mínútur þannig að hún er miðrarvikuvæn.
Boltinn
Merkilegt hvað Arsenal er ógeðslega lélegt í Evrópukeppninni. Þrátt fyrir að Inter sé með frábært lið er ótrúlega slakt að fá á sig þrjú mörk á heimavelli gegn þeim án þess að sækja nóg til að skora sjálfur. Ég sá reyndar ekki leikinn þannig að ég get ekki dæmt um það hvort þetta hafi verið sanngjarnar tölur en það er náttúrlega hlálegt fyrir hina yfirlýsingaglöðu Frakka í liðinu að skíttapa svona í keppni hinna bestu sem þeir hafa svo oft sagst geta unnið. Það er ekki nóg að vera bara góður á sinni þúfu og öskra þaðan eins og galin belja. Til að maður taki Arsenal alvarlega sem stórveldi í evrópskri knattspyrnu verða þeir að sýna eitthvað í Evrópu eins og m.a.s. Liverpool hefur gert. Kannski maður sjái líka Chelsea gera góða hluti því þeim tókst að vinna sinn fyrsta útileik í ár og það þýðir að ef þeir klára alla heimaleikina sýna héðan í frá er öruggt að þeir verða í tveimur af efstu sætum riðilsins. Eini sjensinn væri sá að allir leikirnir endi með heimasigrum nema hvað eitt liðið tapaði öllum leikjunum sínum og þá gætu þeir fallið út á markatölu – afar ólíklegt.
Mínir menn byrjuðu hins vegar vel og verð ég að segja að það er gaman að sjá menn eins og Fortune, Silvestre og Djemba skora. Butt á nú alltaf mörk af og til en það er líka gaman þegar hann skorar. Ég var reyndar ekki nógu ánægður með að Nistelrooy komst ekki á blað, ekki það að ég hafi verið ósáttur við frammistöðu hans, heldur var ég að vona að hann tæki markakóngstitilinn í CC aftur í ár eins og í fyrra. Það er nú reyndar nóg eftir af keppninni en menn verða nú helst að skora í hverri umferð ætli þeir að hirða þennan titil.
Það verður líka gaman að sjá hvernig þetta nýja (gamla) fyrirkomulag með 16 liða úrslitin kemur út. Ég hugsa að þetta skili okkur kannski ekki endilega titlinum til bestu liðanna heldur þeirra sem toppa á réttum tíma. United hefur nú alltaf verið sterkt á því sviðinu og því er ég vongóður með áríð í ár en ég held nú að þeir eigi eftir að sakna Verons þegar stóru liðin fara að koma. Vonum bara að Kleberson verði orðinn góður fyrir 16 liða úrslitin og Ronaldo fái smá reynslu þangað til.
Ég var raunar mjög hissa á því að Ferguson skildi ekki nota hann á þriðjudaginn en kannski var hann að spara púðrið fyrir helgina. Það er líka mikilvægt að koma Fletcher aðeins inn í þetta lið enda er þar víst kominn maðurinn sem á að leysa Beckham af á hægri kantinum á næstunni. Hann átti a.m.k. góða innkomu í leiknum og sýndi frábæra takta inn á milli en reyndi kannski fullflókna hluti af og til.

Fyrirlestrar...
...geta verið mjög leiðinlegir og í augnablikinu sit ég í einum slíkum. Það hafa verið mjög fínir fyrirlestrar í morgun en þetta er nú alveg að drepa mig. Kannski maður þrauki og sjái hvort þetta skáni ekki í næsta tíma.

Hafsteinn Þór Hauksson...
...fær sérstakar hamingjuóskir í færslu dagsins þar sem hann var kjörinn formaður SUS um síðustu helgi. Til hamingju Haffi.

Heiðar og Fríða...
...fá hins vegar ósk um lærdómsríka og skemmtilega dvöl í Skíriskógi næsta árið en þau hafa bæði hafið framhaldsnám í Nottingham a.m.k. næsta árið. Þau hafa víst þegar lagt drög að því að fara á leiki í ensku og er það vel. Vonum bara að Brynjar Björn fái flugufrið fyrir hinum íslensku nágrönnum.

14. sep. 2003

Réttir
Þá er maður kominn heim eftir réttirnar þar sem tekið var hressilega á því. Ég lagði af stað á miðvikudagskvöldið og var kominn að Steinsholti undir miðnætti. Ég lagði síðan af stað upp úr hádeginu á fimmtudag á móti fjársafninu og fjallmönnum ríðandi með gutl í pela. Eiríkur Gestsson höfðingi ætlaði með mér en það kom upp úr dúrnum að honum er illa við smá rigningu og rok og sneri hann því við eftir hálfa leið eða svo og náði mér reyndar aldrei. Ætli maður verði ekki að segja honum það til varnar að hann þurfti að ríða töluvert lengri leið en ég en það er nú samt hálf lélegt að klára ekki það sem maður byrjar á. Hann fékk enda að heyra það þegar ég hitti hann á föstudeginum.
Á föstudeginum voru síðan réttirnar sjálfar þar sem dagurinn byrjaði á því að riðið var í réttirnar. Að sjálfsögðu var peli með í för, einn frekar en tveir. Síðan var drukkið og sungið og loks var okkar fé rekið heim að bæ. Síðan fengum við dýrindis kjötsúpu og loks var haldið til réttamjalta sem er nú orðinn árviss viðburður í mínu lífi. Þar var að sjálfsögðu hafður peli meðferðis og gengu mjaltirnar örugglega hraðar fyrir vikið. Loks var klikkt út með frábæru réttaballi í Árnesi þar sem hinir stórskemmtilegu Papar spiluðu fyrir dansi. Þetta er í annað skiptið í röð sem þeir spila og ég get svarið það að þeir eru alltaf að verða betri. Í fyrra voru þeir bestir og því eru þeir líklega bestari í ár. Síðan svaf maður hressilega út í gærmorgun og eftir hádegið komum við hestunum í haustbeitina. Síðan var haldið í bæinn þar sem beið okkar þrítugsafmæli.

Rakel...
...bekkjarsystir mín er þrítug í dag og hélt upp á það í gær. Teitin var haldin í lögreglusalnum í Brautarholti, þ.e. þeim neðri sem ku vera félagsaðstaða lögreglumanna. Þar voru frábærar veitingar og ágætis stemming. Var þreyttur eftir réttastand og skreið heim í bólið um hálftvöleytið. Sofnaði áður en hnakkinn snerti koddann. Til hamingju með daginn Rakel.

Í dag...
...stóð síðan til að ég færi í Borgarnes til að kjósa Hafstein félaga minn til formanns S.u.s. en ég kemst því miður ekki vegna anna og verð ég að vona að það komi Hafsteini ekki í koll. Ég verð alla vega með feitt samviskubit ef hann fær ekki kosningu en síðast þegar ég vissi var ekki um neitt mótframboð að ræða og því líklegt að hann fái örugga kosninu. Gangi þér vel Haffi.

10. sep. 2003

Réttir
Í kvöld eða á morgun legg ég af stað í réttirnar árlegu en það eru Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi. Við gamli ásamt Eika Gests, Arnóri í Þrándarholti og líklega Silla í Steinsholti ætlum að ríða á móti safninu á morgunn fimmtudag og síðan verða réttirnar sjálfar á föstudaginn með allsherjar gleði um daginn og síðan verður réttaball um kvöldið ef ég þekki liðið rétt. Annars hef ég beilað á réttaböllunum síðustu tvö ár vegna þreytu en ég ætla nú ekki að láta það koma fyrir mig aftur. Á fimmtudagskvöldið ætla síðan Halldór, Arnar og Ýr að koma og stefnan er að þau ríði með okkur í réttirnar. Svo verður að sjálfsögðu kjötsúpa og hangikjöt um kvöldið og traditional réttamjaltir með öllu tilheyrandi.

Um einkalíf stjórnmálamanna
Síðustu daga hefur verið mikil umræða hérlendis um það hvort fréttir af umferðarlagabrotum þingmanna séu fréttaefni. Í fyrsta skipti á minni löngu ævi held ég að ég hafi verið sammála þeim auma manni Gunnari Smára Egilssyni sem taldi þetta vera rof á friðhelgi einkalífs þessara manna. Hann taldi að aðeins væri fréttaefni þegar þessir menn brytu af sér í opinberu starfi og er ég að nokkru leyti sammála því. Mér finnst nú líka að það megi láta það flakka ef menn eru dæmdir til fangelsisvistar fyrir glæpi eins og ófrjálsi frjálslyndi þingmaðurinn. En trúverðugleiki fréttastofu Stöðvar 2 hefur beðið alvarlega hnekki nú þegar þeir hafa á stuttum tíma sent út þessa frétt og slegið annarri frétt á frest vegna þess að það hefði getað skaðað eiganda Stöðvar 2 hefði hún verið send út um leið og hún var tilbúin. Líklega hefur þetta orðið til þess að margir af bestu fréttamönnum stöðvarinnar hafa látið af störfum þar. Maður getur nú fyrirgefið kommastýrða ríkisbákninu við Efstaleiti svona yfirsjónir - þeir vita nú einu sinni ekki betur greyin. Það magnaðasta sem ég hef heyrt í því útvarpi var þegar það hringdi ein miðaldra kona í síðdegisútvarpið og vildi tilnefna Mörð Árnason sem kynþokkafyllsta mann ársins. Ætli hún sé blind og heyrnarlaus?

8. sep. 2003

LEIKURINN
Ótrúlegur leikur hjá strákunum. Þeir voru frábærir. Vörnin var útrúlega solid allan leikinn og mér fannst þeir í raun allir frábærir, t.d. redduðu Ólafur Örn, Hermann hestur og Indriði Sigurðsson allir á síðustu stundu. Ólafur frá Neuville í fyrri hálfleik, Hermann í seinni hálfleik hjá Kuranyi og Indriði átti líka mikilvæga tæklingu á Kuranyi í seinni hálfleik þegar hann meiddist. Jóhannes Karl var með Ballack í vasanum og leyfði honum í raun ekkert nema losa sig við boltann. Aldrei fékk hann tækifæri til að skjóta eða skapa færi að ráði. Þórður var góður á hægri vængnum og Pétur í holunni fyrir aftan vörnina. Heiðar og Eiður (Heiður og Eiðar) voru góðir. Eiður átti lipra spretti og hélt boltanum vel og Heiðar barðist eins og ljón og skammaði síðan Fraulein Kahn á eftir. Þótt ótrúlegt megi virðast var Rúnar sennilega slakasti leikmaður íslenska liðsins og þó átti hann einn af sínum bestu leikjum. Ekki má gleyma Árna Gauti sem varði stórkostlega skalla frá Kahn í fyrri hálfleik. Ég hélt nú að ég yrði ekki eldri þegar Heiðar var tekinn út af því þó hann væri þreyttur þá hlyti hann að vera skárri en Helgi greyið Sigurðsson en meira að segja hann var góður eftir að hann kom inn á og hleypti í raun nýju lífi í sóknarleik Íslendinga. Arnar Grétarsson var í raun jafn ömurlegur og venjulega og ég skil ekki hvað hann er að gera í þessu landsliði. Hann spilar kannski vel í Belgíu en hann hefur aldrei sýnt neitt með landsliðinu. Ég veit eiginlega ekki hver ætti að vera maður leiksins, ætli ég verði ekki bara að velja Ásgeir Sigurvinsson þjálfara sem er búinn að berja saman alvöru fótboltalandslið. Til hamingju með það Íslendingar.

Helgin
Fyrir utan landsleikinn var ég nú ekki duglegur um helgina. Fékk síðan heimsóknir öll kvöldin og át því mikið af nammi og snakki auk ókjaranna allra af Coca-Cola. Auðvitað var kíkt í rauðvín og bjór líka en mér tókst þó ekki að klára nema eina rauðvín og 6 bjóra ásamt þeim sem hingað komu þannig að það var ekki mikil ölvun. Það er nú svo sem ágætt þar sem til stendur að fara í réttir á föstudaginn og mun það hefjast með mótreið á fimmtudaginn og síðan verður sjálfur réttadagurinn með réttaballi og tilheyrandi. Það verður því mikið að gera í vikunni þar sem ég ætla að fara ásamt gamla að kíkja undir hestana (fyrir ykkur sem vitið ekkert um dýr þá er það að athuga hvort skeifurnar séu í lagi og hvort þarf að járna (og fyrir ykkur sem eruð alger fífl þá er það að setja skeifur á hófa hestanna) hestana upp).

S.u.s. þingið
Síðan er SUS þingið um helgina þar sem ég mun að sjálfsögðu mæta til að styðja minn mann þó ég sé nú ekkert sérlega mikill SUSari í mér. Alltént er það líklega lögulegasti kúkurinn í klósetti íslenskrar ungliðapólitíkur. Ég hef líka fulla trú á að Hafsteini félaga mínum takist að rífa SUS upp úr þessari stuttbuxnapólítík sem er lítið skárri en helvítis (afsakið orðbragðið :) ) stúdentapólítíkin. Mér finnst alltaf jafnfyndið að sjá þessa formenn ungliðahreyfinganna koma í sjónvarpið og rífast um hver sé bestur; Holræsa-Solla, Krullu-Dabbi, Skalla-Grímur, Dóri dapri eða Margrét mútudóttir.
Ég vona nú að Hafsteinn sjái sér leik á borði og tali máli þeirrar hægri stefnu sem SUS þykist styðja en verði ekki enn einn krónprinsinn í skálminni hjá Dabba kóngi. Ég held að Á Pétur Blöndal sé enn ein sönnun þess að menn með róttækar skoðanir eiga líka heima í Sjálfstæðisbákninu. Áfram Hafsteinn.

5. sep. 2003

Sælir kæru aðdáendur
Ég hef því miður ekki getað staðið undir væntingum ykkar um skrif á þennan vef sl. daga sökum gífurlegrar fíknar í tölvuleik sem heitir Rise of Nations. Ég hef nú tekið á því vandamáli með því að eyða leiknum út úr tölvunni og mun ekki spila hann framar eða a.m.k. ekki fyrr en ég hef lokið skuldbindingum mínum gagnvart HÍ og öðrum. Ég hef einnig eytt tölvuleikjunum CM4 og Colin McRae 2 út úr tölvunni og bý ný einungis við þann munað að geta spilað Tetris í einhverri millennium útgáfu.

Síðan síðast hef ég lokið vinnu minni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og skólinn er hafinn að nýju. Ég hef ekki verið duglegur að fara þangað m.a. vegna veikinda en líka vegna þess að fyrirlestrarnir eru leiðinlegir, a.m.k. töluvert leiðinlegri en Rise of Nations. Nú hef ég hins vegar enga afsökun og mun mæta samviskusamlega í næstu viku jafnvel þótt ég hafi enga trú á fyrirlestrum sem kennsluformi.

Ég fór líka að heimsækja rauðhærða prímadonnu í vesturbæinn á sl. mánudag en það er hin stórmyndarlega Erla Hlín Guðmundsdóttir Jörgensen en það er dóttir Rögnu bekkjarsystur minnar og Gumma mannsins hennar fyrir ykkur sem eruð fáfróð um þessa hluti. Í stuttu máli er þarna um þvílíka prinsessu að ræða að annað eins hefur varla sést, rauðhærð og brosmild eins og mamman en svipurinn er að stórum hluta frá pabbanum þó Ragna eigi kannski nebbann. Vonum að það breytist :).
Til hamingju með prinsessuna Ragna og Gummi.

Leikurinn...
...á morgunn er stórt spurningarmerki og ég held að sigur okkar manna velti eingöngu á því hversu vel Eiður nær sér á strik. Ég vona að Ásgeir hafi vit á því að stilla Veigari Páli upp með Eiði frammi og síðan ætti miðjan að vera a.m.k. Þórður og Jóhannes bróðir hans. Í vörninni verður hrossið vonandi en það er ómögulegt að segja hver verður með honum. Vonandi ekki Lárus Orri sem hefur alltaf haft lag á að klúðra svona mikilvægum leikjum fyrir okkur.

En úr því ég er að tala um boltann þá held ég að ég verði aðeins að koma ensku að. Mínir menn byrjuðu ágætlega og kláruðu Bolton heima og Newcastle úti en síðan rétt mörðu þeir Úlfana og töpuðu loks fyrir Southampton þar sem þeir gátu ekki rassgat. Vonandi verður liðið skárra í næstu leikjum en það er svo sem ekkert nýtt að þeir byrji illa. Ég gæti vælt í allt haust yfir meiðslum eins og Arsenal-aðdáendur gerðu í vor en það er ekki háttur okkar United manna. Við bíðum bara vors og sjáum hvað setur.

24. ágú. 2003

Jæja
Þetta er búin að vera fín helgi. Á föstudaginn náði ég loks að heimsækja gamla manninn sem varð sextugur á miðvikudaginn. Síðan var farið í heimsókn til Svenna mágs og Kötu konunnar hans í nýja húsið þeirra á Nesbala á Seltjarnarnesi. Á laugardagsmorgunn fékk ég þá fáránlegu hugmynd að fara í þvottahúsið kl. 8 um morguninn (sem ég geri aldrei aftur). Það var síðan fyrsi laugardagsbolti vetrarins í hádeginu þar sem mæting var slæleg en varamenn redduðu málunum. Síðan kom hingað rafvirki að unita ADSLið mitt sem er nú orðið snilld með þráðlausu neti og látum. Strax eftir það fór ég á hestbak með kallinum og um kvöldið var síðan grillað. Á eftir kom Ingólfur ásamt Sverri hingað heim og við horfðum á Pianistann sem ég dæmi hér á eftir.

Der Klavierspieler
Snilld og aftur hrein snilld. Besta mynd sem ég hef séð síðan As Good as it Gets var og hét. Þessi mynd er alveg hrikalega óhugguleg og maður á nú erfitt með að trúa því að Þjóðverjar hafi verið svona rosalega illir. Adrian Brody átti klárlega skilið að fá Óskarinn fyrir þessa frábæru túlkun og Roman Polanski fyrir leikstjórn þrátt fyrir að hann sé dæmdur barnaníðingur. Myndin fær klárlega 5 bolta, alla í skeytin og inn.

Í dag...
...fór ég svo í skírn hjá móðurbróður hennar Eddu en hann var að skíra sitt fjórða barn. Stúlkan litla fékk nafnið Heiðrún Edda í höfuðið á ömmu sinni (þeirri sömu og Edda heitir í höfuðið á) og líklega vínbúðinni í Árbæ þrátt fyrir að foreldrarnir þvertaki fyrir það :). Nú er ég að undirbúa mat fyrir settið en við ætlum að bjóða þeim í kjúlla og franskar a la mama mia.

United...
...voru sterkir í gær þegar þeir tóku Newcastle í kennslustund þrátt fyrir ótrúlegan heimadómara. Þessi Rennie karakter er nú það versta gimp sem ég hef á ævi minni séð dæma. Hann hefur alltaf verið með rosalega heimadómgæslu þegar ég hef séð hann dæma. En við unnum samt og vermum toppsætið ásamt Rómanveldi og frönsku herdeildinni. Arsenal voru suddalega góðir á móti Boro í dag og þeir verða örugglega ofarlega í deildinni í vetur ásamt United, Chelsea og Newcastle. Ég hef ekki trú á Liverpool á meðan franska fyllibyttan er við stjórnvölinn. Ég spái því að United sigri, Arsenal verði stigi á eftir en Chelsea og Newcastle verða í 3-4 sæti u.þ.b. tíu stigum á eftir toppliðunum. Henry verður markahæstur ásamt Crespo en Nistelrooy verður annar. Hann verður hins vegar markahæstur í Meistaradeildinni eins og í fyrra.

21. ágú. 2003

Var búinn að skrifa langt blogg en það eyddist. Nú nenni ég ekki meir og er farinn að sofa.

