22. apr. 2009

Magnaður leikur

Leikur Liverpool og Arsenal á Anfield í gær er einn besti leikur sem ég hef séð í áraraðir. Stórkostleg skemmtun, sérstaklega seinni hálfleikur. Svona á að spila fótbolta. Arshavin betri en ég hafði trú að hann yrði í enska boltanum. Klárt að Arsenal verða góðir á næsta ári, haldi þeir mannskapnum sínum óbreyttum eða bæti við.

Að sjálfsögðu!

Efast einhver um þetta lengur? Nú er rétti tíminn til að kýla á þetta. Skapa störf og spara peninga á LSH á einu höggi. No brainer!!!

Kosningar 2009

Ég verð að viðurkenna að aldrei hef ég verið eins ringlaður fyrir kosningar. Hingað til hef ég aldrei verið í neinum meiriháttar vafa um hvað ég á að kjósa. Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur yfirleitt heillað mig og gerir það raunar enn en lengi hef ég verið efins um ágæti flestra þingmanna flokksins. Nú hefur að sjálfsögðu komið í ljós að sá efi var fullkomlega réttlætanlegur. Svo virðist sem heiðarlegt fólk eigi ekki upp á pallborðið í þessum flokki. Ungliðahreyfingarnar hafa í mörg ár verið keyrðar áfram með atkvæðasmölun og ber mér fyrir augu sem ekkert annað en kosningasvindl þó sjálfsagt sé það ekki þannig í laganna skilning. Mér misbauð algjörlega fyrir tæpum 10 árum síðan og hef ekki tekið þátt í ungliðastarfi flokksins síðan, fannst ég ekkert hafa þangað að sækja. Flokkurinn hefur verið að rotna innan frá síðan seint á 10. áratugnum a.m.k. og kannski lengur. Síðan koma þessi krakkagrey inn í prófkjörin og halda áfram sama djöfulsins bullinu, atkvæðasmölun og skítkasti. Skipulagðar herferðir gegn andstæðingum sínum í stað þess að byggja upp almennilega málefnalegan grunn fyrir kosningunni. Peningana fá þeir gefins frá illa innrættum peninganna mönnum sem hafa sjálfir efnast á því að taka lán og áhættur. Mútur?! Hverjum ætli þessi vesalings grey standi með þegar kemur að því að koma böndum á skúrkana. Auðvitað er inn á milli gott fólk eða í það minnsta fólk sem maður hélt að væri heiðarlegt. Ég hélt t.d. að Geir kallinn væri heiðarlegur en nú hefur komið í ljós að FL og LÍ mútuðu honum (styrktu hann/flokkinn) með 55 milljónum og enginn veit með vissu hvaðan restin kom. Í stuttu máli þá er enginn leið fyrir mig að styðja við bakið á svona löguðu. Engin leið að kjósa flokk sem eftir svona afhjúpun hefur ekki einu sinni dug í sér til almennilegrar endurnýjunnar. Ennþá sama helvítis keypta pakkið og áður, bara búið að fara í ljós og ný jakkaföt, smá í ræktina til Ágústu eða í WC. Helvítis fokking fokk!!! Eftir situr einn maður sem ég hef álit á en því miður er það ekki nóg til að kjósa flokkinn. Sá maður heitir Birgir Ármannsson.
Hvar stendur hægrisinnaður velferðarsinni þá á Íslandi. Skoðum aðeins landslagið:

Samfylkingin
Hér höfum við flokk sem er að minnsta kosti jafnspilltur og Sjálfstæðisflokkurinn þar sem fyrrum formaður hefur viðurkennt að hafa veit háum styrkjum frá Baugi viðtöku og nú hefur komið í ljós að þingmenn flokksins voru einnig keyptir að einhverju leyti. Samansafn af Evrópusinnum, félagshyggjubruðlurum og froðusnökkum. Ég hafði ákveðið álit á Ágústi Ólafi en hann var líka sá eini og er að sjálfsögðu kominn í frí frá pólítík. Ætli við sjáum hann nokkuð aftur. Formaðurinn er svo sem ágætis kerling en algjörlega vanhæfur forystumaður og eins og sagan sýnir okkur gjörsamlega ófær um að sýna aðhald. Hættulegt ætli hún að stjórna ríkisstjórn.

Vinstri grænir a.k.a. Hinn íslenski sósíalistaflokkur/Alþýðubandalagið
Það er vel hægt að gefa marxistaflokki nýtt nafn en þegar allt kemur til alls er það að sjálfsögðu stefnan sem skilgreinir flokkinn. Þrátt fyrir að reynt hafi verið að dulbúa sósíalísku stefnuna með náttúrverndarhjali getur hver einasti maður séð að um hreina sósíalíska stefnu er að ræða. Hún er svo sem góðra gjalda verð en hvernig á maður að treysta fólki til að leysa úr vandræðum þjóðarinnar þegar það þorir ekki einu sinni að koma fyrir sjónir kjósenda eins og það er klætt. Heigulsháttur ef þið spyrjið mig. Þó mega þingmenn VG eiga það að maður hefur á tilfinningunni að um heiðarlegt fólk sé að ræða. Því miður er það bara ekki nóg þegar stefnumál flokksins eru stórhættuleg fyrir þjóð í nauðum. Égmundi ekki geta horft í augun á börnunum mínum eftir 20 ár og sagt þeim að ég hafi stutt stjórn VG og Samfylkingar sem við fáum að sjálfsögðu eftir kosningar. Sjálfseyðingarhvöt landsmanna?

Framsóknarflokkurinn
Hvað er hægt að segja um Framsókn. Spilltasti og tengdasti flokkur landsins. Samansafn af hugsjónalausum framapoturum sem velja sér Framsókn af því að það er auðveldast að komast til áhrifa þar. Gamli bændaflokkur Íslands en ég held að langflestir íslenskir bændur séu löngu hættir að kjósa þá. Flestir velja Sjálfstæðisflokk eða Samfylkingu af þeim sem ég þekki, kannski einhverjir VG. Holdgervingur afturhalds og stöðnunar í íslenskri sögu í áratugi. Nýi formaðurinn algert súkkulaði og engan veginn tilbúinn í djobbið. Aldrei í lífinu kysi ég Framsóknarflokkinn.

Frjálslyndi flokkurinn
Skelfileg saga sundurlyndis og persónuárása innanbúðar. Ógeðfelld stefna í innflytjendamálum hjá ákveðnum aðilum sem ég taldi víst að yrði dregin upp í aðdraganda kosninganna en sennilega hefur tekist að koma böndum á hana. Samansafn þingmanna sem ég ber ekki nokkuð traust til. Vonlaust að kjósa þá.

Borgarahreyfingin
Ég var mjög opinn fyrir nýju framboði fyrir þessar kosningar og hef lagt mig allan fram um að vera jákvæður gagnvart þeim. Tillögur að úrbótum eftir kosningar hafa hins vegar verið barnalegar og stefnan nánast ósýnileg. Fulltrúar hreyfingarinnar sem ég hef heyrt til í besta falli verið hlægilegir. Sorglegt að ekki fáist almennilegt fólk úr þjóðfélaginu til að leggja nýju stjórnmálaafli lið. Það að þeir fái þó þetta mikið fylgi í könnunum segir manni að það hefði verið gríðarlegur hljómgrunnur fyrir almennilegu nýju framboði. Svekkjandi að það skyldi ekki koma fram.

Lýðræðishreyfingin
Ein ástæða til að kjósa hana ekki og algerlega nægjanleg: Ástþór Magnússon. Maðurinn hlýtur að vera að grínast.

Hvað kýs ráðvilltur lítill maður þá. Ekki neitt. Ég ætla að sitja hjá í þetta skiptið. Finnst það ömurlegt en veit að mér mundi finnast ömurlegra að velja einhvern þeirra kosta sem í boði eru.

10. apr. 2009

Ýmislegt

Boltinn
Mínir menn voru alveg í ruglinu hérna á þriðjudaginn og ég var ekkert rosalega kátur með Nonna bróður glottandi hérna yfir leiknum en svona er þetta. Ekkert óvinnandi vígi í Portúgal og eitt mark nægir mínum mönnum ef þeir drullast til að verjast eins og menn. Ég tók hins vegar gleði mína á ný eftir leiki miðvikudagsins þar sem Barca valtaði yfir Bayern og Chelsea lagði Liverpool. Af þessum tveimur liðum hata ég reyndar Chelsea meira en ég veit líka að ég óttast þá ekki eins og Liverpool. Helvítis poolararnir eru komnir með gamla góða takið á MUFC svo það verður fínt að losna við þá úr keppninni. Ég held reyndar að þeir geti alveg tekið Chelsea 0-3 á "Brúnni" en ekki án Gerrard eins og útlit er fyrir.

Tengdó
Fékk tengdó með flugpósti á miðvikudaginn. Tíminn er mikið fljótari að líða þegar maður er með góða heimsókn og við höfum haft það gott, borðað góðan mat og túristast svoldið. Fórum upp á Holmenkollen í gær til að sjá útsýnið og ég keyrði með þau víðar um borgina til að sýna þeim ýmislegt. Fallegt veður og útsýnið yfir Oslófjörðinn var geggjað. Stefnan tekin á Framsafnið í dag og svo kannski spóka sig aðeins á Karl Johans gate þó allt sé auðvitað lokað. Síðan er tengdamamma búin að panta verslunarferð í Sandvika Storsenter á morgun. Nóg að gera og þá líður tíminn fljótt.

Pólitík
Hrikalegt ástandið á skerinu og einhvern veginn kemur mér ekki á óvart að Guðlaugur Þór sé miðdepillinn í þessu. Ég vorkenni Bjarna greyinu því hann lendir í að troða marvaðann í saurnum úr fyrirrennurum sínum en hann hefur svo sem ekki verið manna duglegastur að gagnrýna forystuna sl. ár svo kannski á hann þetta bara skilið. Ég tel fullvíst að sigur vinstri aflanna verði gríðarstór í kosningunum í vor og það er kannski bara það sem við Íslendingar eigum skilið. Djúp lægð gerð verri af hleypidómafullum dulbúnum gamaldags kommum. Ég verð að segja eins og er að ég sakna þess ekkert að búa á skerinu ef menn eins og Steingrímur J. og Ögmundur eru þeir sem Íslendingar eiga að leiða þjóðina út úr þrengingunum. Verð bara hérna úti næstu 5-10 árin þar til Íslendingar vakna og lykta af beikoninu. Ekki það að ég skil svo sem að menn vilji ekki sjálfstæðismenn í stjórn. Þeir verða fyrst að endurvinna traustið sem þeir hafa saurgað sl. ár en valkostirnir eru nú ekki álitlegir. Sennilega væri skást ef Framsókn og Samfylking næðu saman án VG og Sjálfstæðisflokks. Þá yrði kannski einhver vottur af skynsemi í athöfnum ráðamanna. Guð hjálpi Íslandi.

5. apr. 2009

MACHEDA

Ole! Ole! Ole! Ole! Nei! Það var reyndar Federico "Kiko" Macheda sem bjargaði mínum mönnum í dag. Þvílík snilld. Drengurinn gjörbreytti leik Manchester United þegar hann kom inn á og allt í einu sást til manna eins og Giggs, Tevez og Ronaldo. Svo skoraði hann þetta stórglæsilega mark. Minnti nokkuð á einn lítinn sætan Norðmann sem oftar en einu sinni dró svona lagað fram úr skálminni þegar mikið lá við. Instant hero! Snillingur.

1. apr. 2009

Fréttir frá Noregi

Héðan er svo sem ekki mikið að frétta annað en ég vinn og les og sef.

Boltinn
Það er landsleikjapása í deildunum og þá er auðvitað ekkert að gera annað en að horfa á landsleikina. Er að fylgjast með Norðmönnum spila við Finna. Staðan 0-1 hér í Osló eftir fyrri hálfleik en Norðmenn voru að jafna. Íslendingar og Englendingar eru að spila líka þannig að það er nóg af leikjum að fylgjast með. Áfram Ísland!!!

Fjölskyldan
Eins og flestir vita neyddist Edda til að fara aftur heim með Hildi Vöku til að vinna aðeins því lítið var í boði hér úti fyrir ófrískan Íslending. Hún ætlar því að vera heima fram í maí og kemur aftur út til mín þá. Ég tel niður dagana þar til ég sé stelpurnar mínar aftur.

Vinnan
Ég reyni auðvitað að nota tímann á meðan ég er einn til að vinna eins mikið og ég get og síðan les ég á milli. Ég hef fengið upplýsingar um næstu rótasjón hér á sjúkrahúsinu og hún er ekki af verri endanum því ég verð á hjarta- og lungnasvæfingunni. Við erum að tala um stórar hjartaaðgerðir á fullorðnum og börnum, hjartaígræðslur og svoleiðis. Verður rosalega gaman og ég er þegar farinn að undirbúa mig með lestri. Hér úti er mikið lagt upp úr því að maður lesi í kringum vinnuna og því fær maður einn dag aðra hverja viku til lestrar. Það er auðvitað ekki alltaf sem gengur upp vegna manneklu að losa mann úr vinnu en það hefur gengið vel upp á síðkastið og þá notar maður tímann auðvitað vel. Annars hefur þetta farið vel af stað hérna úti og ég er gríðarlega sáttur með að vera loksins kominn af stað í sérnáminu mínu.

Veðrið
Eftir öll snjóþyngslin fyrstu 3 mánuðina hér er allt í einu að koma sumar. Nú er hver dagurinn á fætur öðrum sólskinsdagur með hlýju veðri en næturnar eru áfram kaldar. Íslenskt maíveður ef svo má segja og mér finnst eins og ég verði að fara að lesa undir próf. Ég held að sumarið sé á næsta leyti.

Kreppan
Það er ljóst að kreppan hefur komið við okkur eins og aðra. Maður finnur t.d. fyrir því þegar maður ætlar að flytja peningana sína að heiman hingað út. Það er ekki einfalt. Hins vegar getur maður huggað sig við það að á meðan vinstri stjórnin situr heima virðist gengi krónunnar á niðurleið og það kemur sér ágætlega þegar maður er með tekjur í erlendri mynt. Ekki minnka gjaldeyrishöftin ef marka má aðgerðir síðustu daga.

29. mar. 2009

Kannabis og aftur kannabis

Djöfuls rosalegur gangur er í Fíknó. Þeir loka hverri nýsköpunarsprotaverksmiðjunni á fætur annarri þessa dagana. Það er gott að einhver er að standa sig í þessari fjandans kreppu. Lögreglumenn Íslands standa upp úr sem hetjur síðustu mánaða. Frábært starf í fíkniefnamálum og fumlaus og fagleg vinnubrögð þegar tekið var á ótýndum glæpamönnum og aumingjum sem reyndu að hleypa annars nauðsynlegum og friðsamlegum mótmælum upp í vitleysu. Ofbeldi á ekkert skylt við mótmæli. Þetta fólk á heima bak við lás og slá.

28. mar. 2009

Boltinn

Mínir menn í Manchester misstu flugið um leið og mínir menn í Barcelona hrukku aftur í gang. MUFC er reyndar komið í 8 liða úrslitin í Meistaradeildinni en þeir verða að girða sig í brók í deildinni. Það liggur við að 5 titlar í vor hjálpi ekki við að græða sárin eftir 1-4 tap fyrir Liverpool í leikhúsi draumanna. Það er algerlega ófyrirgefanlegt.

Stabæk hefur byrjað deildina hérna úti með tveimur jafnteflum. Fyrst heima gegn Lilleström og svo úti á móti Brann. Þeir virka svolítið skringilega fram á við enda búnir að selja tvo bestu mennina sína, þá Veigar Pál Gunnarsson og Alanzinho. Pálmi Rafn hefur komið sterkur inn og ef hann heldur svona áfram verður hann einn af bestu mönnum deildarinnar í sumar. Næsti leikur hjá þeim er heima á móti Odd Grenland á pálmasunnudag. Árni Gautur Arason leikur fyrir Odd. Það er leikur sem Stabæk á að vinna. Kannski maður skelli sér á völlinn.

Pólítíkin heima

Ég veit ekki hvar þessi hringavitleysa ætlar að enda. Hver af öðrum slá menn sig til riddara með allskyns fábjánaskap. Frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins koma báðir úr hópi greyjanna sem fylltu þingflokkinn eftir síðustu kosningar. Formaður Samfylkingarinnar vill helst ekki vera það en lét til leiðast af því að flokkssystkin hennar gera það sem skoðanakannanir segja þeim en fylgja ekki eigin sannfæringu (ef hún þá finnst hjá Samfylkingarfólki). Formaður VG er Georg Bjarnfreðarson... nei ég meina Skallagrímur Sigfússon. Hvernig er hægt að kjósa þennan í skásta falli sæmilega skemmtikraft? Frjálslyndir eru síðan bara frjálslyndir - samansafn af fólki sem ekki á neitt sameiginlegt nema því finnst ósanngjarnt hvernig fiskveiðiheimildum er dreift á landann. Nýju hreyfingarnar eru átakanlega máttlausar. Nýja fólkið í gömlu flokkunum er úr sömu úrsérgengnu jámannaverksmiðjunum sem hefur fært okkur hvern misheppnaðan þingmanninn á fætur öðrum sl. 20 árin. Engin endurnýjun, bara ný nöfn á sama froðusnakkinu. Verði ykkur að góðu Íslendingar að kjósa þetta yfir ykkur - aftur. Ég ætla að sniðganga kosningar á Fróni þetta árið, ég nenni ekki að ganga í gegnum allt utankjörfundarbullið í sendiráðinu hérna úti til þess eins að skila auðu.

Langt síðan síðast

Ég hef nú ekki verið sérlega duglegur hérna síðustu vikurnar en þeim mun duglegri á Facebook. Það hefur auðvitað heilmikið gerst. Fyrst kom auðvitað gámurinn og ég flutti almennilega inn í nýja heimilið okkar á Arnesenga. Það hefur gengið vel að koma okkur fyrir og við erum búinn að fara í gegnum allt dótið og taka upp úr kössum. Edda og Hildur Vaka komu 14. mars og við fórum strax í að athuga með vinnu fyrir Eddu en því miður reyndist ómögulegt að fá vinnu í svo stuttan tíma svo við ákváðum í síðustu viku að Edda færi aftur heim að vinna fram í maí og Hildur Vaka fer auðvitað með henni. Þær byrja báðar aftur á Grænuborg á mándudaginn. Ég er auðvitað ekki glaður með að missa stelpurnar mínar frá mér aftur en nú er ákveðinn tímarammi á aðskilnaðnum svo það gerir það auðveldara. Ég skutla þeim á flugvöllinn milli vakta á morgun. Frá og með föstudeginum er ég svo kominn í langt páskafrí því ég vinn ekki aftur fyrr en ég tek næturvaktina á þriðja degi páska. Nonni bróðir kemur til Noregs á Pálmasunnudag og verður í hálfan mánuð og síðan koma tengdaforeldrar mínir í heimsókn um páskana sem verður auðvitað frábært. Síðan er það bara lestur, vinna, svefn og hreyfing hjá mér í átta vikur þangað til stelpurnar mínar koma aftur með Möggu mágkonu með sér þann 23. maí.

8. mar. 2009

Mínir menn

Allir sem þekkja mig vita að mínir menn hafa verið Manchester United, Barcelona og Víkingur. Nú bætist að sjálfsögðu Stabæk við en þeir eru stærsta liðið í Bærum þar sem við búum og heita raunar eftir hverfi hér í Bærum. Þeir eru ríkjandi Noregsmeistarar og nokkrir Íslendingar hafa spilað fyrir liðið. Helgi Sigurðsson, Tryggvi Guðmundsson, Pétur Marteinsson, Marel Baldvinsson, Veigar Páll Gunnarsson og nú síðast Pálmi Rafn Pálmason sem enn spilar fyrir liðið.

Ég var einmitt að horfa á norska "góðgerðarskjöldin" þar sem Stabæk mætir Vålerenga. Honum lyktaði 3-1 fyrir Stabæk. Pálmi skoraði þriðja markið með glæsilegu skoti úr teignum, tók boltann á lofti og setti hann í markhornið. Hann er búinn að eiga góðan leik. Ég er ákveðinn í að vera duglegur að draga mæðgurnar með mér á völlinn enda spila þeir á glænýjum glæsilegum leikvangi á Fornebu. Heija Stabæk!!!

The Curious Case of Benjamin Button

Horfði á þessa mynd í gær. Hún var ágæt en ég get ekki sagt að mér finnist hún eitthvað meistaraverk. Skil ekki hvernig hún fékk allar þessar Óskarstilnefningar. Ágætis afþreying í besta falli.

Kominn heim til Bærum

Þá er ég kominn heim eftir góða ferð til Stavanger. Kúrsinn var frábær og ég lærði mikið á þessum 5 dögum. Næst ætlaði ég að taka kúrs hér í Osló í lok apríl en það er ekki víst að ég fái inn á hann. Sótti svo um þann þriðja sem fer fram í Tromsø í byrjun maí. Nóg að gera.

Ég kom sem sagt heim á föstudagskvöldið eftir töluvert ferðalag. Fyrst gekk ég frá hótelinu á umferðarmiðstöðina í Stavanger. Þaðan tók ég flugrútuna til flugvallarins í Sola. Síðan var það flugið til Gardermoen og svo fluglestina í gegnum Osló til Sandvikastöðvarinnar og þaðan tók ég svo leigubíl heim því strætóinn minn sem fer á klukkutíma fresti fór 2 mínútum áður en lestin stoppaði í Sandvika og ég nennti ekki að bíða í klukkutíma. Í gær sótti ég svo bílinn hans Nonna bróður í viðgerð og fór í leiðangur að kaupa mér snjóskóflu til að moka snjónum frá nýja húsinu. Hana vígði ég svo með því að moka snjó í 2 tíma í morgunn en er samt ekki hálfnaður með það sem ég þarf að moka áður en búslóðin kemur. Held því áfram á morgun og hinn.

5. mar. 2009

Hlaup

Ég er búinn að vera frekar duglegur að hlaupa hér í Stavanger og á mánudag og þriðjudag tók ég 7,6 km hring í kringum Mosvatnet en ákvað að taka mér frí í gær. Í kvöld ákvað ég að taka 15,4 km hring í kringum Stokkavatnet sem er annað vatn hérna í Stavanger. Geggjuð hlaupaleið í frábæru veðri. Nú er ég þreyttur.

Stavanger

Kúrsinn sem ég hef verið á er annar af tveimur grunnkúrsum í svæfingalæknisnáminu hér í Noregi. Námið er fremur fastmótað hér og liður í því er að maður verður að taka nokkra skyldukúrsa og nokkra valkúrsa. Þessi fjallar um endurlífgun, sérhæfða endurlífgun, sjúkraflutninga á landi og í lofti, endurlífgun barna og nýfæddra, móttöku slasaðra og alvarlega veikra og síðan er farið yfir grundvallaratriði í gjörgæslumeðferð. Hefur verið býsna góður kúrs og næstum allt hefur verið mjög lærdómsríkt. Borgin er líka mjög heillandi með líflegum miðbæ við höfnina með fallegum gamaldags krám og matsölustöðum í bland við nýtískuveitingahús sem eru innréttuð í gömlum pakkhúsum. Hér er líka fræg dómkirkja sem stendur alveg við hótelið mitt. Síðasti dagurinn er svo á morgun og ég flýg seinni partinn aftur í tóma kalda húsið í Bærum sem bráðum verðum fullt af búslóðinni okkar. Fæ hana á þriðjudaginn.

1. mar. 2009

Elgir í Bærum

Fyrstu kynni mín af elgjum hér í Noregi áttu sér stað í gærkvöldi. Ég fór þá út að hlaupa og var á ferðinni í skóginum fyrir ofan nýja heimilið okkar í Bærum og allt í einu sá ég elgskýr (heita það ekki örugglega kýr?) með stálpaðan kálf. Ég hef einhvern tíma verið varaður við að þetta séu stórhættulegar skepnur en held reyndar að það hafi átt sérstaklega við um tarfana. Alla vega voru þessi tvö óttalega huglaus og fóru undan mér á hlaupum þar til annar gaur með sultuhund kom á móti þeim á stígnum. Þá sneru þau við og komu á móti mér en þorðu ekki fram hjá svo enn sneru þau við. Þá vildi svo til að kýrin tók strikið fram hjá manninum með hundinn sem hafði vikið af stígnum en kálfurinn var of hræddur við sultuhundinn sem gelti eins og brjálaður. Hann varð því viðskila við móður sína og hljóp eitthvað út í buskann af stígnum og yfir akur sem var að sjálfsögðu á kafi í snjó eins og allt annað í Bærum. Ég hljóp áfram heim og prísaði mig sælan eftir fyrstu kynni mín af þessum stórhættulegu skepnum.

Manchester United Deildarbikarmeistarar

Glæsilegur sigur hjá mínum mönnum þó þeir þyrftu framlengingu og vítaspyrnukeppni til. Ég var sérstaklega ánægður með yngri strákana. Darron Gibson var sterkur á miðjunni, Jonny Evans spilaði frábærlega í vörninni og Foster var traustur í markinu. Welbeck fékk úr litlu að moða frammi og sást varla. Ég held samt að mestu vonbrigði dagsins hafi verið ömurleg frammistaða hjá Nani. Sigurinn var sanngjarn að mínu mati en auðvitað er aldrei sanngjarnt að sigra í vítakeppni.

Stavanger

Þá er maður kominn til Stavanger. Ákvað að drepa aðeins tímann á meðan ég bíð eftir mæðgunum, búslóðinni og bílnum og fara á fyrsta kúrsinn í svæfinganáminu. Hann er sumsé í Stavanger eða Stafangri eins og Íslendingar kjósa að kalla borgina. Það kom mér gríðarlega á óvart að koma úr öllum snjónum í Osló og í hálfgert vor hérna. Sex gráðu hiti og ekki eitt einasta snjókorn. Strákurinn í móttökunni sagði mér að hér snjóaði mjög sjaldan og snjórinn stoppaði yfirleitt stutt. Ég er strax orðinn mjög hrifinn af þessari borg. Snyrtileg og falleg, byggð meðfram ströndinni og á mörgum eyjum. Hér er líka mikið af vötnum og tjörnum og mikið hægt að stunda útivist inni í borginni. Skrifa meira þegar ég hef skoðað meira en fótboltapöbbana og Subway.

27. feb. 2009

Íbúðin seld

Þetta eru nú svo rosalegar stórfréttir að þær fá alveg sérstaka færslu. Við seldum íbúðina í gær. Þurftum auðvitað að slá verulega af ásettu verði en við erum sátt við niðurstöðuna. Við vorum svo sem ekki tilneydd að selja en það er ágætt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af einhverri íbúð heima á Íslandi. Nýi eigandinn er heppinn því okkur hefur liðið alveg gríðarlega vel í Hólmgarðinum og hefði íbúðin ekki verið svona lítil hefðum við vel getað hugsað okkur að búa áfram í þessu einstaka húsi. Við eigum eftir að sakna okkar frábæru nágranna úr Hólmgarðinum.

Fréttir

Nú hef ég ekki verið sérlega duglegur að blogga en ætla að bæta úr því núna

Íslandsferð
Eins og þið vitið flest var ég heima á Íslandi frá 13.-22. febrúar. Við Edda notuðum tímann vel til að pakka búslóðinni í gám, hitta fjölskyldu og vini og sýna áhugasömum íbúðina okkar. Þetta var mikið púsluspil og stress en gekk á endanum.

Flutningar
Eftir mikið drama fór gámurinn í skipið í gær og er á leiðinni til okkar. Við uppgötvuðum okkur til mikillar skelfingar að gámurinn stóð enn við Hólmgarð á miðvikudagskvöld en skv. heimasíðu Samskipa þarf hann að vera kominn kl. 17 á miðvikudegi niður á höfn til að ná skipinu sem leggur úr höfn á Íslandi á fimmtudögum. Við fengum að sjálfsögðu sjokk því ég það var umtalað við Samskip að gámurinn yrði sóttur á mánudeginum enda ekki huggulegt að hafa hann fyrir utan fjölbýlishús lengur en nauðsyn krefur. Þetta var þá allt partur af planinu hjá Samskip. Nota bílastæði úti í bæ til að geyma gáminn. Aðalatriðið er þó að gámurinn fór í skipið og kemur til Noregs í lok næstu viku. Stefnum á að afferma þriðjudaginn 11. mars.

Veikindi
Eftir allt stressið heima hlaut eitthvað að láta undan. Ég var hundslappur við komuna hérna út en dreif mig í vinnuna á mánudag. Veiktist svo á mánudagskvöld og lá þriðjudag og miðvikudag heima. Er að skríða saman en ekki orðinn alveg góður.

Húsið
Ég fékk húsið afhent á miðvikudag, fjórum dögum á undan áætlun. Það passaði eigendum betur því þau eru að flytja til Spánar og ég er auðvitað feginn líka. Ég flutti af Stensberggötu í gærkvöldi og svaf fyrstu nóttina á Arnesenga sl. nótt. Það var kalt og einmanalegt að sofa í galtómu húsinu einn en ég finn á mér að okkur á eftir að líða vel þarna og það verður gaman að fá gesti í gestaherbergið. Ég prufukeyrði húsið svolítið í gærkvöldi, þvoði þvott, kveikti upp í arninum og fór í sturtu. Allt virkaði fínt.

Hjólreiðar
Nú lengist aldeilis leiðin í vinnuna. Það verða tæpir 14 km hvora leið út apríl en eftir það verða það 18 km hvora leið. Ég fór þetta í fyrsta skipti í dag og var rétt rúmar 50 mínútur á leiðinni. Sé fyrir mér að vera 40 mínútur þegar færðin og formið skána og þá 50 mínútur á Ríkisspítalann.

Meistaradeildin
Ég er ánægður með frammistöðu minna manna á San Siro á þriðjudag. Þeir voru óheppnir að vinna ekki leikinn. Ég skil hins vegar ekki hvernig svona dapurt lið eins og Liverpool getur staðið sig svona vel í Meistaradeildinni á móti sterkustu liðum heims. Síðan geta þeir ekki neitt í úrvalsdeildinni. Ótrúlega undarlegt lið með ótrúlega undarlegan þjálfara.

Stavanger
Ég fer á fyrsta kúrsinn í svæfinganáminu í næstu viku. Hann er í Stavanger en mér skilst að það sé Houston þeirra Norðmanna þ.e. olíuborg. Hún var menningarborg Evrópu í fyrra og þar er víst margt flott að skoða. Ég er í það minnsta búinn að kynna mér hlaupaleiðir þar en ég hef ekki farið út að hlaupa síðan 31. janúar. Nú ætla ég að bæta úr því. Verð í Stavanger frá sunnudegi til föstudags. Tek svo vakt á sunnudegi og mánudegi og fæ vonandi gáminn á þriðjudegi.

Noregur trekkir
Tvær bekkjarsystur mínar úr læknadeildinni hafa ákveðið að reyna fyrir sér í Noregi. Friðný hefur störf á barnadeild Ullevålsjúkrahússins á mánudaginn en Sunna (Bella) kemur með haustinu og ætlar að reyna fyrir sér í háls-, nef- og eyrnalækningum, sennilega í Drammen. Alltaf gaman að fá fleiri Íslendinga, sérstaklega þegar það eru svona vönduð eintök.