Háskóladeildin
Læknanemar tryggðu sér auðvitað glæstan sigur í undanúrslitum Háskóladeildarinnar með auðveldum 3:2 sigri á Viðskiptafræðinni. Raunar höfðu Viðskiptafræðinemar höfðu raunar undirtökin til að byrja með og ekki skemmdi að dómari leiksins hagaði dómgæslu með vindi og dæmdi þeim liðum í hag sem léku með honum, þ.e. með Mágus í fyrri hálfleik og okkur í þeim seinni. Það var liðið svolítið á fyrri hálfleik þegar dómarinn dæmdi mjög vafasama vítaspyrnu á læknanema eftir að Snorri hafði hirt knöttinn glæsilega af sóknarmanni Mágusar. Réttlætinu var hins vegar fullnægt því á einhvern yfirnáttúrlegan hátt tókst Þóri að verja vítaspyrnuna sem var alls ekki slök - alveg út við stöng. Vítaspyrnubrennirinn varð þá svo svekktur að hann ákvað að tækla Þóri og lá hann óvígur á eftir svo læknanemar urðu að setja besta sóknarmann liðsins í markið. Skömmu eftir þetta tókst okkur að skora með hjálp þeirra Mágusarmanna þegar markvörður þeirra ákvað að gera skondið sjálfsmark eftir að Árni og Andri höfðu pressað vel. Skömmu seinna tókst Mágusum hins vegar að jafna en ekki leið á löngu áður en við vorum aftur komnir yfir með glæsilegu marki Árna Gríms eftir aukaspyrnu Örvars. Staðan var 2:1 í hálfleik en snemma í seinni hálfleik fékk lið læknanema verðskuldaða vítaspyrnu eftir að vinstri bakvörður Mágusar stöðvaði fyrirgjöf með höndunum. Jón Þorkell skoraði úr vítinu af alkunnu öryggi og það sem eftir lifði leiks lágum við frekar aftarlega á vellinum. Mágus átti nokkur sæmileg færi en ekkert kannski klárt dauðafæri og tókst ekki að skora. Þeir eru því lúserar annað árið í röð.
Boltinn
Mínir menn geta ekki rassgat þessa dagana og virðist Rassenal ætla að taka titilinn. Það er eins gott við hirðum Evrópusilfrið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli