23. nóv. 2003

Sindri
Við Edda fórum í dag að líta á "son" hennar, hann Sindra. Hann er nú á beit á Hólmahjáleigu í Landeyjum. Það var gaman. Við komum þarna í ljósaskiptunum um hálffimmleytið og röltum einhverja 2 km til að heilsa upp á hann. Hann er nú óttalegur kjáni ennþá og ekki farinn að treysta manninum fullkomlega þannig að við náðum honum ekki nema á mynd. Ég komst reyndar mjög nálægt honum en þegar ég tók mynd af honum close-up leist honum ekkert á blikuna og lét sig hverfa. Við náðum samt af honum einum 10 myndum sem kannski verða látnar ganga á netinu ef menn hafa áhuga.
Á leiðinni austur keyrði fram úr okkur mikill töffari á fallegum upphækkuðum og -gerðum Ford Econoline sem var búinn öllum flottustu græjunum. Í afturrúðinni var þessi áletrun: Sá sem á mest af dóti þegar hann deyr, vinnur! Ég hló svo mikið að það munaði engu að Lancerinn hans pabba fengi að kynnast því hve kalt vatnið er í rangæskum skurðum. Sem betur fer náði ég stjórn á karinu og elti Econolininn.
Annað fallegt sem gerðist í ferðinn var að sjá Vestmannaeyjar svona nálægt á meðan sólin settist við hafröndina og lýsti upp suðvesturhiminninn. Vestmannaeyjabær var fjarskafallegur þar sem hann sást yfir landeyðið vestan við Heimaklett. Tignarleg sjón og sannarlega falleg. Sumir hlutir eru bara fjarskafallegir, þ.e. fallegir úr fjarska.

Boltinn
Mínir menn skiluðu sínu í dag með sigri á Blackburn. Ég er ánægður með að Rúðan skuli loksins hafa skorað í deildinni, að Kleberson skuli vera kominn í gang og að Fortune skuli vera að brillera enda lagði hann upp bæði mörkin í dag. Fallegur maður. Poolararnir halda áfram að valda vonbrigðum en helv. Nallarnir virðast ekki ætla að stíga feilspor fyrr en í vor. Ætli Chelsky vinni þetta ekki? Hvað haldið þið?

Mystic River...
...ku vera á í Massachusetts en mynd með þessu nafni var sýnd kl. 22 í Sambíóunum Álfabakka í kvöld. Svo heppilega vildi til að ég var í salnum og sá þessa snilld. Þetta er ein besta löggumynd sem ég hef séð lengi með skemmtilegu handriti, fallegri myndatöku og umfram allt stórgóðum leik þriggja frábærra leikara. Myndin fjallar lauslega um nokkra daga í lífi þriggja æskuvina frá Boston. Þeir eru leiknir frábærlega af Kevin Bacon, Sean Penn og Tim Robbins. Þeir tveir síðarnefndu hafa sjaldan eða aldrei verið betri og eiga báðir vísa Óskarstilnefningu. Bacon var ágætur sem og Fishburne, Laura Linney og Marcia Gay Harden. Frábær mynd sem fær fimm skeytabolta auk þess sjötta fyrir stórbrotinn leik þeirra Penns og Robbins. Mæli sterklega með þessari mynd fyrir alla, sérstaklega þó aðdáendur Clints Eastwood sem hefur aftur tekist að búa til mynd þar sem maður hefur samúð með krimmanum án þess þó að vera ósáttur þegar hann fær makleg málagjöld. Þetta er mjó lína sem oft reynist erfitt að feta.

Góðar stundir!!

Engin ummæli: