Þá er ég kominn heim eftir góða ferð til Stavanger. Kúrsinn var frábær og ég lærði mikið á þessum 5 dögum. Næst ætlaði ég að taka kúrs hér í Osló í lok apríl en það er ekki víst að ég fái inn á hann. Sótti svo um þann þriðja sem fer fram í Tromsø í byrjun maí. Nóg að gera.
Ég kom sem sagt heim á föstudagskvöldið eftir töluvert ferðalag. Fyrst gekk ég frá hótelinu á umferðarmiðstöðina í Stavanger. Þaðan tók ég flugrútuna til flugvallarins í Sola. Síðan var það flugið til Gardermoen og svo fluglestina í gegnum Osló til Sandvikastöðvarinnar og þaðan tók ég svo leigubíl heim því strætóinn minn sem fer á klukkutíma fresti fór 2 mínútum áður en lestin stoppaði í Sandvika og ég nennti ekki að bíða í klukkutíma. Í gær sótti ég svo bílinn hans Nonna bróður í viðgerð og fór í leiðangur að kaupa mér snjóskóflu til að moka snjónum frá nýja húsinu. Hana vígði ég svo með því að moka snjó í 2 tíma í morgunn en er samt ekki hálfnaður með það sem ég þarf að moka áður en búslóðin kemur. Held því áfram á morgun og hinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli