Nú hef ég ekki verið sérlega duglegur að blogga en ætla að bæta úr því núna
Íslandsferð
Eins og þið vitið flest var ég heima á Íslandi frá 13.-22. febrúar. Við Edda notuðum tímann vel til að pakka búslóðinni í gám, hitta fjölskyldu og vini og sýna áhugasömum íbúðina okkar. Þetta var mikið púsluspil og stress en gekk á endanum.
Flutningar
Eftir mikið drama fór gámurinn í skipið í gær og er á leiðinni til okkar. Við uppgötvuðum okkur til mikillar skelfingar að gámurinn stóð enn við Hólmgarð á miðvikudagskvöld en skv. heimasíðu Samskipa þarf hann að vera kominn kl. 17 á miðvikudegi niður á höfn til að ná skipinu sem leggur úr höfn á Íslandi á fimmtudögum. Við fengum að sjálfsögðu sjokk því ég það var umtalað við Samskip að gámurinn yrði sóttur á mánudeginum enda ekki huggulegt að hafa hann fyrir utan fjölbýlishús lengur en nauðsyn krefur. Þetta var þá allt partur af planinu hjá Samskip. Nota bílastæði úti í bæ til að geyma gáminn. Aðalatriðið er þó að gámurinn fór í skipið og kemur til Noregs í lok næstu viku. Stefnum á að afferma þriðjudaginn 11. mars.
Veikindi
Eftir allt stressið heima hlaut eitthvað að láta undan. Ég var hundslappur við komuna hérna út en dreif mig í vinnuna á mánudag. Veiktist svo á mánudagskvöld og lá þriðjudag og miðvikudag heima. Er að skríða saman en ekki orðinn alveg góður.
Húsið
Ég fékk húsið afhent á miðvikudag, fjórum dögum á undan áætlun. Það passaði eigendum betur því þau eru að flytja til Spánar og ég er auðvitað feginn líka. Ég flutti af Stensberggötu í gærkvöldi og svaf fyrstu nóttina á Arnesenga sl. nótt. Það var kalt og einmanalegt að sofa í galtómu húsinu einn en ég finn á mér að okkur á eftir að líða vel þarna og það verður gaman að fá gesti í gestaherbergið. Ég prufukeyrði húsið svolítið í gærkvöldi, þvoði þvott, kveikti upp í arninum og fór í sturtu. Allt virkaði fínt.
Hjólreiðar
Nú lengist aldeilis leiðin í vinnuna. Það verða tæpir 14 km hvora leið út apríl en eftir það verða það 18 km hvora leið. Ég fór þetta í fyrsta skipti í dag og var rétt rúmar 50 mínútur á leiðinni. Sé fyrir mér að vera 40 mínútur þegar færðin og formið skána og þá 50 mínútur á Ríkisspítalann.
Meistaradeildin
Ég er ánægður með frammistöðu minna manna á San Siro á þriðjudag. Þeir voru óheppnir að vinna ekki leikinn. Ég skil hins vegar ekki hvernig svona dapurt lið eins og Liverpool getur staðið sig svona vel í Meistaradeildinni á móti sterkustu liðum heims. Síðan geta þeir ekki neitt í úrvalsdeildinni. Ótrúlega undarlegt lið með ótrúlega undarlegan þjálfara.
Stavanger
Ég fer á fyrsta kúrsinn í svæfinganáminu í næstu viku. Hann er í Stavanger en mér skilst að það sé Houston þeirra Norðmanna þ.e. olíuborg. Hún var menningarborg Evrópu í fyrra og þar er víst margt flott að skoða. Ég er í það minnsta búinn að kynna mér hlaupaleiðir þar en ég hef ekki farið út að hlaupa síðan 31. janúar. Nú ætla ég að bæta úr því. Verð í Stavanger frá sunnudegi til föstudags. Tek svo vakt á sunnudegi og mánudegi og fæ vonandi gáminn á þriðjudegi.
Noregur trekkir
Tvær bekkjarsystur mínar úr læknadeildinni hafa ákveðið að reyna fyrir sér í Noregi. Friðný hefur störf á barnadeild Ullevålsjúkrahússins á mánudaginn en Sunna (Bella) kemur með haustinu og ætlar að reyna fyrir sér í háls-, nef- og eyrnalækningum, sennilega í Drammen. Alltaf gaman að fá fleiri Íslendinga, sérstaklega þegar það eru svona vönduð eintök.
1 ummæli:
Sæll!
Gaman að fá fréttir af þér. Ekkert smá flott að geta hjólað svona í vinnuna og þú verður orðinn svakalegur, með þvílík læri og rass. Já það þíðir ekkert að hætta að hlaupa og leggjast í dvala.
Já þetta liverpool lið er ekkert smá leiðinlegt og ég er ónýtur eftir að hafa horft á þessi hörmung með Árna félaga. Hefur þú tekið einhver geð-kúrs?
Kv Hjalti
Skrifa ummæli