Héðan er svo sem ekki mikið að frétta annað en ég vinn og les og sef.
Boltinn
Það er landsleikjapása í deildunum og þá er auðvitað ekkert að gera annað en að horfa á landsleikina. Er að fylgjast með Norðmönnum spila við Finna. Staðan 0-1 hér í Osló eftir fyrri hálfleik en Norðmenn voru að jafna. Íslendingar og Englendingar eru að spila líka þannig að það er nóg af leikjum að fylgjast með. Áfram Ísland!!!
Fjölskyldan
Eins og flestir vita neyddist Edda til að fara aftur heim með Hildi Vöku til að vinna aðeins því lítið var í boði hér úti fyrir ófrískan Íslending. Hún ætlar því að vera heima fram í maí og kemur aftur út til mín þá. Ég tel niður dagana þar til ég sé stelpurnar mínar aftur.
Vinnan
Ég reyni auðvitað að nota tímann á meðan ég er einn til að vinna eins mikið og ég get og síðan les ég á milli. Ég hef fengið upplýsingar um næstu rótasjón hér á sjúkrahúsinu og hún er ekki af verri endanum því ég verð á hjarta- og lungnasvæfingunni. Við erum að tala um stórar hjartaaðgerðir á fullorðnum og börnum, hjartaígræðslur og svoleiðis. Verður rosalega gaman og ég er þegar farinn að undirbúa mig með lestri. Hér úti er mikið lagt upp úr því að maður lesi í kringum vinnuna og því fær maður einn dag aðra hverja viku til lestrar. Það er auðvitað ekki alltaf sem gengur upp vegna manneklu að losa mann úr vinnu en það hefur gengið vel upp á síðkastið og þá notar maður tímann auðvitað vel. Annars hefur þetta farið vel af stað hérna úti og ég er gríðarlega sáttur með að vera loksins kominn af stað í sérnáminu mínu.
Veðrið
Eftir öll snjóþyngslin fyrstu 3 mánuðina hér er allt í einu að koma sumar. Nú er hver dagurinn á fætur öðrum sólskinsdagur með hlýju veðri en næturnar eru áfram kaldar. Íslenskt maíveður ef svo má segja og mér finnst eins og ég verði að fara að lesa undir próf. Ég held að sumarið sé á næsta leyti.
Kreppan
Það er ljóst að kreppan hefur komið við okkur eins og aðra. Maður finnur t.d. fyrir því þegar maður ætlar að flytja peningana sína að heiman hingað út. Það er ekki einfalt. Hins vegar getur maður huggað sig við það að á meðan vinstri stjórnin situr heima virðist gengi krónunnar á niðurleið og það kemur sér ágætlega þegar maður er með tekjur í erlendri mynt. Ekki minnka gjaldeyrishöftin ef marka má aðgerðir síðustu daga.
4 ummæli:
Blessaður,
Jakob Friðriks benti mér á bloggið þitt,gaman að það gengur vel hjá þér þarna úti.
á hvaða spítala ertu? Veistu eitthvað um hvernig svæfingarhjúkrunarnámið er þarna?
kv. Óli
Sæll Óli!
Ég er á Ríkisspítalanum í Osló. Hér virðist mér vera hár standard á svæfingarhjúkrun. Veit ekki hvort það er námið eða starfið. Hér er reyndar bara hár standard á heilbrigðisþjónustu virðist vera. Get örugglega spurst fyrir um þetta fyrir þig ef þú vilt.
MBK
GBB
já endilega það væri gaman. Er að skoða svæfingarnám viðsvegar en er eiginlega búinn að þrengja þetta í USA eða noreg. Finnst samt mjög erfitt að skilja hvernig þetta nám er í noregi... svo ef þú getur tékkað á því þá væri það grand
kv.Óli
FEDERICO MACHEDA!!! F#*$ING MACHEDA. ARGGHH Svo mikil snilld!!!!
GT
Skrifa ummæli