27. feb. 2009
Íbúðin seld
Þetta eru nú svo rosalegar stórfréttir að þær fá alveg sérstaka færslu. Við seldum íbúðina í gær. Þurftum auðvitað að slá verulega af ásettu verði en við erum sátt við niðurstöðuna. Við vorum svo sem ekki tilneydd að selja en það er ágætt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af einhverri íbúð heima á Íslandi. Nýi eigandinn er heppinn því okkur hefur liðið alveg gríðarlega vel í Hólmgarðinum og hefði íbúðin ekki verið svona lítil hefðum við vel getað hugsað okkur að búa áfram í þessu einstaka húsi. Við eigum eftir að sakna okkar frábæru nágranna úr Hólmgarðinum.
1 ummæli:
Góðar fréttir og gaman fyrir þig að fá dömurnar þínar út. Fylgjumst vel með þér þarna úti.
Vonum að okkar menn taki þetta á morgun.
MAN UTD kv Hjalti
Skrifa ummæli