Á frelsinu má lesa þessa grein
Þar fjallar María Margrét Jóhannsdóttir um heilagan rétt kvenna til að gangast undir fóstureyðingu og telur að konur eigi að hafa algert og heilagt sjálfdæmi í eigin málum. Það er augljóst að Maríu finnst hún eiga rétt á ýmsum fríðindum og kannski krefst hún þess næst að allar konur eigi rétt á nefaðgerð eða fitusogi án þess að nokkur maður fái að gera athugasemdir við það. Síðan á auðvitað að borga allan brúsann úr ríkissjóði í nafni jafnréttis - ég meina strákarnir sem brjóta á sér nefið í slagsmálum fá viðgerð á kostnað ríkisins og offitusjúklingar fá megrandi aðgerðir á kostnað skattborgaranna.
Það sem Maríu í fávísi sinni yfirsést er að lækni er fullkomlega heimilt að neita að framkvæma aðgerð ef hann telur hagsmunum sjúklinga sinna ekki borgið með þeirri aðgerð sem þeir fara fram á að sé gerð. Þá fyrst mundi Landspítalinn okkar fara fram úr fjárlögum ef við mættum bara sjálf ákveða hvaða aðgerðir eða læknisþjónustu okkur hlotnaðist.
Nú gætu margir millilínulesarar ályktað að ég sé á móti fóstureyðingum en því fer fjarri. Ég er mjög fylgjandi því að fóstureyðingar séu leyfðar en þær verða að sjálfsögðu að lúta ákveðnum lögum og reglugerðum. Hagsmunum konunnar og fósturvísins verður að þjóna og því miður eru konur sem ekki eru sérstaklega menntaðar í heilbrigðisgreinum ekki alltaf hæfar til að meta heilsufarslegt ágæti fóstureyðingar þó ég efist ekki um fullyrðingu Maríu súperkonu að konur séu fullfærar um að meta félagslegar aðstæður sínar sjálfar. Þessa heilsufarslegu hagsmuni verður heilbrigðisstarfsfólk að meta fyrir hönd konunnar og að sjálfsögðu er það gert á sem hlutlausastan máta. Raunar held ég að fóstureyðingu, innan þess tímaramma sem þær eru siðfræðilega, lagalega og læknisfræðilega mögulegar, hafi ekki verið synjað sl. 10-15 ár þannig að í raun hefur María ekki yfir neinu að kvarta.
Ég er nú raunar þeirrar skoðunnar að það sé nóg að kona vilji ekki eignast barnið til að fóstrinu sé eytt, að því gefnu að það sé gert innan þess tímaramma sem lögin setja okkur. Ég meina: Viljum við í alvöru gera mæður úr konum sem ekki hafa áhuga á því hlutverki.
María gleymir því líka sem er svo sorglega augljóst að um leið og eitthvað fer úrskeiðis er lækninum kennt um. María segir að "nauðsynlegur hluti þess að vera einstaklingur með ákveðnar þarfir og réttindi er að hafa vald yfir eigin líkama". Það er alveg rétt en í þeim rétti felst ekki réttur til að neyða lækna til að framkvæma aðgerðir á þessum sama líkama. Rétturinn á aðeins við um þann rétt okkar að neita læknisaðstoð en ekki réttinn til að krefjast hennar gegn ráðleggingum læknisins. Ákvörðun um inngrip verður alltaf að byggjast á sannfæringu læknisins að það geri sjúklingnum meira gagn en skaða auk samþykkis sjúklingsins eða nánasta aðstandanda fyrir framkvæmd inngripsins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli