10. nóv. 2003

Afmælisbarnið
Edda mín er aldarfjórðungsgömul í dag og hefur þegar haldið tvisvar upp á það. Á föstudaginn var hér hjörð af píum á trúnófylleríi og flúði ég til Tóta Trölla...barns í felur. Við drápum slatta af vondum köllum í tölvuleikjum, drukkum bjór og náðum svo í konurnar okkar í bæinn svo þær færu sér ekki að voða. Það kvöld heppnaðist vel.
Í kvöld var síðan komið að fjölskyldum okkar og var foreldrum, ömmum og öfum og systkinum búsettum á Íslandi boðið í Hólmgarðinn til að éta kökur og gefa gjafir. Hún fékk margar fallegar gjafir. Byrjum á uppáhaldsgjöfinni minni en það var veturgamla gæðingsefnið Sindri sem ég gaf henni. Síðan fylltu foreldrar mínir og bræður inn i myndina með reiðbuxum og hjálmi. Foreldrar hennar gáfu henni síðan flísbuxur og námskeið að eigin vali. Magga systir gaf henni vettlinga og veski. Amma og afi gáfu henni tertugræjur, amma hennar og afi gáfu henni glerlistaverk, Svenni bróðir hennar og co. gáfu henni ilmkerti og jólaskraut. Síðan fékk hún að ýmislegt annað frá mörgum vinum og vandamönnum.
Til hamingju með afmælið ástin mín.

Önnur afmælisbörn...
...eru Valdi tengdó sem varð enn eldri í gær, Örvar KJ sem ásamt Sverri Jeremy og Geir Beam hélt upp á afmælið sitt á þeim fágaða stað Café Amsterdam og síðast en ekki síst varð Gylfi Sigríðarson snillingur varð fjórtán á föstudaginn. Til hamingju allir, til hamingju!

Boltinn...
...rúllaði um helgina. Mínir menn héldu áfram að gera Dudek greyið að fífli því annað árið í röð var ósigur Liverpool að miklu leyti honum að kenna. En sigur er sigur og þrjú stig voru sanngjörn að mínu mati. Poolarar voru svekktir yfir því að fá ekki víti í seinni hálfleik og get ég vel skilið þá. Snertingin var þó alls ekki mikil og Pongolle lét sig náttúrlega detta um leið og hann fann snertinguna í staðinn fyrir að klára bara færið eins og sönnum karlmanni sæmir. Soccernet hélt því fram að þetta hefði ekki verið víti en aðrir netmiðlar sem ég hef lesið töldu að um víti hefði verið að ræða. En það eru ekki alltaf jólin þegar maður heldur með Liverpool.
Annars áttu Poolararnir náttúrlega aldrei að klára leikinn ellefu, og ég skil bara ekki af hverju Diouf fékk ekki rautt spjald þegar hann fór með takkann á undan sér í legginn á O'Shea í seinni hálfleik rétt eftir að hann hafði fengið gult spjald. Ég hugsa reyndar að hann hefði ekki mátt taka vitlaust innkast eftir það til að vera rekinn út af enda kippti Húlli honum strax út af eftir þetta. Pongolle hefði því aldrei átt að koma inn á fyrir hann og því aldrei að fá færið í teignum þegar þeir heimtuðu víti. Miðvörðurinn Heskey klúðraði síðan dauðafæri í lokin og við United menn gátum andað léttar. Við erum greinilega komnir með tak á poolurunum. Vonandi væla Kobbi og Golli ekki of mikið í Odense. :)

Identity...
...kom á óvart og er ágætis afþreying fyrir fólk sem þarf að myrða mínútur. Þrír rúlluboltar í mitt markið og einn í skeytin fyrir skemmtilega fléttu.

Engin ummæli: