Boltinn
Merkilegt hvað Arsenal er ógeðslega lélegt í Evrópukeppninni. Þrátt fyrir að Inter sé með frábært lið er ótrúlega slakt að fá á sig þrjú mörk á heimavelli gegn þeim án þess að sækja nóg til að skora sjálfur. Ég sá reyndar ekki leikinn þannig að ég get ekki dæmt um það hvort þetta hafi verið sanngjarnar tölur en það er náttúrlega hlálegt fyrir hina yfirlýsingaglöðu Frakka í liðinu að skíttapa svona í keppni hinna bestu sem þeir hafa svo oft sagst geta unnið. Það er ekki nóg að vera bara góður á sinni þúfu og öskra þaðan eins og galin belja. Til að maður taki Arsenal alvarlega sem stórveldi í evrópskri knattspyrnu verða þeir að sýna eitthvað í Evrópu eins og m.a.s. Liverpool hefur gert. Kannski maður sjái líka Chelsea gera góða hluti því þeim tókst að vinna sinn fyrsta útileik í ár og það þýðir að ef þeir klára alla heimaleikina sýna héðan í frá er öruggt að þeir verða í tveimur af efstu sætum riðilsins. Eini sjensinn væri sá að allir leikirnir endi með heimasigrum nema hvað eitt liðið tapaði öllum leikjunum sínum og þá gætu þeir fallið út á markatölu – afar ólíklegt.
Mínir menn byrjuðu hins vegar vel og verð ég að segja að það er gaman að sjá menn eins og Fortune, Silvestre og Djemba skora. Butt á nú alltaf mörk af og til en það er líka gaman þegar hann skorar. Ég var reyndar ekki nógu ánægður með að Nistelrooy komst ekki á blað, ekki það að ég hafi verið ósáttur við frammistöðu hans, heldur var ég að vona að hann tæki markakóngstitilinn í CC aftur í ár eins og í fyrra. Það er nú reyndar nóg eftir af keppninni en menn verða nú helst að skora í hverri umferð ætli þeir að hirða þennan titil.
Það verður líka gaman að sjá hvernig þetta nýja (gamla) fyrirkomulag með 16 liða úrslitin kemur út. Ég hugsa að þetta skili okkur kannski ekki endilega titlinum til bestu liðanna heldur þeirra sem toppa á réttum tíma. United hefur nú alltaf verið sterkt á því sviðinu og því er ég vongóður með áríð í ár en ég held nú að þeir eigi eftir að sakna Verons þegar stóru liðin fara að koma. Vonum bara að Kleberson verði orðinn góður fyrir 16 liða úrslitin og Ronaldo fái smá reynslu þangað til.
Ég var raunar mjög hissa á því að Ferguson skildi ekki nota hann á þriðjudaginn en kannski var hann að spara púðrið fyrir helgina. Það er líka mikilvægt að koma Fletcher aðeins inn í þetta lið enda er þar víst kominn maðurinn sem á að leysa Beckham af á hægri kantinum á næstunni. Hann átti a.m.k. góða innkomu í leiknum og sýndi frábæra takta inn á milli en reyndi kannski fullflókna hluti af og til.
Fyrirlestrar...
...geta verið mjög leiðinlegir og í augnablikinu sit ég í einum slíkum. Það hafa verið mjög fínir fyrirlestrar í morgun en þetta er nú alveg að drepa mig. Kannski maður þrauki og sjái hvort þetta skáni ekki í næsta tíma.
Hafsteinn Þór Hauksson...
...fær sérstakar hamingjuóskir í færslu dagsins þar sem hann var kjörinn formaður SUS um síðustu helgi. Til hamingju Haffi.
Heiðar og Fríða...
...fá hins vegar ósk um lærdómsríka og skemmtilega dvöl í Skíriskógi næsta árið en þau hafa bæði hafið framhaldsnám í Nottingham a.m.k. næsta árið. Þau hafa víst þegar lagt drög að því að fara á leiki í ensku og er það vel. Vonum bara að Brynjar Björn fái flugufrið fyrir hinum íslensku nágrönnum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli