22. apr. 2009

Kosningar 2009

Ég verð að viðurkenna að aldrei hef ég verið eins ringlaður fyrir kosningar. Hingað til hef ég aldrei verið í neinum meiriháttar vafa um hvað ég á að kjósa. Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur yfirleitt heillað mig og gerir það raunar enn en lengi hef ég verið efins um ágæti flestra þingmanna flokksins. Nú hefur að sjálfsögðu komið í ljós að sá efi var fullkomlega réttlætanlegur. Svo virðist sem heiðarlegt fólk eigi ekki upp á pallborðið í þessum flokki. Ungliðahreyfingarnar hafa í mörg ár verið keyrðar áfram með atkvæðasmölun og ber mér fyrir augu sem ekkert annað en kosningasvindl þó sjálfsagt sé það ekki þannig í laganna skilning. Mér misbauð algjörlega fyrir tæpum 10 árum síðan og hef ekki tekið þátt í ungliðastarfi flokksins síðan, fannst ég ekkert hafa þangað að sækja. Flokkurinn hefur verið að rotna innan frá síðan seint á 10. áratugnum a.m.k. og kannski lengur. Síðan koma þessi krakkagrey inn í prófkjörin og halda áfram sama djöfulsins bullinu, atkvæðasmölun og skítkasti. Skipulagðar herferðir gegn andstæðingum sínum í stað þess að byggja upp almennilega málefnalegan grunn fyrir kosningunni. Peningana fá þeir gefins frá illa innrættum peninganna mönnum sem hafa sjálfir efnast á því að taka lán og áhættur. Mútur?! Hverjum ætli þessi vesalings grey standi með þegar kemur að því að koma böndum á skúrkana. Auðvitað er inn á milli gott fólk eða í það minnsta fólk sem maður hélt að væri heiðarlegt. Ég hélt t.d. að Geir kallinn væri heiðarlegur en nú hefur komið í ljós að FL og LÍ mútuðu honum (styrktu hann/flokkinn) með 55 milljónum og enginn veit með vissu hvaðan restin kom. Í stuttu máli þá er enginn leið fyrir mig að styðja við bakið á svona löguðu. Engin leið að kjósa flokk sem eftir svona afhjúpun hefur ekki einu sinni dug í sér til almennilegrar endurnýjunnar. Ennþá sama helvítis keypta pakkið og áður, bara búið að fara í ljós og ný jakkaföt, smá í ræktina til Ágústu eða í WC. Helvítis fokking fokk!!! Eftir situr einn maður sem ég hef álit á en því miður er það ekki nóg til að kjósa flokkinn. Sá maður heitir Birgir Ármannsson.
Hvar stendur hægrisinnaður velferðarsinni þá á Íslandi. Skoðum aðeins landslagið:

Samfylkingin
Hér höfum við flokk sem er að minnsta kosti jafnspilltur og Sjálfstæðisflokkurinn þar sem fyrrum formaður hefur viðurkennt að hafa veit háum styrkjum frá Baugi viðtöku og nú hefur komið í ljós að þingmenn flokksins voru einnig keyptir að einhverju leyti. Samansafn af Evrópusinnum, félagshyggjubruðlurum og froðusnökkum. Ég hafði ákveðið álit á Ágústi Ólafi en hann var líka sá eini og er að sjálfsögðu kominn í frí frá pólítík. Ætli við sjáum hann nokkuð aftur. Formaðurinn er svo sem ágætis kerling en algjörlega vanhæfur forystumaður og eins og sagan sýnir okkur gjörsamlega ófær um að sýna aðhald. Hættulegt ætli hún að stjórna ríkisstjórn.

Vinstri grænir a.k.a. Hinn íslenski sósíalistaflokkur/Alþýðubandalagið
Það er vel hægt að gefa marxistaflokki nýtt nafn en þegar allt kemur til alls er það að sjálfsögðu stefnan sem skilgreinir flokkinn. Þrátt fyrir að reynt hafi verið að dulbúa sósíalísku stefnuna með náttúrverndarhjali getur hver einasti maður séð að um hreina sósíalíska stefnu er að ræða. Hún er svo sem góðra gjalda verð en hvernig á maður að treysta fólki til að leysa úr vandræðum þjóðarinnar þegar það þorir ekki einu sinni að koma fyrir sjónir kjósenda eins og það er klætt. Heigulsháttur ef þið spyrjið mig. Þó mega þingmenn VG eiga það að maður hefur á tilfinningunni að um heiðarlegt fólk sé að ræða. Því miður er það bara ekki nóg þegar stefnumál flokksins eru stórhættuleg fyrir þjóð í nauðum. Égmundi ekki geta horft í augun á börnunum mínum eftir 20 ár og sagt þeim að ég hafi stutt stjórn VG og Samfylkingar sem við fáum að sjálfsögðu eftir kosningar. Sjálfseyðingarhvöt landsmanna?

Framsóknarflokkurinn
Hvað er hægt að segja um Framsókn. Spilltasti og tengdasti flokkur landsins. Samansafn af hugsjónalausum framapoturum sem velja sér Framsókn af því að það er auðveldast að komast til áhrifa þar. Gamli bændaflokkur Íslands en ég held að langflestir íslenskir bændur séu löngu hættir að kjósa þá. Flestir velja Sjálfstæðisflokk eða Samfylkingu af þeim sem ég þekki, kannski einhverjir VG. Holdgervingur afturhalds og stöðnunar í íslenskri sögu í áratugi. Nýi formaðurinn algert súkkulaði og engan veginn tilbúinn í djobbið. Aldrei í lífinu kysi ég Framsóknarflokkinn.

Frjálslyndi flokkurinn
Skelfileg saga sundurlyndis og persónuárása innanbúðar. Ógeðfelld stefna í innflytjendamálum hjá ákveðnum aðilum sem ég taldi víst að yrði dregin upp í aðdraganda kosninganna en sennilega hefur tekist að koma böndum á hana. Samansafn þingmanna sem ég ber ekki nokkuð traust til. Vonlaust að kjósa þá.

Borgarahreyfingin
Ég var mjög opinn fyrir nýju framboði fyrir þessar kosningar og hef lagt mig allan fram um að vera jákvæður gagnvart þeim. Tillögur að úrbótum eftir kosningar hafa hins vegar verið barnalegar og stefnan nánast ósýnileg. Fulltrúar hreyfingarinnar sem ég hef heyrt til í besta falli verið hlægilegir. Sorglegt að ekki fáist almennilegt fólk úr þjóðfélaginu til að leggja nýju stjórnmálaafli lið. Það að þeir fái þó þetta mikið fylgi í könnunum segir manni að það hefði verið gríðarlegur hljómgrunnur fyrir almennilegu nýju framboði. Svekkjandi að það skyldi ekki koma fram.

Lýðræðishreyfingin
Ein ástæða til að kjósa hana ekki og algerlega nægjanleg: Ástþór Magnússon. Maðurinn hlýtur að vera að grínast.

Hvað kýs ráðvilltur lítill maður þá. Ekki neitt. Ég ætla að sitja hjá í þetta skiptið. Finnst það ömurlegt en veit að mér mundi finnast ömurlegra að velja einhvern þeirra kosta sem í boði eru.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll!
Tengdamamma þín skemmti sér við lestur um flokkana. Mér fannst þetta líka allt saman góð pæling.
Kær kveðja Edda Guðrún