Afmælisbarnið
Helgi Hrafn Bergmann, snillingur og töffari, er ársgamall í dag og fær hamingjuóskir frá Klakanum. Fyrir þá sem ekki vita er hann bróðursonur minn og býr í Noregi. Í tilefni af afmælinu hefur hann verið að æfa sig að labba sl. daga og er víst orðinn nokkuð sleipur. Til hamingju með daginn frændi, gjöfin þín kemur með ömmu og afa um jólin.
Höfðingi er látinn
Jón Eiríksson eða Nonni frá Steinsholti lést í nótt, níræður að aldri. Jón var föðurbróðir Sigurðar sem ég var lengi vinnumaður hjá og raunar var ég tvö sumur hjá Nonna og systkinum hans, Svenna og Böggu. Nonni var mikill fjölskylduvinur eins og Steinshyltingar allir og með honum er genginn einn fróðasti og minnugasti maður sem ég hef kynnst á minni stuttu ævi. Auk þess var hann mikill íslenskumaður. Heimili þeirra systkina stóð okkur alltaf opið og var okkur jafnan tekið sem höfðingjum. Blessuð sé minning Nonna í Steinsholti.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli