5. feb. 2004

Háskóli Íslands og skólagjöld
Loksins, loksins þorir einhver að skoða þessi mál. Auðvitað á Háskólinn að innheimta skólagjöld. Menntunarskylda ríkisins nær bara upp að vissu marki og ég get ekki sagt að það hafi verið beinlínis hollt fyrir Íslendinga að hafa aðganginn að Háskólanum eins og hann hefur verið. Mörg hundruð nemenda hafa hafið nám að hausti en dottið út úr námi þegar líður á veturinn með ærnum kostnaði. Auk þess virðist það vera í tísku í mörgum deildum að fresta prófum úr hófi fram. Það er ekki hlutverk ríkisins eða Háskólans að vera félagsmiðstöð fyrir íslenska slugsa sem nenna ekki að vinna og ákveða því að fara í Háskólann fyrir skít og kanil, taka námslán á frábærum kjörum og dúlla sér svo við þriggja ára háskólanám í fimm til sex ár.
Það eru til margar lausnir sem mundu tryggja frambærilegum en fjársnauðum nemendum tækifæri til háskólanáms. Styrkjakerfi væri til dæmis ein lausn. önnur lausn væri að bjóða fólki ódýrt háskólanám til að klára eina gráðu á lágmarkstíma en eftir það yrði það að borga brúsann að einhverju marki. Einnig væri hægt að rukka fólk aukalega fyrir að taka upp próf eða fresta þeim, t.d. 15000 kall fyrir prófið. Sumir mundu segja að þar væri verið að mismuna þeim sem eiga erfiðara með að læra. Hey, töff lökk, háskólanám er fyrir þá sem geta lært, ekki stjórnarskrárbundinn réttur fyrir hvern sem er.
Það er kominn tími til að við hættum að lepja af ríkisspenanum og förum að taka ábyrgð á eigin lífi. Háskólanám er dýrt spaug og íslenskir stúdentar hafa misnotað það "ljúfa líf" sem ríkið hefur skaffað okkur sl. ár. Við höfum verið sjálfum okkur verst og eigum skilið að það sé skorið niður.
Ég segi, fjöldatakmarkanir í allar deildir. Meiri kröfur til að grisja út slakari nemendur. Meiri kröfur til kennara um að standa sig. Meiri kröfur til ríkisins að verðlauna þá sem standa sig en ekki splæsa sköttum þeirra sem nenna að vinna í þann hluta háskólastúdenta sem gera grín að heiðvirðum borgurum með letilífi og próffrestunum æ ofan í æ.
Með þeim peningum sem spöruðust væri hægt að byggja upp háskóla sem væri í alvöru samkeppnishæfur við erlenda háskóla.
Já og að lokum: Hættið að eyða peningum háskóla, sem sífellt kvartar undan fjárskorti, í ópraktísk hús þar sem fleiri hundruð fermetra fara til spillis vegna duttlunga hæfileikalausra arkitekta. Maður þarf ekki annað en horfa á gróðurhúsið í Vatnsmýrinni eða krossfiskinn Odda þar sem hvöss horn og fáránlegur stigi eyða dýrmætum fermetrum. Byggjum hagkvæmt, byggjum kassa. Aðalbygging Háskólans er glæsilegt hús í fallegu umhverfi og er alveg nóg sem andlit háskólans. Það þurfa ekki allar byggingar hans að vera fallegar, bara nothæfar. Flestar þeirra eru bara fallegar en varla nothæfar.
Skólagjöld í Háskóla Íslands, útrætt mál!!!

Landspítalinn...
...er síðan annar ríkisbáknsbrandarinn. ég ætla ekki einu sinni að byrja að hella mér út í það. Við skulum bara segja að Landspítali Háskólasjúkrahús er sennilega verst rekna ríkisstofnunin.

Engin ummæli: