Réttir
Í kvöld eða á morgun legg ég af stað í réttirnar árlegu en það eru Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi. Við gamli ásamt Eika Gests, Arnóri í Þrándarholti og líklega Silla í Steinsholti ætlum að ríða á móti safninu á morgunn fimmtudag og síðan verða réttirnar sjálfar á föstudaginn með allsherjar gleði um daginn og síðan verður réttaball um kvöldið ef ég þekki liðið rétt. Annars hef ég beilað á réttaböllunum síðustu tvö ár vegna þreytu en ég ætla nú ekki að láta það koma fyrir mig aftur. Á fimmtudagskvöldið ætla síðan Halldór, Arnar og Ýr að koma og stefnan er að þau ríði með okkur í réttirnar. Svo verður að sjálfsögðu kjötsúpa og hangikjöt um kvöldið og traditional réttamjaltir með öllu tilheyrandi.
Um einkalíf stjórnmálamanna
Síðustu daga hefur verið mikil umræða hérlendis um það hvort fréttir af umferðarlagabrotum þingmanna séu fréttaefni. Í fyrsta skipti á minni löngu ævi held ég að ég hafi verið sammála þeim auma manni Gunnari Smára Egilssyni sem taldi þetta vera rof á friðhelgi einkalífs þessara manna. Hann taldi að aðeins væri fréttaefni þegar þessir menn brytu af sér í opinberu starfi og er ég að nokkru leyti sammála því. Mér finnst nú líka að það megi láta það flakka ef menn eru dæmdir til fangelsisvistar fyrir glæpi eins og ófrjálsi frjálslyndi þingmaðurinn. En trúverðugleiki fréttastofu Stöðvar 2 hefur beðið alvarlega hnekki nú þegar þeir hafa á stuttum tíma sent út þessa frétt og slegið annarri frétt á frest vegna þess að það hefði getað skaðað eiganda Stöðvar 2 hefði hún verið send út um leið og hún var tilbúin. Líklega hefur þetta orðið til þess að margir af bestu fréttamönnum stöðvarinnar hafa látið af störfum þar. Maður getur nú fyrirgefið kommastýrða ríkisbákninu við Efstaleiti svona yfirsjónir - þeir vita nú einu sinni ekki betur greyin. Það magnaðasta sem ég hef heyrt í því útvarpi var þegar það hringdi ein miðaldra kona í síðdegisútvarpið og vildi tilnefna Mörð Árnason sem kynþokkafyllsta mann ársins. Ætli hún sé blind og heyrnarlaus?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli