Lestur
Nú er hafinn stífur próflestur og reynir maður að sitja við a.m.k. 4 klst á sólarhring auk þess að vera í skólanum frá 8-16. Þetta er reyndar í fyrsta skipti sem skipuleggjendum námskeiðs í læknisfræði tekst að halda manni uppteknum við nám og kennslu allan daginn. Yfirleitt hefur verið dauður tími frá hádegi til seinniparts en nú er þetta mjög vel skipulagt og maður fær mikið út úr hverjum degi. Kennarar eru einnig viljugri að kenna (það hefur í alvöru verið vandamál) og deildar- og aðstoðarlæknar eru einnig miklu viljugri en áður að rekja úr manni garninar eða útskýra flókna hluti. Nú er ég á fullu að lesa lungnalæknisfræði og geri ráð fyrir að ljúka því í kvöld eða á morgunn og þá verður ónæmis- og gigtarsjúkdómar teknir fyrir. Þeir sem hafa sérstakan áhuga á lesskipulagi mínu er bent á að frekari upplýsingar má nálgast í síma 58-12345.
Handboltinn
Helvítis! Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar í handbolta. Ég þoli ekki þegar Svíar og Þjóðverjar vinna eitthvað. Það er einhver svona yfirlætiskennd í íþróttamönnum þeirra sem fer í mig - svona ubermenschensyndrome sem ég get ekki skilgreint. Sem betur fer eru ekki allir einstaklingar af þessum þjóðernum haldin þessum kvilla enda væru Svíar og Þjóðverjar þá almennt óþolandi. Ég þekki hins vegar bæði skemmtilega Þjóðverja og Svía þannig að þetta er ekki almennt vandamál.
Boltinn
Fjandans Nallarnir misstíga sig bara ekki neitt. Ná alltaf að grísast á sigur hvernig sem þeir spila. Það eru nú reyndar stórmeistarabragur á slíku en gallinn er bara sá að Arsenal eru engir stórmeistarar. Vinna einn og einn titil þegar United gengur illa en geta raunverulega ekki rassgat eins og sést á leik þeirra í Meistaradeild Evrópu. Nú geta menn gasprað að þeir hafi unnið Inter 4-0 úti. Basel sló líka Liverpool út úr Meistaradeildinni í fyrra sko.
En nú kalla lungun í mig. Þar til næst félagar!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli