Afmælisbarn vestan hafs
Berkeleybjúgan hefur náð þeim ógnvænlega árangri að verða aldarfjórðungs gamall og skal honum óskað til hamingju með það. Vonandi kaupir Inga Huld eitthvað kynæsandi fyrir hann að fara í - kannski hauspoka :).
Boltinn
Mínir menn að kúka á sig í bikarnum um helgina en líklega verður slæleg frammistaða þeirra á móti góðu liði Rassenal til þess að aumingjarnir frá Highbury detta út úr Meistaradeildinni. Arsenal skeit á sig í gær og gerði aðeins jafntefli við Ajax. Þetta þýðir að Arsenal á eftir tvo útileiki á móti liðunum sem eru í baráttu við þá um efstu sætin, Ajax og Valencia; liðum sem þeim hefur mistekist að leggja að velli á heimavelli. United tók síðan Juve í ósmurt í kvöld og sigurinn auðvitað aldrei í hættu þrátt fyrir að Tórínóarnir væru meira með boltann.
Stóridómur…
…fer nú heldur geyst í málflutningi sínum um deilu augnlækna og sjónglerjafræðinga. Augljóst er að Haukur hefur ekki kynnt sér málið almennilega heldur dregur hann taum frænda síns sem er sjónglerjafræðingur góður. Eru það fullkomlega eðlileg mistök en sjaldséð hjá þeim greindarbræðrum úr Þernunesinu. Vissulega eru góðir sjónglerjafræðingar miklu meira en hæfir til að mæla sjón en rök augnlækna eru líka fremur sterk ef maður nennir að kynna sér þau. Ég held þó að á endanum verði raunin sú að sjónglerjafræðingar hafi yfirhöndina í þessu máli en það verður ekki fyrr en eftir mikil málaferli og raunar held ég að leiðin sem þeir eru að fara sé fremur klók. Það mundi kosta þá óhemju fjárhæðir að reka mál gegn ríkjandi lögum og því ákveða þeir að brjóta lögin, fá á sig kæru og síðan vonast þeir auðvitað til að málskostnaður þeirra falli á ríkið þegar fordæmisgefandi dómur fellur þeim í hag. Snillingar!
Jólin…
…eru loksins búinn hjá Ingu Huld en það ætti kannski einhver að láta Baddý vita að landsleikurinn er búinn.
Þorgeir Gandálfur Fróði Ragnarsson Önundarsonar…
…hefur hafið veffærslur. Auðvitað er bloggið hans lítið skárra en vitleysan sem kemur upp úr honum dags daglega en það getur nú stundum verið gaman að lesa veffærslur eftir rugludalla eins og dæmin sanna. Velkominn í bloggheima Þorgeir – þú verður verðlaunaður með hlekk hér til hliðar. Hefur hann fengið nafnið Skutullinn af augljósum orsökum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli