Long time, no see
Mikið er ég búinn að vera duglegur að blogga ekki síðustu daga og verð ég að biðja Önund sem er greinilega aðdáandi nr. 1 afsökunar á því. Annars ætti Önundur að vita að sem læknir þá má ég vera eins og ljósastaur. Ég get lýst veginn fyrir aðra en ég þarf ekki endilega að ganga hann sjálfur. Þetta er eitthvað sem við læknar höfum einkarétt á og þið hin ættuð ekki að voga ykkur að setja út á eitthvað í fari annarra sem þið getið ekki fært rök fyrir að sé fullkomið hjá ykkur. Þannig er nú það. Annars er bloggfallið fyrst og fremst vegna mikilla anna í vinnu og skóla. Byrjaði í dag á verklegum kúrs í taugalæknisfræði sem virðist stefna í að verða mjög áhugaverður. Kennararnir eru strax farnir að setja manni fyrir erfið og krefjandi verkefni og m.a. fékk ég verkefni sem mér tókst ekki að leysa í dag og þarf því að mæta með skottið milli lappanna á morgunn.
Boltinn
Ég grét í fyrsta sinn í mörg ár á sunnudagsmorguninn en tók gleði mína á ný seinni partinn. Síðan fór ég í fótbolta og stóð mig illa.
Helmingur þjóðarinnar...
...er viti sínu fjær skv. nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins en eftir að Sigurður Kári fíflaði Flosa Eiríksson í kastljósinu í kvöld ætti þetta nú að snúast við. Flosi fór að gráta eins og venjulega þegar hin börnin í sandkassanum vilja ekki leika eins og honum finnst best og skemmtilegast. Ég vorkenni honum svo mikið. Það er nógu slæmt að vera aumingi án þess að þurfa að heita Flosi líka.
Ísleningabók
Einhvers staðar las ég nú að maður ætti að vera skyldur öllum Íslendingum í 7. lið en skv. mínum útreikningum er ég ekki skyldur neinum af kunningjum mínum nær en í 9. lið. Til að ganga úr skugga um hvort þetta virkaði ákvað ég að fletta upp tengslum mínum við bróðir minn og hafði tölvan það nú af að finna þau tengsl. Góð bók þessi Íslendingabók.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli