Boltinn
Liverpool vann sinn fyrsta útisigur í 18 mánuði eða svo í gær þegar þeir lögðu Auxerre í Frakklandi í UEFA-cup. Þessi bikar er eins og alþjóð veit hluti af Cocoa Puffs-þrennunni sem Liverpool vann fyrir nokkrum árum. Auðvitað var það næstbesti sóknarmaður Liverpool, Finninn fljúgandi Sami Hyypia sem tryggði sínum óverðskuldaðan sigur. Eru ekki allir sigrar Liverpool óverðskuldaðir?
Draumaíbúðin fundin...
...en seld. Djöfull getur þetta verið pirrandi. En þá er bara að leita áfram. Raunar er ein sem gæti komið til greina í Vesturbænum, raunar í sama húsi og Óttar bróðir átti heima í. Spennandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli