29. feb. 2004

Heimskir kvikmyndagerðarmenn!
Ótrúleg ósvífni í þessum hæfileikalausu fíflum. Þeir hafa í mörg herrans ár lapið spenann á Ríkisútvarpinu og svo loksins þegar skrúfað er fyrir endalausa fjáraustra úr Efstaleitinu þá voga þessir aumingjar sér að mótmæla opinberlega með blaðaskrifum og sjónvarpsröfli. Þessir menn mótmæla því að ríkið skuli ekki borga fyrir ömurlegar heimildamyndir sem enginn nennir að horfa á. Það er eins og þeir telji að RÚV hafi skuldbundið sig til að versla allar innlendar heimildamyndir sem eru í smíðum á hverri stundu. Það ber hæfileikaleysi þessara vælukjóa glöggt vitni að það skuli ekki nokkrum heilvita manni detta í hug að kaupa þetta drasl af þeim, aðeins höfuðlausa hernum í Efstaleiti. Guði sé lof fyrir píparann sem stöðvaði hriplekt fjárhagsniðurfall Ríkisútvarpsins.

Mínir menn...
...eru að bregðast mér í vetur. Ekki nóg með að ég þurfi að horfast í augu við heila tengdafjölskyldu sem heldur að Rassenal séu bestir heldur ætla þeir nú að tapa í meistaradeildinni fyrir einhverjum súkkulaðibrúnum stelpustrákum frá Portúgal.

Engin ummæli: