26. feb. 2003

Afmælisbörn
Nokkur eru afmælisbörnin þessa dagana en í dag er bekkjarsystir mín hún Jenna ekki deginum eldri en 25. Í gær og fyrradag urðu síðan Jón Þorkell og Ragnar sem einnig munu vera í bekknum mínum 27 ára gamlir. Til hamingju með það fólk!

Boltinn
Ég veit nú ekki hvor er að kúka meira á sig Viðar eða Ferguson. Miðað við ummæli Viðars á blogginu í dag og í ljósi úrslita gærkvöldsins í Meistaradeildinni þá held ég þó að Viðar ætti að skreppa eftir nýjum nærfötum út í Supermarkað hverfisins. Annars er það af leiknum að segja að Giggs, Veron og Keane voru guðdómlegir en að öðrum ólöstuðum held ég að Keane hafi verið maður leiksins.

DV…
…birtir í dag forsíðusmáauglýsingu um að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn stærsti stjórnmálaflokkur landsins – aftur. Vei. Fólk er búið að átta sig á lævísu skattpíningartíkinni henni Skalla-Sollu. Næst er bara að sökkva henni í pólítískan hafsjó og skilja hana þar eftir. Hún ræður ekki við að ræða um efnahagsmál og því verða menn að einbeita sér að þeim. Hún hefur bara ekkert vit á þeim og er í hrópandi mótsögn við sjálfa sig í hvert skipti sem hún opnar munninn greyið.

Engin ummæli: