1. des. 2002

Boltinn
Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir þessum leik áðan. Dudek er alger snillingur. Enn sannast kenning mín um eyðileggingu Liverpool á markvörðum. Þetta var eins og að horfa á 6 ára gamalt barn grípa boltann. Hann hlýtur bara að hafa verið að reyna þetta kallinn. Annars fannst mér þetta sanngjörn úrslit. Leikurinn var jafn og jafntefli hefði verið sanngjarnt ef Dudek hefði ekki gert þessi mistök. Það var munurinn á liðunum í dag. Dudek gerði mistök, ekki Barthez. Djöfull verður gaman að mæta í boltann í kvöld með öllum Poolurunum. Þór, Eiki, Arnar, Gummarnir tveir og Ingvar hinn er allir miklir Liverpoolmenn - kannski er bara rétt að leyfa þeim að vera saman í liði grátandi.

Ferðamál
Vestmannaeyingar eru þvíumlíkir snillingar. Þótt helsta ferðamannaaflinu sé skúbbað frá eyjunum til Noregs þá deyja þeir ekki ráðalausir. Keikó er farinn og þeir verða að gera eitthvað. Eitthvað stórt. Eitthvað öðruvísi. Eitthvað krassandi. Fáum Olgu Færseth, feitasta stjörnuframherja í heimi, til Vestmannaeyja.

Þreyttur
Er nú búinn að sofa 1 klst síðan kl. 16 í gær og stefni ekki á að skríða í koju fyrr en í kvöld eftir boltann. Fyrst verður snætt svín, síðan hlegið að svínum i boltanum. Æ greyin - Liverpool hefur bara ekki getað rassgat í mörg ár.

Auk þess legg ég til að Anfield verði lagður í eyði!!! Áfram United.

Engin ummæli: