Ég mæli með...
...bakþönkum Guðmundar Steingrímssonar á Fréttablaðinu í dag. Merkilegt hvað Guðmundur er skemmtilegur penni ef maður hefur það í huga að hann er sonur einhvers leiðinlegasta stjórnmálamanns Íslandssögunnar (skilgreind sem sá tími sem ég man eftir). Guðmundur talar um bankarán á Íslandi og óendanlega heimsku sumra bankaræningja. Bakþankar Guðmundar er þeir langskemmtilegustu og er ég löngu búinn að gefast upp á að reyna að lesa aðra. Stundum asnast ég reyndar til að lesa bakþanka Þráins Bertelssonar og get þá örsjaldan brosað út í annað en sjaldan hlæ ég upphátt. Man reyndar ekki eftir að hafa séð nýlegan pistil eftir Þráinn – ætli hann sé hættur?
Vaka...
...vann í vinsældakosningu Háskólans og má segja að þar hafi borið sigur úr býtum “lögulegasti kúkurinn í klósetti íslenskrar stúdentapólítíkur” svo maður steli nú frasa Sverris Stormskers. Síðan ég hóf nám í Háskólanum hefur bilið milli fylkinga greitt skatt félagshyggjunar svo átakanlega að ekki er lengur hægt að greina nokkurn mun á áherslum fylkinganna. Mál málanna í íslenskri háskólaumræðu var trompað út úr kosningabaráttunni með einhuga samkennd fylkinganna um andstöðu gegn skólagjöldum. Nú fyrst er Vaka orðin brjóstumkennanleg enda hafa þeir látið Röskvu draga sig á villigötur félagshyggjugettósins. Það merkilegasta er þó að sjá Heimdellinga í fylkingunni kyngja stolti sínu og fylgja þessari stefnu Vöku eins og blindir kettlingar.
Vökufólk – það er ekki nóg að vinna, bara til að vinna. Þið verðið að vinna á réttum forsendum. Ef þið ætlið að standa undir nafni sem fylking hægrisinnaðra stúdenta verðið þið að breyta afstöðu ykkar, setja undir ykkur höfuðið og koma af stað heilnæmri umræðu um betri rekstur HÍ. Það má byrja á því að draga úr eða skrúfa fyrir styrki háskólans til þeirra fylkinga sem hafa dregið háskólapólitíkina í saurinn – Röskvu og Vöku – og síðan hefja gagnvirka og málefnalega umræðu um skólagjöld í Háskóla Íslands. Það er fáránlegt að hluti af skólagjöldum mínum fari í það að kosta rekstur þriggja fylkinga í háskólapólítíkinni, sérstaklega í ljósi þess að það væri alveg eins hægt að steypa þessum framapoturum í eina fylkingu og hafa bara rússneska kosningu. Það mundi engu breyta!!!
Viðar...
...er eitt spurningamerki þegar hann samsinnir mér og einhverjum öðrum sem mig grunar að sé Ármann Jakobsson. Merkilegt að samsinna okkur báðum í einu og hlýtur það að benda til þess að ég sé sammála Ármanni í fyrsta skipti á minni löngu og viðburðaríku ævi. Annars er ég ekki eins harður og Bjúgan því mér finnst nú fullharkalegt að rukka 400.000 kall fyrir önnina í HÍ, sérstaklega í ljósi þess að hann þykir nú ekki merkilegur skóli á erlendan mælikvarða. Það er ekki vegna þess að efniviðinn vanti, það er vegna þess að menn hafa ekki frelsi til að taka rekstur skólans til gagngerrar endurskoðunnar. Ég held við ættum að setja Háskólann í öndvegi en ekki slugsana sem þar stunda nám (að sjálfsögðu er ég þar meðtalinn).
Mínir menn...
...eru að missa af lestinni í Englandi og verður sárt að sjá á eftir dollunni í hendur Nallanna. Sérstaklega þar sem Edda og stór hluti fjölskyldu hennar heldur með Arsenal. Annars verður maður bara að vona að Arsenal taki sína alkunnu marsogapríldýfu og mínir menn klári tímabilið af krafti að vanda – þá getur allt gerst.
Árshátíð FL
Félag læknanema heldur sína árlegu okurárshátið í kvöld í Skíðaskálanum Hveradölum (hafið þið nokkurn tíma séð mann á skíðum þarna). Það kostar litlar 4000 krónur inn fyrir FL-félaga og 6000 krónur fyrir utanfélagsmenn og maka. Það gerir litlar 10000 krónur fyrir mig og makann að viðbættum vínveitingum og leigubílskostnaði. Ætli kostnaður kvöldsins hlaupi ekki á 15000 krónum sem er helvíti blóðugt fyrir fátækan námsmann eins og mig. En ölmusukerfi íslenska menntakerfisins kemur mér til hjálpar og reddar málinu. Þetta hefst allt saman og maður lítur björtum augum á framtíðina því eins og almenningur “veit” eru læknar með fleiri hundruð þúsunda í laun á mánuði. Sá sem fer í læknisfræði til að græða peninga létt verður fyrir álíka miklum vonbrigðum og sá sem leitar að maka á nektardansstað – það er meira gaman að taka utan af pakkanum sjálfur!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli