22. sep. 2003

Enn væla Arsenalmenn
Er ekki í lagi með þennan Wenger aumingja. Hann heldur því fram að Vieira hefði ekki átt að fá gult vegna þess að Nistelrooy byrjaði. Ég skal, eftir að hafa séð þetta aftur, viðurkenna að hann fór fremur harkalega í þennan skallabolta þarna á undan en hefði Vieira farið í boltann í staðinn fyrir að hugsa um að halda Ruud frá með því að standa kyrr og beygja sig hefði þetta líklega orðið venjulegt skallaeinvígi. Auk þess sem Ruud fékk gult spjald fyrir viðureignina. Málið er hins vegar það að Vieira var heppinn að sleppa með bara gult fyrir þetta væskilslega hefnispark og það skiptir engu máli hvort hann hitti eða ekki, það á að gefa mönnum rautt fyrir svona. En Arsenalmenn höfðu ekki sagt sitt síðasta orð því eftir að vítaspyrnan var dæmd í lokin slepptu þeir alveg virðingunni og skitu á sig. Ég skal verða fyrsti maðurinn til að viðurkenna að þetta var fremur harður dómur en reyndar sér maður þetta ekki frá eins góðu sjónarhorni og Bennett dómari. Engu að síður fannst mér mjög hart að dæma vítaspyrnu miðað við myndirnar. Arsenalmenn, bæði leikmenn og áhangendur ættu hins vegar að skammast sín fyrir framkomu nokkurra leikmanna í lok leiksins og er ég þar fyrst og fremst að tala um leikmenn eins og Keown, Lauren, Parlour og Cole sem gerðu allt sem þeir gátu til að æsa Nistelrooy upp því þeir vissu að hann þyrfti bara eitt lítið gult spjald og þá fengi hann rautt.

Arsenalmenn hafa sl. ár talað um að þeir séu lagðir í einelti af ensku pressunni og enska knattspyrnusambandinu, jafnvel almannarómi. Í gær sáum við hvers vegna.

Aðrir virðast vera sammála um það að ekki aðeins séu þeir grófasta liðið í deildinni heldur líka mestu dómaravælukjóarnir. Það eru yfirleitt 2-3 leikmenn Arsenal komnir í kringum dómarann um leið og hann flautar til að heimta spjald á þann brotlega og eru Vieira vælukjói og Ashley Cole yfirleitt fremstir í flokki en Ljungberg, Pires og Henry eru duglegir líka auk Keown. Vona bara að myndbandsnefnd knattspyrnusambandsins setji alla þessa aumingja í bann því þeir eiga það skilið.

En hvað leikinn snertir þá fannst mér þetta nokkuð sanngjörn úrslit. Hvorugt liðið spilaði almennilegan fótbolta, voru bæði hrædd við að sækja en þó voru Arsenalmenn slappari enda á útivelli. Ruud átti að klára skallann í fyrri hálfleik og að sjálfsögðu vítið í lokinn en hann virðist vera eitthvað ragur við Lehmann greyið. Málið er hins vegar það að Arsenal er ekki að byrja vel í ár og allir vita að endaspretturinn er yfirleitt slakur hjá þeim (nema kannski vorið 2002). Mínir menn hafa hins vegar yfirleitt ekki komist í gang fyrr en eftir áramót. Ég held því að baráttan í ár muni standa á milli United, Chelsea og kannski Arsenal ef þeim tekst að halda sér inni á vellinum. Ég held að ef mínir menn komast ekki í rosagír næsta mánuðinn þá muni Chelsea hirða titilinn.

Skólinn...
...er helvíti fínn þessa dagana. Ég er bara að koma mér á óvart með því að mæta og held mér meira að segja vakandi í sumum fyrirlestrum en eins og ég hef líklega áður sagt hér á síðunni er ég ekkert sérstaklega hrifinn af fyrirlestrum sem kennsluformi. Það er verst hvað það er ófyrirsegjanlegt hverjir halda góða fyrirlestra og hverjir vonda.

Engin ummæli: