31. jan. 2004

Vaknaður aftur!
Síðan hefur legið í dvala síðustu 10 dagana vegna leti og andleysis. Ekki get ég nú sagt að andinn sé að koma yfir mig núna en ég ætla alla vega að reyna að skrifa eitthvað smávegis sem oftast.

Handboltinn
Strákarnir okkar voru hrikalega lélegir á EM en það er hægt að hugga sig við það að þrátt fyrir ömurlega frammistöðu förum við samt á Ólympíuleikana og getum hefnt harma okkar þar. Það áttu næstum allir leikmenn liðsins hræðilegt mót ef undan eru skildir, Rúnar Sigtryggs, Garcia, Gummi hlaðborð og Reynir í markinu. Svo var Snorri Steinn líka mjög góður miðað við fyrsta alvöru tækifærið í stórmóti. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Hinir óþolandi Svíar stóðu sig afburða illa líka og komast ekki á Ólympíuleikana og því erum við loksins lausir við þessa helv. óþolandi grísarapunga.

Boltinn
Mínir menn voru að leggja Southampton að velli í ensku á afar ósannfærandi hátt. Þrjú stig eru hins vegar þrjú stig þannig að ég get ekki verið annað en sáttur. Saha átti víst frábæran fyrri hálfleik og skoraði meðal annars ágætis mark úr aukaspyrnu. Hann átti síðan skotið sem markið hans Scholes kom upp úr en auk þess nokkrar afburða sendingar. United átti að fá a.m.k. tvö víti í seinni hálfleik en fékk hvorugt. Það fyrra var fyrir hendi á Fernandes þar sem hann var í varnarvegg rétt fyrir innan vítateigslínuna og varði með höndum. Dómarinn færði brotið út fyrir teig og mínir menn skoruðu upp úr aukaspyrnunni. Reyndar var það rangstöðumark en réttlætinu var fullnægt. Stuttu seinna klippti gamli United-drengurinn Danny Higginbottam Nistelrooy niður í teignum við endamörkin en ekkert var dæmt.
Southampton voru óheppnir að jafna ekki því þeir áttu fullt af færum. Howard varði glæsilega frá Ormerod sem komst einn inn fyrir. Síðan langskot frá Anders Svensson og loks stórkostlega hjólhestaspyrnu Beatties sem ég skil bara ekki hvernig hann fór að.
Saha stóð sig vel í fyrsta leik og Fletcher og Ronaldo voru ógnandi sem og Scholes sem átti nokkur ágætis skot. Hlakka til vorsins þar sem fótbolti verður ljósið í myrkri lestrar og streitu.

Afmælisbörn janúarmánaðar sem gleymdust!
Óttar bróðir og Davíð Smári Hannes sem urðu 33 ára og 27 ára þann 7. janúar.
Sveinn Pálsson afi hennar Eddu sem varð áttræður þann 10. janúar.
Þór Gunnlaugsson sem varð 25 ára þann 21. janúar.
Kobbi fruma sem varð 26 ára þann 27. janúar.
Ef ég er að gleyma einhverjum þá er hann/hún beðin/-n afsökunar.

Lifið heil

Engin ummæli: