Eftirmálar Árshátíðar
Árshátíð okkar læknanema hefur valdið töluverðu fjaðrafoki og hafa gífuryrðin fallið á báða bóga á spjallsíðum læknanema síðustu daga. Vonandi verður þetta atriði til þess að fólk vandar betur valið á þeim sem sjá um atriðin þeirra næstu árin. Ekki það að mér sé ekki drullusama. Þetta var síðasta árshátíð FL sem ég mun sækja, a.m.k. í þónokkur ár.
Læknanemafarsinn
Guð minn almáttugur hvað sumir læknanemar eru skrýtnir. Kannski þeir séu búnir að lesa yfir sig.
Storminum eftir árshátíðina hefur varla slotað þegar ný deilumál skjóta upp kollinum. Nú er það hið alræmda sósíalíska vinnuskömmtunarráðningakerfi læknadeildar sem gerir alla vitlausa og þá sérstaklega undarleg framkoma ráðningastjóra og stjórnar FL. Ég hef aldrei skilið hvers vegna læknanemar gera ekki bara eins og annað fólk og sækja um vinnu. Líklegast er að hæfustu einstaklingarnir verði ráðnir. Vinnuveitendur fara yfir umsóknir og ráða þá sem þeim sýnist. Hvernig getur þetta verið ósanngjarnt? Þeir hæfustu fá vinnu, hinir slakari ekki. Hvort finnst þér lesandi góður eðlilegra að sá sem ekki vinnur í lotteríi læknadeildar en er mjög hæfur starfskraftur eða sá sem kann ekki neitt en fékk góðan drátt í sumarráðningaröð eigi að ganga fyrir í vinnu? Merkilegt.
Ef ég verð einhvern tíma yfirmaður á spítalanum mun ég ekki taka þátt í þessum farsa heldur ráða hæfustu einstaklingana sem sækja um og hananú.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli