Jæja börnin góð
Ég lá heima í veikindum í dag. Haustið er búið að vera það skrýtnasta í mörg herrans ár. Venjulega er ég ekki veikur nema 1-2 daga á ári en á síðustu 8 vikum hef ég þrisvar verið veikur. Kannski maður drífi sig til læknis fljótlega. :)
Boltinn
Rúðan stóð sig vel í kvöld og henti Skotum út úr keppninni sem þeir áttu ekki heima í. Ruud setti þrjú í leiknum og átti víst stórleik. Svekkjandi að Wales skyldi detta út en ég var ánægður með að Króatar skyldu komast. Svekkjandi að Tyrkir skyldu detta út því þeir eru með svo skemmtilega geðveikt lið.
Annað var það ekki í bili - bið ykkur vel að lifa eða lel að vifa - allt eftir smekk.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli