15. nóv. 2003

Stendur Heiðar sig ekki?
Fríða kvartar undan því opinberlega á bloggsíðu þeirra hjúa að Heiðar hafi ekki gert neitt ljótt við sig. Mér finnst nú að Heiðar ætti að einbeita sér meira að því að skoða runna en garðyrkjustörfum úr því að laxkona hans sér sig knúna til að tjá sig um slíkt opinberlega - en það er bara mín skoðun.
Annars er ágætt að frétta af mér. Brjálað að gera í skólanum en nú er ég á Fossvogsspítala við bæklunarlækningar sem eru að koma verulega sterkar inn um þessar mundir.

Afmælisbörn
Mamma og pabbi áttu 39 ára brúðkaupsafmæli í gær. Til hamingju með það. Sigurður Loftsson sumarfóstri minn til margra ára varð fertugur sama dag og Emil krúttíbolla sem er bekkjarbróðir minn og sálufélagi varð 27 ára. Til hamingju með daginn öllsömul.

Engin ummæli: