Það sem er gaman að gera í Garðabæ!
Hjálmar Hjálmarsson, snillingur, ekkifréttamaður og grínari fór á kostum í Djúpu Lauginni á föstudaginn þegar hann tróð upp sem uppistandari. Standið náði þó hámarki þegar Hjálmar söng frumsaminn texta sinn um hvað er skemmtilegt að gera í Garðabæ. Hann hóf forspilið, gerði sig nokkrum sinnum líklegan til að byrja á undurfögrum söng með fallegum texta og hrífandi hrynjandi en þegar allt kom til alls virtist honum ekki hugkvæmast neitt og hætti því við að syngja. Það er nefnilega ekki hægt að gera neitt skemmtilegt í Garðabæ, a.m.k. opinberlega. Hins vegar býr þar reiðinnar býsn af skemmtilegu fólki sem gaman er að heimsækja en maður býður nú sjálfum sér ekki í heimsókn hjá bláókunnugu fólki.
IDOL...
...er að gera alla vitlausa hérna heima. Síðastliðið föstudagskvöld sló þó öll met þegar hartnær hundrað þúsund atkvæði voru greidd í Idolinu. Ég vissi ekki að það væri til svona mikið af unglingum á Íslandi. Annars er þetta það skásta í íslenskri afþreyingardagskrárgerð sem býðst. Silfrið hefur ekki náð sama flugi á Stöð 2 og það gerði á Skjá 1 áður og því nenni ég varla orðið að horfa á það. Ég er reyndar afspyrnuslakur í að horfa á sjónvarp síðan ég var í klásus. Áður gat ég horft á hvað sem er en nú læt ég ekki bjóða mér það, þ.e. hvað sem er. Ég horfi helst á boltann og stundum á fréttir en annars finnst mér orðið meira gaman að lesa bara. Lesa blöðin, lesa fyrir skólann, lesa fyrir mig, lesa fyrir Eddu - bara lesa. Það er gaman og uppbyggilegt.
The Hours...
...er góð kvikmynd enda hlaðin frábærum leikurum. Nicole Kidman fer á kostum í hlutverki geðsjúklingsins Virginiu Wolf, auk þess sem Meryl Streep, Julianne Moore, Ed Harris, Jeff Daniels og fleiri troða upp. Myndin er rosalega þung og ekki fyrir andlega óstabíla að horfa á. En hún er frábærlega leikin, sagan er skemmtileg og leikurinn framúrskarandi þannig að myndin fær sjö rúllubolta í markið. Ekki vegna þess að hún er eitthvað slök heldur af því að hún er ekkert meira spennandi en rúllubolti því markið er gott engu að síður - það þarf ekki alltaf að vera fast.
Boltinn
Englendingar voru í þann mund að skíta á sig á Old Trafford þar sem þeir töpuðu fyrir skemmtilegu liði Dana 2:3. Danir áttu fullkomlega skilið að vinna að mínu mati. Þegar sigurmarkið loksins kom voru þeir búnir að sækja linnulaust seinnihluta seinni hálfleiks og markið lá í loftinu. Sanngjarn sigur Dana var niðurstaðan og það eina jákvæða sem kom út úr þessum leik var frábær frammistaða unglinganna Glens Johnson, Joe Cole og Wayne Rooney og virðist framtíðin björt hjá enska landsliðinu.
Stefan Kretschmar...
...var á Pravda í gær ásamt Fúsa og nokkrum leikmönnum Magdeburgar. Ég ræddi stuttlega við hann og tjáði honum að ég treysti á að þeir flengdu Haukana því þeir væru svo djöfulli leiðinlegir. Hann var alveg til í það og skálaði meira að segja við mig upp á það. Viðkunnalegur náungi þrátt fyrir exotískt útlitið. Áfram Magdeburg.
Spáiði í það að hata Hauka nógu mikið til að halda frekar með einhverjum Þjóðverjum. Hættulegt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli