27. feb. 2003

Boltinn
Nú eru línurnar að skýrast í Meistaradeildinni og allt stefnir í að Rassenal detti sneyptir úr keppni. Ég spái Ajax og Valencia áfram en Rassenal hefur nú enn möguleika og meira að segja Roma gæti skriðið upp úr þessum riðli með útisigri á Rassenal. Milan og United hafa auðvitað tryggt sig áfram og Barcelona er nokkuð öruggt líka. Maður veit ekki hvort Newcastle skríður áfram aftur en það væri gaman ef Newcastle kæmist áfram en ekki Rassenalmenn.
Hér heima eru línurnar að skýrast fyrir sumarið og maður verður að fara að taka ákvörðun um hvort spilað verður undir merkjum Ástarinnar í sumar eða hvort maður rói á ný mið með FC Forseta ásamt Valsmanninum tamda. Ástin er við það að liðast í sundur og ekki víst að náist almennilegur fjöldi til að halda úti liðinu – þetta verður spennandi að sjá.

Íbúðir
Við Edda höfum skoðað íbúðir í akkorði síðustu daga og fundið nokkrar fínar og eina frábæra. Því miður fannst fleirum hún frábær og þeir áttu meiri peninga en við og því misstum við af henni. Síðan höfum við ekki fundið neitt gífurlega spennandi og því verðum við að halda áfram að leita. Kannski maður finni eitthvað í kvöld en það er ekkert víst. Við skoðuðum tvær íbúðir á sunnudaginn var og aðrar fjórar á mánudag. Síðan buðum við og biðum á þriðjudag en þegar ljóst var að einhverjir vitleysingar hefðu keypt þá íbúð 300þ. kalli yfir ásettu verði þurftum við að fara aftur af stað og skoðuðum aftur fjórar íbúðir í gær (þar af eina sem við höfðum skoðað áður). Ekkert af því var nógu spennandi til að við vildum bjóða í þær en sumar er allt í lagi að hafa í bakhöndinni. Í kvöld er síðan sett stefnan á að skoða a.m.k. 3 íbúðir og því verður maður að safna kröftum seinnipartinn.

Viðar og Þorgeir
…eru alltaf að tala um Saddam greyið og er það ágætistilbreyting frá röflinu hans Viðars um klassíska tónlist. Nú er ég mikill áhugamaður um að hlusta á alls kyns tónlist: jass, popp, rokk, klassík og jafnvel rapp á góðum degi. Þannig gæti ég talið lengi áfram. Ég nenni hins vegar ekki að skrifa mikið um tónlist og enn síður að lesa um hana. Mér finnst í lagi að tala um hana í hófi við einhverja félaga mína en mér finnst leiðinlegt að leggja heilu partýin undir eitthvað helvítis þref um hver gerði hvað best og vangaveltur um hvort þessi var í vímu eða inni í skáp þegar hann samdi þetta og þetta tónverk. Svoleiðis er fyrir músikschizóa eins og Sjonna og Viðar.
En ef ég sný mér aftur að Íraksdeilu Bjúgunnar og Skutulsins þá verð ég að segja að yfirleitt hafa mér fundist lyktir deilna þeirra félaganna skemmtilegasti hluti þeirra – þ.e. ryskingarnar. Hlakka því mjög til endurfunda þeirra félaganna Viðars, Þorgeirs og Carlsbergs í sumar.

Landsleikurinn…
…er loksins búinn hjá Baddý en kannski verður nýr byrjaður þegar hún bloggar næst. Sjáum til.

Gunni…
…hefur tvíeflst við að flytja sig í braggahverfið enda ekki nema von þegar menn hafa jafnótrúlega lítið vit á íþróttaliðum – ég meina Valur, Juventus, Real o.s.frv. Það hlýtur að hafa verið óvart þegar hann ákvað að halda með United á sínum tíma. Kannski fór hann línuvillt og valdi næsta lið fyrir neðan Liverpool í stafrófinu. Hver veit? Annars er Thoroddsen farin að hrella erlenda ferðamenn með skoplegum uppröðunum flugvéla í lofthelgi íslenska flugstjórnarsvæðisins sem er með þeim stærstu í heimi. Skemmst er að minnast skelfingarinnar sem greip um sig meðal tindáta í fjarstýrðri 20 kg Cessna-eftirlíkingu sem hann lét steypa sér í áttina að Hallgrímskirkju í síðustu viku. Gunni er samt að standa sig eins og hetja í flugumferðarstjóranáminu og líklega verður hann sá fyrsti í mínum vinahóp sem útskrifast með gagnleg starfsréttindi. Ég meina efnafræði og sagnfræði eru nú bara hobbý og viðskiptafræði er nú eitthvað sem menn læra til að geta verið atvinnulausir. Menn á vinstri vængnum hafa nú meira að segja fengið þá hugmynd að gera það sem skilyrði fyrir atvinnuleysisbótum að vera með a.m.k. 7,25 í meðaleinkunn á B.A. prófi í viðskiptafræði. Góð hugmynd.

Fæðingarorlof…
…er merkilegt fyrirbæri. Nú mega menn varla fara inn á klámsíðu á netinu öðruvísi en einhverjar rauðsokkur heimti að þeir taki sér feðraorlof. Ótrúlegt að íslenska ríkið skuli vera að borga fólki fyrir að eignast börn þegar allir vita að það eru langir biðlistar eftir leikskólaplássum víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu. Það ætti kannski frekar að eyða þessum peningum í að borga þeim sem hafa það verst almennileg laun í staðinn fyrir að vera að borga einhverjum millum fleiri hundruð þúsunda fyrir að vera heima með börnin sín. Mér finnst allt í lagi að borga fólki 60-70þ. kr. fyrir að vera heima með börnin fyrstu mánuðina en að borga 80% af laununum, hver sem þau eru, er náttúrlega algerlega fáránlegt.

Engin ummæli: