16. des. 2002

Barnadeildin og boltinn
Tók smá forskot á sæluna og vann fyrstu vaktina mína á barnadeildinni í nótt. Mætti reyndar ekki fyrr en kl. 16 því ég var í 25 ára afmælinu hans Adda ískáps í gær. Hann bauð okkur í sumarbústað í Miðhúsaskógi og grillaði jarmflykkisuppfót sem bragðaðist snilldarlega. Vissi ég vel að Arnar er snillingur við grillið en hann toppaði sjálfan sig algerlega í gærkvöldi. Síðan var auðvitað tekið á í drykkjunni og Ingi Örn frændi okkar fór hamförum á gítarnum. Síðan var skriðið í kojuna um kl. 2 fremur af illri nauðsyn en einlægum vilja. Því var ég ekki sá allra hressasti í dag en lét mig þó hafa það að vakna fyrir allar aldir (kl. 1330) og keyra í bæinn. Síðan var farið svo til beinustu leið í vinnuna en mér tókst þó að sturta mig og sjá Arsenal skíta í brækurnar gegn Totturunum. Mikið er gaman að vera United maður í dag.
Annars voru mínir menn heppnir því líklega var fullkomlega löglegt mark hirt af Vesturskinkumönnum í fyrri hálfleik. En þeir sem muna lengra en nef þeirra nær muna líka að Skinkubræður stálu 2 stigum af United í nóvember með ólöglegu marki í lok leiks. Réttlætinu var því fullnægt að hluta.

Addi ískápur...
...er afmælisbarn dagsins og verður heiðraður með sviðsljósi Ljós-Gíslans. Til hamingju með daginn gamli.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: