Forlan snillingur
Ég gleymdi auðvitað að minnast á þátt Diego Forlan í leiknum um helgina. Ég veit ekki hvort var sætara, það að vinna eða það að Forlan skyldi skora tvö mörk hjá liðinu hvers aðdáendur hafa dissað hann hvað mest. Þarna svaraði hann sko rækilega fyrir sig. Síðan braut hann ísinn í gærkvöldi gegn frábærum markverði Burnley. Annars voru United menn bara heppnir í þessum leik því Burnley hefði alveg eins getað unnið þetta. Það var aðeins stórleikur Carroll í markinu sem kom í veg fyrir að þeir skoruðu og svo kláruðu auðvitað snillingarnir Forlan og Solskjær færin sín snilldarlega. Nú hlýtur Forlan að vera búinn að fá nóg af peningum í markabónusa til að splæsa á sig klippingu. :)
Skólinn
Próf í kvensjúkdómalæknisfræði á föstudag og ég lítið búinn að lesa. Maður verður að taka sig á. Það versta er að maður er bundinn hér í skólanum alla daga og ekkert verður upplestrarfríið. Maður verður bara að taka þetta á skriðþunganum. Er á síðustu nemavaktinni minni hér í kvöld og síðan fer maður heim að lesa. Það verður bara hálfpottur af kaffi og kóki til að halda sér vakandi.
Auk þess legg ég til að Anfield verði lagður í eyði!!! Áfram United.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli