29. mar. 2009
Kannabis og aftur kannabis
Djöfuls rosalegur gangur er í Fíknó. Þeir loka hverri nýsköpunarsprotaverksmiðjunni á fætur annarri þessa dagana. Það er gott að einhver er að standa sig í þessari fjandans kreppu. Lögreglumenn Íslands standa upp úr sem hetjur síðustu mánaða. Frábært starf í fíkniefnamálum og fumlaus og fagleg vinnubrögð þegar tekið var á ótýndum glæpamönnum og aumingjum sem reyndu að hleypa annars nauðsynlegum og friðsamlegum mótmælum upp í vitleysu. Ofbeldi á ekkert skylt við mótmæli. Þetta fólk á heima bak við lás og slá.
1 ummæli:
http://mbl.is/halldor/2009/03/30/bofi/
Þessi nýji Sigmund er mjög góður.
Kveðja frá okkur tveimur í Lönguhlíðinni, já enn bara við tvö.
Gunni
Skrifa ummæli