13. des. 2002

Jæja
Þá eru prófin búin og bara tveir kjaftakúrsar eftir. Í dag er einhver öldrunardagur í átjánda skipti í náminu og á eftir verður okkur boðið í kokdilli - um leið og við erum búin í vísindaferð. Ætli maður verði svolítið rakur? Síðan hefst alvaran við messu heilags Þorláks en þá hef ég störf á barnaspítala Hringsins nánar tiltekið Bráðamóttöku barna en þar mun ég starfa yfir jól og áramót og vonandi eitthvað áfram.

Prófin...
...voru þau sanngjörnustu sem ég hef tekið lengi. Engin kúkaspurning heldur bara aðalatriði, m.a.s. krossaspurningarnar voru 99% sanngjarnar og það er erfitt. Annars var ég illa undirbúinn undir þetta próf vegna leti og lélegs innblásturs og undirstrikar það fáránleika þess að prófa úr verklegum kúrsus næstum 9 vikum eftir að honum lýkur. Erfitt hefur reynst að fá þann ágæta mann Ásgeir Haraldsson til að breyta þessu og er það líklega eini löstur þessa annars frábæra prófessors. Kvensjúkdómarnir voru líka sanngjarnir eins og áður sagði en það var meira um smámunasemi í þeim enda um munnlegt próf að ræða og því fleiri tækifæri fyrir hártoganir. Annars er lokaniðurstaða: skemmtilegir kúrsar og sanngjörn próf eru frábær blanda.

Boltinn...
...er stórkostlegur þessa dagana og er ég verulega sáttur við liðið mitt. Það eru ekki mörg lið sem Davíð Bekkskinka kemst ekki í en Skerið er bara búinn að vera stórkostlegur á kantinum. Hann lagði upp annað markið á miðvikudaginn og bjó til pláss fyrir sendinguna frá Scholes í því fyrra. Ole hefur alltaf verið í uppáhaldi og ef einhver er að leita að fullkominni jólagjöf fyrir mig þá er það United-búningur með hans nafni. Ekki má heldur gleyma Ruud sem er búinn að vera hreint út sagt stórkostlegur síðustu vikurnar eða allt frá því hann skeit í brækurnar á móti City. Síðan er Phil að blómstra á miðjunni og O'Shea getur bara verið hvar sem er og spilar samt vel. Hver er þessi maður eiginlega? Síðan er auðvitað sérlega gaman að sjá að Leeds er að skíta á sig. Merkilegt að halda því fram að Ferdinand hafi bara verið varaseifa þar eins og Ridsdale hefur reynt. Snillingur en hann kemst varla í liðið úr þessu.

Að lokum...
...langar mig að dissa hina háæruverðugu og ömurlega sorglegu Svanborgu Sigmarsdóttir. Það að hún skuli skrifa á síðu sem kennd er við miðpunkt einhvers misheppnaðasta gæluverkefnis ömurlegra framapotara sem um getur, segir allt um skrif hennar sem segja þarf. Ég skil ekkert í vinstri mönnum. Það eru allir heilbrigðir menn búnir að sjá að Sovétríkin og raunar öll kommúnistaríki heimsins voru og eru andfélagslegustu fyrirbæri sögunnar og samt keppist þetta lið við að kenna sig við einhver kennileiti liðins tíma. Múrinn, Kreml o.s.frv. heita vefsíður þessara viðrina sem enn hafa ekki áttað sig á öllum þeim hörmungum sem af kommúnismanum hlutust. Þeir segja alltaf að þetta hafi bara misheppnast og þetta virki annars staðar t.d. á Kúbu og í Kína og jafnvel N-Kóreu. Svo er þetta sama lið mætt í fullum herklæðum á öll torg landsins að mótmæla ef kínverskur embættismaður vogar sér hingað til lands.
Kúba hefur löngum verið helsta röksemdafærsla vinstrimanna fyrir virkni kommúnismans. En ég hef aðeins eina spurningu fyrir þetta fólk. Hvernig útskýrir þú það að tugir þúsunda Kúbverja reyna að flýja yfir til USA á ári hverju. Hvernig útskýrir þú það að það vill helst enginn búa á Kúbu? Hvort ætli það sé vegna viðskiptabanns USA eða vegna þess að þar er einræði? Efég væri stoltur af landinu mínu þá mundi ég standa með því í gegnum þykkt og þunnt og ekki láta eittert ofurbákn í vestri segja mér og mínum löndum hvað við megum og megum ekki. Og ef ég mundi að lokum hrökklast burt af litlu eyjunni sem ég kalla heimili mitt þá mundi ég síst af öllu vilja búa í landinu sem hefur valdið öllum þessum hörmungum heima fyrir. Q.e.d.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: