Allir sem þekkja mig vita að mínir menn hafa verið Manchester United, Barcelona og Víkingur. Nú bætist að sjálfsögðu Stabæk við en þeir eru stærsta liðið í Bærum þar sem við búum og heita raunar eftir hverfi hér í Bærum. Þeir eru ríkjandi Noregsmeistarar og nokkrir Íslendingar hafa spilað fyrir liðið. Helgi Sigurðsson, Tryggvi Guðmundsson, Pétur Marteinsson, Marel Baldvinsson, Veigar Páll Gunnarsson og nú síðast Pálmi Rafn Pálmason sem enn spilar fyrir liðið.
Ég var einmitt að horfa á norska "góðgerðarskjöldin" þar sem Stabæk mætir Vålerenga. Honum lyktaði 3-1 fyrir Stabæk. Pálmi skoraði þriðja markið með glæsilegu skoti úr teignum, tók boltann á lofti og setti hann í markhornið. Hann er búinn að eiga góðan leik. Ég er ákveðinn í að vera duglegur að draga mæðgurnar með mér á völlinn enda spila þeir á glænýjum glæsilegum leikvangi á Fornebu. Heija Stabæk!!!
4 ummæli:
Pálmi lærði allt sem hann kann hjá Val.
Gunni
Gott cmment hjá síðasta ræðumanni. Þú átt eftir að eiga auðvelt með að draga okkur mæðgurnar á völlinn. Við Valsararnir hvetjum að sjálfsögðu Valsarann í liðinu.
Kv. Edda
Eins og allir vita er Pálmi Rafn frá Húsavík og lærði að spila fótbolta þar og á Akureyri. Hann spilaði stuttlega með Val en lærði lítið þar og er ekki Valsari frekar en Eiður Guðjohnsen eða Guðmundur Benediktsson. Ég er hins vegar ánægður með að þessi misskilningur verði til þess að þú komir með mér á völlinn ástin mín.
Trallalei, 1-4!!! Til hamingju samt með titilinn! Nokkuð góð frammistaða gegn toppliðunum en ekki nógu góð gegn minni spámönnum.
Kv,
Kobbi
Skrifa ummæli