18. ágú. 2003

Helgin...
...var fín. Byrjaði með tiltölulega rólegri vakt á föstudaginn en síðan kom ég heim á laugardaginn og horfði á mína menn taka Bolton í litla kennslustund í því hvernig maður á að kaupa unga leikmenn. Nánar að því á eftir. Síðan var tekinn "smá" göngutúr. Við Edda lögðum efst í Stórholtinu þar sem móðursystir hennar á heima og löbbuðum alla leið niður í miðbæ. Þar skoðuðum við meðal annars háskólasalinn í gamla Top Shop húsinu þar sem vinnufélagi Eddu var að syngja í hljómsveit og Króatinn var að segja hvernig vetnisrafall virkaði. Labbaði síðan nokkra hringi í miðbænum og lenti á endanum inni í fornbókabúðinni Gvendi dúllara og keypti mér tvær vel með farnar Laxness-bækur í safnið. Það var endurminningabókin Í túninu heima og ritgerðasafnið Upphaf mannúðarstefnu. Var reyndar svolítið svekktur því mig minnti að ég ætti Kristnihaldið en þegar heim kom sá ég að svo var ekki. Það var nefnilega nánast ósnert eintak af henni þarna sem hefði verið 1200 kallsins virði. Bendi þeim sem hafa áhuga á slíkum bókmenntum að maður getur fengið mjög vel með farin eintök á þriðjungi af því sem þau kosta ný.
En hvað um það. Við héldum síðan heim á leið því til stóð að Þór og Íris og Króatinn kæmu í grill. Við grilluðum snilldarlega borgara að hætti hússins og drukkum svolítið með því. Síðan fór Ingvar í bæinn samferða Þór og Írisi sem voru á heimleið en við Edda töltum á leiguna og leigðum þá úrvalsræmu Gangs of New York. Eitthvað rámar mig í að annað hvort Þorgeir eða Önni hafi verið að kvarta undan byssuleysi í bardögunum en það kemur einmitt fram í myndinni að klíkurnar gerðu með sér samkomulag um að nota slík vopn ekki. Lewis og DiCaprio voru góðir og Diaz var skárri en vanalega. Gef myndinni 3 bolta (sjá að neðan).
Á sunnudaginn var ég síðan rifinn upp kl. 9 til að fara með pabba í bíltúr austur fyrir fjall að sækja hesta og heimsækja vinafólk okkar. Það var ekki það ég vildi ekki fara heldur er ég ekki sérstaklega sprækur morguninn eftir hálfa rauðvín. Ferðin var hin ágætasta og við vorum komin í bæinn í tæka tíð til að sjá Chelsea taka Liverpool á Anfield sem var gaman. Síðan vorum við boðin í mat hjá settinu í gærkvöldi þar sem grillaður var dýrindis svínahnakki. Edda fékk makeover í kaupæti og bara allir sáttir.

Einkunnagjöf
Er að spá í að taka upp mína útgáfu af einkunnagjöf hér á síðunni þar sem gefnar verða einkunnir fyrir allan djöfulinn. Mun kerfið virka þannig að gefnir verða 0-5 boltar fyrir frammistöðu. Kerfið verður kannski þróað frekar síðar.

Manchester United vs. Bolton
Mínir menn voru nú ekki mjög sannfærandi í þessum leik og það verður ekki sagt að 4-0 sigur hafi verið sanngjörn úrslit. 2-0 hefði kannski verið nær lagi. Það var hins vegar undrabarnið Ronaldo sem var fegurð dagsins því leikur United lifnaði allur við þegar hann kom inn á og þó það sé kannski fullmikið sagt að hann hafi átt þátt í mörkunum þá var það nú samt þannig að hann opnaði leikinn fyrir United og skapaði plássið sem þurfti til að skora mörk. Ég held hann verði stjarna en ég sakna samt Verons. Hann er snillingur. Mínir menn fá 3 bolta fyrir góðan endasprett. Ef ekki hefði verið þessi endasprettur og leikurinn hefði endað 1-0 þá hefði ég gefið þeim einn bolta.
NIÐURSTAÐA: 3 boltar.

11. ágú. 2003

Jæja!!!
Þá er byrjuð ný vika. Ég á bara þrjár vikur eftir í vinnunni og get ekki beðið eftir að skólinn byrji. Ég er búinn að vinna svolítið stíft síðustu vikurnar og ég er orðinn frekar þreyttur á þessu en maður verður víst að venja sig við þetta því svona tarnir eru það sem koma skal hjá manni.

Samfélagsskjöldurinn
Ánægður með mína menn í gær. Fannst þeir spila vel og voru betra liðið á vellinum. Dómarinn var úti að steikja í gær. Fyrst sleppti hann Ashley Cole með viðvörun fyrir að sparka í Ole Gunnar Solskjær þegar hann hefði átt að gefa honum beint rautt eða að minnsta kosti annað gult spjald. Síðan hætti hann að vera skv. sjálfum sér þegar hann gaf Scholes gult fyrir svipað brot. Síðan fór Phil Neville í þessa ljótu tæklingu sem verðskuldaði nú alveg gult á góðum degi en dómarinn ákvað að sleppa honum við það. Jeffers var hins vegar ekki sáttur og sparkaði í bæði hausinn og lappirnar á Phil og fékk fyrir vikið rauða spjaldið. Örstuttu seinna tók Djemba svolítið vilt skot og það vildi þannig til að skotfóturinn fór í lærið á Sol Campbell. OK kannski var Djemba ekkert að reyna að sleppa við Campbell og það hefði alveg mátt veifa gula spjaldinu á hann en Campbell sparkaði í rassinn á Djemba í staðinn og átti að sjálfsögðu líka að fá rautt. Það er því kannski hægt að segja að þetta hafi jafnast út. Scholes og Neville hefðu getað fengið rautt en Campbell og Cole áttu tvímælalaust að fá rautt. Það hefði verið magnað að sjá 5 rauð í Samfélagsskyldinum sem á nú að heita vináttuleikur.
Annars var ég ánægður með Scholes sem mér fannst besti maður vallarins en það er ekki hægt að horfa fram hjá frammistöðu varnarinnar hjá United sem var frábær í leiknum sem og Keane sem var aftur kominn í gamla formið sitt og pakkaði saman Vieira á miðjunni. Howard varði síðan vel í vítaspyrnukeppninni og stimplaði sig vel inn í liðið.

6. ágú. 2003

Sorg!
Fíflið hann Ferguson hefur ákveðið að selja Seba Veron. Hversu mikið fífl getur maðurinn verið. Hann er búinn að selja besta miðjumanninn sinn nokkrum dögum áður en hann spilar fyrsta leikinn á tímabilinu. Það er eiginlega orðið of seint að kaupa nýjan leikmann. Ég hafði enga trú á því að hann seldi Veron úr því að við fengum ekki Ronaldinho en sumir eru greinilega búnir að missa það. Ég vona bara að þeir gangi frá einhverjum alvöru kaupum á næstu vikunni því annars fer titillinn fyrir lítið held ég. Þá er kannski eina vonin okkar að þessi Darren Fletcher brilleri og verði einhver stjarna. Ég mun gráta mig í svefn í kvöld.

4. ágú. 2003

Ferðasaga, brúðkaup og fleira skemmtilegt
Nú hef ég ekkert bloggað í rúman hálfan mánuð og þetta gengur ekki lengur. Það sem hefur drifið á daga mína síðan þá er töluvert. Í vikunni eftir síðustu færslu slóst í ég í för með foreldrum mínum, bræðrum og fjölskyldum þeirra í hestaferð um há- og láglendi Suðurlands. Var ek í för þeirri frá þriðjudagseftirmiðdegi og fram á föstudag þegar við héldum til Reykjavíkur á vit ævintýranna. Hestaferðin var yndisleg. Við gistum fyrstu nóttina í Smáratúni í Fljótshlíð sem er svolítið vestan við Hlíðarenda. Daginn eftir riðum við inn að Einhyrningi þar sem er gangamannakofi en fyrir ókunnuga er þetta á vestari bakka Markarfljóts aðeins innan við þar sem Húsadalsskálarnir eru á eystri bakkanum. (Vá þetta var flókið). Daginn eftir riðum við svo í grenjandi rigningu upp með og oft yfir Markarfljót og enduðum um kvöldið í Landmannahelli sem er rétt við Heklu og Dómadalsleið. Það var síðasta nóttin okkar Eddu í ferðinni því við höfðum afráðið að fara föstudaginn 25. júlí í bústað með félögum mínum úr Garðabænum. Þegar allt kom til alls treystum við okkur til að fara það kvöld og höfðum það notalegt í Hólmgarðinum um kvöldið en fórum síðan upp úr hádeginu í bústað sem Skutullinn hafði útvegað á Hvítárvöllum í Borgarfirði þar sem hann og bróðir hans stunda þá miður karlmannlegu iðju að sussa á fiska allan daginn. Við sem vitum hvað karlmennska snýst um kneyfuðum öl og grilluðum ket. Þorgeir og Önundur komu tómhentir heim og Hrefna eldaði handa þeim dýrindis grill. Þorgeir horfði reyndar á ketið grillast en allir viðstaddir vita að Hrefna átti heiðurinn. Síðan var brennt í bæinn á sunnudeginum eftir vel heppnaða ferð. Vikan fór síðan að mestu í vinnu og veikindi því aldrei þessu vant tókst mér að verða veikur á fimmtudaginn. Ég er nú ekki enn búinn að jafna mig en hafði þó heilsu til vinnu á föstudag og hélt síðan mikla teiti um kvöldið þar sem Garðbæingum var boðið að skoða hýbýli okkar Eddu. Eitthvað var mætingin dræm en þar var góðmennt að vanda. Síðan var brúðkaup hjá Möggu og Christian á laugardagskvöldið sem tókst með ágætum og fá þau þúsund hamingjuóskir frá okkur Eddu. Á sunnudaginn löbbuðum við síðan úr Hólmgarðinum í Eskihlíðina til að sækja bílinn og svo var farið í að mála Nesbala 2 þar sem bróðir hennar Eddu hefur nýverið fest sér forláta raðhús. Síðan var tengdó boðið í pasta í gær og í dag á ég síðan vaktina í Keflavík en hún hefur verið fremur róleg framan af. Líklega glæðist þó eitthvað með kvöldinu þegar liðið fer að skríða heim úr útilegunni.

18. júl. 2003

Jæja!
Nú hef ég ekki bloggað í hartnær 20 daga og þessari eilífu þögn verður að ljúka... en ekki núna. Get þó sagt tryggum sörferum að ég hef lokið við innréttingar í Hólmgarðinum og ráðgeri að flytja inn með spúsu minni í dag. Því er öllum sem ég þekki frjálst að hringja eða koma í heimsókn næstu vikurnar að því gefnu að það sé á skynsamlegum tíma sólarhringsins. Ætli maður taki það ekki rólega næstu dagana. Klári að koma sér fyrir og kaupa mat í búið. Sjáum svo til hvernig gengur hjá okkur í sambúðinni. Ég held að það eigi eftir að ganga glimrandi vel.

30. jún. 2003

Fyrsta færslan á nýrri og glæsilegri tölvu
Nú hefur Nonni bróðir fært mér glæsilega tölvu frá landi tækifæranna. Um er að ræða stórglæsilega Toshiba tölvu sem er 2,2 GHz, 512 Mb innra minni, 60 Gb harðan disk, DVD, CD, brennara og ég veit ekki hvað og hvað. Tölvan hefur verið prufukeyrð í dag og til dæmis er hún um það bil 2 mínútur að setja heilan 60 mínútna disk á tölvutækt form en gamla tölvan hefði gert það á svona 60 mínútum eða svo. Síðan er hún svo fallega blá á litinn. Davíð verður ánægður með það.

Helgin...
...var rosaleg en þá var farið í ferð með Herraklúbbnum Hannesi en atburðir ferðarinnar eru að sjálfsögðu algert trúnaðarmál. Það eina sem ég get sagt er að ég held að ferðin hafi þjappað félagsmönnum vel saman. Helgin var alla vega bæði eftirminnileg og skemmtileg.

25. jún. 2003

Heiðar tjóðraður
Æsir hefðu líklega kosið að Fríða væri ásynja þegar tjóðra átti Fenrisúlf því henni hefur tekist það sem austurískum meyjum tókst ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, þ.e. að fá Heiðar á skeljarnar. Fríða er kostakona og sennilega allt of góð fyrir Heiðar kallinn (og þó, hann er nú ágætur). Ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju og vona að þeim vegni vel í Nottingham næsta vetur. Nú er maður næstum kominn með skothelda afsökun til að fara á leik í Englandi á næstunni :)

Uppfærslur
Þau leiðu mistök urðu við uppfærsluna að öðlingurinn Gunnar Thoroddsen missti linkinn sinn. Úr því hefur verið bætt auk þess sem nokkrir skemmtilegir linkar hafa bæst við. Nú er bara að finna út hvernig maður minnkar letrið á póstunum og minnkar breiddina á spássíunni þarna =>

24. jún. 2003

Jæja!
Loksins tókst mér með hjálp góðra manna að laga aðeins síðuna en hún hefur tekið töluverðum breytingum eins og þið sjáið og þarf svolítið viðhald í viðbót en það mun verða gert næstu daga. Læt betur í mér heyra á næstunni.