25. feb. 2004

SVR...
...er merkileg stofnun. Borgarstjórn og fleiri bjálfar rembast við að reka almenningssamgöngur í Reykjavík með ærnum tilkostnaði en enn sem komið er hefur ekki nokkur Íslendingur sem ekki er bílprófslaus ýmist sökum aldurs eða áfengisneyslu fengist til að nýta sér þær. Áfram halda þó þessir þveru einfeldningar að reyna að troða upp á einkabílasinnaða Reykvíkinga þessu brjóstumkennanlega almenningssamgöngukerfi. Meðal nýjunga sem stjórn SVR hefur boðið upp á er leiðakerfi og tímarammi sem dreginn er upp að sumri til en stenst síðan engan veginn þegar Íslands stutti vetur bankar á dyrnar. Einnig hafa þeir tekið upp á þeirri frábæru nýjung að hafa biðskýli strætisvagnanna hvorki vind- né vatnsþétt. Þetta hefur orðið til þess að þá sjaldan að einhverjum ólánsömum Reykvíking dettur í hug að nota almenningssamgöngur (yfirleitt vegna þess að bíllinn hans fer ekki í gang á köldum vetrarmorgni eða þá hann nennir ekki að moka hann upp úr skaflinum) þá þarf hann að bíða í korter eftir allt of seinum strætó á berangri strætóskýlisins. Nei, þá taka Íslendingar sko frekar leigubíl. Ég er ekki frá því að það yrði hagkvæmara fyrir SVR að gerast leigubílafyrirtæki, það er alltént ekki mikið dýrara að taka leigubíl endrum og eins en að taka strætó!!!

Boltinn rúllar í kvöld
Mínir menn gera sér dagamun í kvöld og heimsækja Púrtverja í Meistaradeild Evrópu. Vonandi gengur það vel en maður þorir nú varla að rækta með sér slíkar vonir. Kannski Gary Neville setji þrennu og skjóti mínum mönnum í 8 liða úrslitin.

Skólinn
Tíminn líður hratt, a.m.k. þegar maður er ekki að bíða eftir strætó, og ég á nú aðeins hálfa fjórðu viku eftir af kúrsus. Þeim mun ég eyða á hjartadeild Landspítalans utan síðustu vikunnar sem ég mun verja á Bráðamóttöku sömu stofnunnar. Síðan tekur við enn stífari lestur og gleði fram á vor enda er sennilega vissara að vera vel að sér í læknisfræði þegar maður verður loksins el doctor. Kannski ég hætti bara að blogga og fari að lesa.

Engin ummæli: