Boltinn
Haha, frábær dagur. Það er ekki oft sem tvö mestu grísaralið allra tíma tapa á einum og sama deginum en það gerðist í dag og græt ég það eigi. Mínir menn tóku Arsenal á tauginni og það var sérstaklega gaman að sjá hvað Ljungberg og Vieira voru slappir. Litla systur var með Patta greyið í vasanum allan tímann og átti frábæran leik inni á miðjunni auk þess sem Veron og Scholes voru góðir. Skerið virðist líka ætla að blómstra í þessari kantstöðu og ég er ekki frá því að hann sé að ná Beckham-færni í fyrirgjöfum, enda er maðurinn snillingur. Síðan áttu fjórmenningarnir í vörninni, þeir Gary, Wes, Mikael og John alveg frábæran leik og má segja að eina feilsporið hafi komið frá Gary sem spilaði Henry dauðafrían í fyrri hálfleik en sem betur fór tókst Henry greyinu ekki að klára dauðafærin sín frekar en vanalega. Þetta er alveg ótrúlegur leikmaður. Engum dylst ótrúlegir hæfileikar, hraði, frábær skot og snilldarlegar sendingar svo ekki sé nú minnst á einleiksrispurnar sem hann tekur stundum. Það er hins vegar eitt sem hann er lélegur í og það er að klára dauðafærin. Þess vegna segi ég alltaf að Henry sé betri leikmaður en Ruud en Ruud er hins vegar miklu betri framherji. Það voru fáir í þessu Arsenalliði sem gátu nokkurn skapaðan hlut í dag. Það var ekki að sjá að þetta lið hefði skorað í 55 leikjum í röð eða að þeir séu nýbúnir að spila heilt ár í úrvalsdeildinni án þess að tapa. Þeir eru enda búnir að tapa 4 af síðustu 8 leikjum sínum í deildinn en það er næstum eins gott og Liverpool sem hefur náð 1 stigi úr síðustu 4 leikjum í úrvalsdeildinni ensku. Mín spá fyrir vorið er að MUFC verði efstir, næstir komi Arsenal og síðan Chelsea, Merseyside-liðin koma síðan þar á eftir og líklega verða Pollarnir fyrir ofan. Síðan koma norðurliðin Middlesbrough og Newcastle. West Ham, Bolton og Leeds falla.
Kvensjúkdómalæknisfræði…
…er langt og leiðinlegt orð en kúrsinn kom mér hins vegar á óvart. Ég bjóst nú ekki við miklu af honum og þótti þetta alveg sérstaklega óspennandi fag. Það kom hins vegar á daginn að fagið er spennandi á margan hátt en þó ekki svo spennandi að ég hafi hug á að leggja það fyrir mig. Það neikvæða við þetta fag er hin augljósa klofástæða, þ.e. að vera með þetta fyrir augunum allan daginn. Jákvæða hliðin er hins vegar hvað þetta er ótrúlega phýsíólógískt og rökrétt fag. Stjórnin og síbreytileikinn er alveg sérstaklega spennandi, allir þessir hormónar og áhrif þeirra á líf og limi kvenna.
Barnalæknisfræði…
…er næst á dagskránni. Prófið er á fimmtudagsmorgunn og maður verður að halda vel á spöðunum ætli maður að standa sig í þessu. Ég ætla nú að reyna að standa mig í þessu þar sem ég er að vinna hjá þeim um jólin. Ég er reyndar mun hrifnari af því að láta verkin tala en prófin. Hins vegar gæti það verið mjög neikvætt ef mér gengi mjög illa á þessu prófi.
Pólítík…
…er merkileg. Eins og margt efnisfólk er vinstrisinnað virðist enginn vilja ganga fram fyrir skjöldu og láta á sér bera í þingflokkum þeirra. Ég held það sé bara enginn spennandi kandídat undir fertugu í þessum flokkum. Björgvin sá er skipar sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er alger froðusnakkur og hefur margoft elt á sjálfum sér rófuna með algeru kjaftæði í Silfri Egils. Síðan er það Dagur greyið sem getur ekki ákveðið sig hvernig vinstri maður hann vill verða og hefur því ákveðið að vera svona þverpólítískur eins og Ingibjörg í von um það að vinstimenn sameinist um síðir á landsvísu. Hversu aumkunnarverðir geta menn verið – taktu afstöðu maður – það er ekki nóg að vera bara sætur. Síðan er það Lúlli greyið – mikið hefði nú verið gaman ef hann hefði losað okkur við vælið í henni Margréti sem marggrét á þinginu sl. vetur og mun eflaust marggráta í framtíðinni. Um Lúlla er svo sem fátt að segja, hann segir það allt sjálfur auminginn sá arna. Ásgeir Ágústsson eða hvað hann nú heitir sonur hans Ágústs flokkaflakkara Einarssonar er líklega sá sæmilegasti af öllu þessu liði en hann er nú samt óttalegur volari líka. Hann er svona mini-me af pabba sínum – eldklár strákur sem ætti kannski heldur að vera í stefnumótun flokksins en í eldlínunni.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli