Feministar :)
Nú er ég mikill jafnréttissinni og þar af leiðandi fylgjandi jafnrétti karla og kvenna. Ég er sérstaklega fylgjandi því að konur megi lifa lífi sínu eins og þeim sýnist. Ég get því vel skilið að femínistar berjist fyrir því að karlrembur og afturhaldsseggir verði kjöldregnir og stjaksettir af kvenkyns lögfræðingum í jakkafötum sem pissa standandi í þvagskál. En það er eitt við femínista sem ég hef aldrei skilið og það er eilíf barátta þeirra fyrir því að konur hætti að lifa lífi sínu sínu eins og þeim sýnist. Þær eru alltaf að setja út á aðrar konur fyrir að vera "stereótýpískar". Konur mega ekki lengur raka sig undir höndunum, ganga í kjólum eða pilsum, greiða sér, mála sig, punta sig, púðra sig, plokka sig, snyrta sig, snurfusa sig eða hvað þetta allt nú heitir.
Hvernig getur það farið saman að berjast gegn sjálfsákvörðunarrétti konu til að líta út eins og henni sýnist og að berjast fyrir mannréttindum kvenna? Jú, þær eru nefnilega að lifa eftir ímynd hins fullkomna kvenmanns sem karlmenn hafa skapað. Hvað þá!!? Haldið þið í alvöru að einhver karl úti í heimi, segjum bara að hann heiti Hannes, hafi einn daginn staðið upp frá leiknum í sjónvarpinu og sagt við konuna sína sem við skulum kalla Katrínu: "Heyrðu Kata mín, heldurðekki að það væri meira sexý ef þú værir sköllótt undir höndunum og á leggjunum. Trítlaðu nú inn á bað, druslan þín, og Gilettaðu sjálfa þig aðeins"? Nei, það eru sko ekki karlar sem hafa fundið upp allar þær fáránlegu athafnir sem konur stunda í myrkviðum snyrtistofanna, heldur kerlingarnar sjálfar.
Feminístar eru ekkert annað en fasistar upp til hópa sem eru einmitt að gera jafnréttismálum kvenna mikinn óleik - þær vilja steypa konur í karlmannlegt form. Konur eiga að ganga í buxum, hætta að vaxa á sér fótleggina, hætta að raka á sér handarkrikana og helst að láta sér vaxa skegg. Ef við lítum á sögu mannkynsins hafa þeir sem hafa skarað fram úr, einmitt verið þeir sem hafa skapað sér sérstöðu, verið öðru vísi, fetað ótroðnar slóðir. Ég held að eina leiðin fyrir konur til áhrifa og valda sé einmitt að beita öðrum áherslum en við karlarnir, vera klárari en við, skera undan okkur völdin á meðan við sofum á verðinum. Þannig ná þær fram raunverulegu jafnrétti eða jafnvel öfugu misrétti sem mundi á fallegri íslensku kallast KVENRÉTTINDI.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli