30. nóv. 2003

Boltinn
Mínir menn gerðu góða ferð til Grikklands í vikunni og Forlan tryggði þeim sætan sigur og sæti í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fallegt!! Það var hins vegar ekki eins fallegt að horfa á þá tapa fyrir Chel$ky í dag. United gátu ekki neitt fyrr en síðustu tíu mínúturnar þegar Kleberson og Ronaldo voru komnir inn á og ég hef trú á því að við hefðum náð a.m.k. einu stigi ef þeir hefðu byrjað leikinn eða komið fyrr inn á. En hvað um það - allir vita að United toppar eftir áramót og því hef ég engar áhyggjur af þessu. Við tökum dolluna á endasprettinum eins og vanalega.

Akranes
Ég dvaldi frá sunnudegi til föstudags á Akranesi við verknám í svæfingalæknisfræði og líkaði vel. Þetta fag heillar mig mikið eftir þessa stuttu kynningu en spurningin er hvort það sé pláss fyrir tvo svæfingarlækna í sömu fjölskyldunni. Sjáum til, það er svo sem margt annað skemmtilegt að læra innan læknisfræðinnar. Alltént þakka ég Akurnesingum fyrir höfðinglegar móttökur og væri alveg til að koma þangað aftur einhvern tíma.

Engin ummæli: