LOTR II - The Two Towers
Sá hana í Smárabíó í kvöld. Salur 1 var næstum tómur en myndin kom á óvart og var margfalt betri en LOTRI sem ég var ekkert sérstaklega hrifinn af. Mér fannst hún bara enn ein tæknibrelluævintýramyndin. Ekki misskilja mig samt, mér fannst myndin góð en kannski ekki ein af 20 bestu myndum sögunnar eins og flestum. The Two Towers held ég þó að gæti komist neðarlega á þann lista (topp 20) enda ótrúlegt stórvirki. Það var meira að segja smá karakter-leikur í þessu og jafnvel hægt að tilnefna menn eins og Ian McKellen og Viggo Mortensen fyrir sæmilegan leik í aukahlutverkum. En myndin fær 4g af 5 mögulegum - frádráttur fyrir skort á frammúrskarandi leikurum en söguþráðurinn og spennan draga hana upp. Mæli með henni.
Valinkunnur andans maður...
...eyðir töluverðum tíma í undirritaðan á blogginu sínu í dag. Segist nærri hafa ekið yfir mig í dag og að ég hafi ekki tekið eftir því. Fyrir slíkt biðst ég afsökunar. Ótrúlegur dónaskapur að heilsa ekki fólki sem ekur mann nær niður. Annars hef ég verið svolítið áttavilltur á netinu síðastliðnar vikur vegna stoppulla færslna hjá föstum viðkomustöðum netbrimreiðanna. Þannig hafa Viðar, Inga Huld og Sjonni verið löt, Önni frekar slappur og maður er auðvitað löngu búinn að gefa Dreifarann upp á bátinn. Bráðum missir hann linkinn sinn hér til hliðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli