14. sep. 2003

Réttir
Þá er maður kominn heim eftir réttirnar þar sem tekið var hressilega á því. Ég lagði af stað á miðvikudagskvöldið og var kominn að Steinsholti undir miðnætti. Ég lagði síðan af stað upp úr hádeginu á fimmtudag á móti fjársafninu og fjallmönnum ríðandi með gutl í pela. Eiríkur Gestsson höfðingi ætlaði með mér en það kom upp úr dúrnum að honum er illa við smá rigningu og rok og sneri hann því við eftir hálfa leið eða svo og náði mér reyndar aldrei. Ætli maður verði ekki að segja honum það til varnar að hann þurfti að ríða töluvert lengri leið en ég en það er nú samt hálf lélegt að klára ekki það sem maður byrjar á. Hann fékk enda að heyra það þegar ég hitti hann á föstudeginum.
Á föstudeginum voru síðan réttirnar sjálfar þar sem dagurinn byrjaði á því að riðið var í réttirnar. Að sjálfsögðu var peli með í för, einn frekar en tveir. Síðan var drukkið og sungið og loks var okkar fé rekið heim að bæ. Síðan fengum við dýrindis kjötsúpu og loks var haldið til réttamjalta sem er nú orðinn árviss viðburður í mínu lífi. Þar var að sjálfsögðu hafður peli meðferðis og gengu mjaltirnar örugglega hraðar fyrir vikið. Loks var klikkt út með frábæru réttaballi í Árnesi þar sem hinir stórskemmtilegu Papar spiluðu fyrir dansi. Þetta er í annað skiptið í röð sem þeir spila og ég get svarið það að þeir eru alltaf að verða betri. Í fyrra voru þeir bestir og því eru þeir líklega bestari í ár. Síðan svaf maður hressilega út í gærmorgun og eftir hádegið komum við hestunum í haustbeitina. Síðan var haldið í bæinn þar sem beið okkar þrítugsafmæli.

Rakel...
...bekkjarsystir mín er þrítug í dag og hélt upp á það í gær. Teitin var haldin í lögreglusalnum í Brautarholti, þ.e. þeim neðri sem ku vera félagsaðstaða lögreglumanna. Þar voru frábærar veitingar og ágætis stemming. Var þreyttur eftir réttastand og skreið heim í bólið um hálftvöleytið. Sofnaði áður en hnakkinn snerti koddann. Til hamingju með daginn Rakel.

Í dag...
...stóð síðan til að ég færi í Borgarnes til að kjósa Hafstein félaga minn til formanns S.u.s. en ég kemst því miður ekki vegna anna og verð ég að vona að það komi Hafsteini ekki í koll. Ég verð alla vega með feitt samviskubit ef hann fær ekki kosningu en síðast þegar ég vissi var ekki um neitt mótframboð að ræða og því líklegt að hann fái örugga kosninu. Gangi þér vel Haffi.

Engin ummæli: