14. feb. 2004

Árshátíð FL
Var í gær eins og ég minntist á á blogginu í gær. Það er skemmst frá því að segja að aldrei á ævinni hef ég upplifað eins slaka árshátíð. Ekki nóg með að hátíðin væri haldin á þeim ömurlega stað Skíðaskálanum í Hveradölum sem er sjálfsagt ágætis búlla en rúmar engan veginn þá 450-500 manns sem þarna voru samankomnir. Þetta varð til þess að fyrsta og annað árið voru sett afsíðis og sáu því ekki dagskrá árshátíðarinnar. Sumir mundu segja að þeir hafi verið lánsamir því skemmtiatriði læknanema náðu sögulega ömurlegu lágmarki. Fyrsta árið reið á vaðið með sérstaklega óviðeigandi klámvísusöng sem gerði víst lukku á einhverju menntaskólaballi í fyrra en var ekki alveg að ganga fyrir fullorðið fólk.
Annað árið kom síðan með myndband sem var bara nokkuð skemmtilegt og fá þau alveg eitt klapp fyrir það.
Þriðja árið sendi á svið ónefndan gamlan bekkjarfélaga minn sem fór alvarlega yfir strikið. The line is a dot to him. Hann fór á sviðið fyrir framan fullorðið fólk, þ.m.t. heiðursgesti og handhafa kennsluverðlauna sem voru allt kennarar í læknadeild. Þar sagði hann mjög grófa klámbrandara sem væru varla fyndnir í steggjapartýi. Var óánægja viðstaddra svo rosaleg að það endaði með því að fólk var farið að púa en því miður ekki nóg til að "skemmtikrafturinn" hefði vit á að yfirgefa sviðið. Hann kláraði "atriðið" sitt og yfirgaf salinn, viðstaddir sátu sem steinrunnir. Síðan tók einhver vitleysingur upp á því að henda um koll skjávarpanum og við það fóru einhverjar snúrur úr sambandi. Þetta varð til þess að hljóðkerfið gaf sig eitthvað og tók a.m.k. klukkustund að laga það. Það tókst samt ekki að koma atriðið fjórða ársins í gang þannig að fimmta árið var látið rúlla.
Atriði fimmta ársins var eitt af örfáum hlutum sem gerðu árshátíðina bærilega. Frábærlega fyndið myndband þar sem notuð var hugmyndin "Við hjálpum þér að láta það gerast" úr Síma auglýsingunum. Heppnaðist mjög vel og var mjög fyndið. Elías Hannes Guðbrandsson fór á kostum í myndbandinu. Til hamingju með það Hannes litli.

Mínir menn...
...fóru á kostum í dag gegn Árna Gauti og félögum í Man. City. Scholes skoraði fyrsta markið fyrir United í fyrri hálfleik en 10 mínútum seinna fékk Gary að líta rauða spjaldið. City sótti stíft í upphafi seinni hálfleiks en Howard hélt okkur á floti eins og oft áður. Nistelrooy setti síðan annað mark og þá fóru mínir menn í gang. Ronaldo skoraði stuttu seinna eftir að Árni Grautur hafði varið glæsilega skot utan úr teig. Ronaldo fylgdi hins vegar vel á eftir. Síðan skoraði Tarnat fyrir City en það tók ekki nema örstutta stund fyrir mína menn að setja 4 markið, Ruud gerði það. Fowler setti síðan annað mark City í lokin. Maður leiksins var Howard held ég en Keane, Ronaldo og Ruud stóðu líka fyrir sínu. Kannski við tökum bara bikardolluna úr því við er að missa af lestinni í deildinni. Greyið Árni gat nú lítið gert í þremur síðustu mörkunum en ég sá ekki það fyrsta sem Scholes gerði.

Engin ummæli: