30. ágú. 2006

Sérkennilegar sektir og fleira úr boltanum
Eins og sjá má á þessari frétt þá er Manchester City búið að kveða upp úrskurð sinn í málefnum Bens Thatcher. Allt í lagi að dæma hann í sex vikna bann en það er sektin sem vekur athygli mína. Sex vikna laukur er klárlega undarlegasta sekt sem ég hef heyrt um í boltanum.
Síðan fannst mér leiðinlegt að sjá Rossi vera lánaðan til Newcastle. Ég hefði viljað sjá svolítið af þessum snilling í aðalliði United í haust. Ég vona bara að hann standi sig vel hjá Newcastle og meiðist ekki illa eins og allir framherjar sem spila fyrir þetta sorglega lið.
United hefur ekki enn keypt nýjan miðjumann en það hefur svo sem ekki verið hægt að kvarta undan miðjunni hjá mínum mönnum fram að þessu þrátt fyrir að Scholes hafi verið meiddur. Ég vona bara að Ferguson klári þetta á morgunn.

Góða ferð
Ljós-Gíslinn óskar urðarkettinum góðrar sjóferðar. Ég vona að hann kynnist nokkrum kisulórum í ferðinni.

28. ágú. 2006

Boltahornið
Mínir menn kláruðu þetta á laugardaginn þó ekki sé hægt að tala um nokkurn stæl. Fínt mark hjá Silvestre og Giggs fékk seinna markið gefins. Ég var ósáttur við varnarleikinn og mér fannst Ferdinand vera algjörlega einbeitingarlaus allan leikinn nema ef vera skyldi í því að rífast í dómaranum. Silvestre gerði líka slæm mistök í marki Watford en átti annars ágætan leik. Carrick var alls ekki sannfærandi í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu. Giggs og Ronaldo voru sprækir en þó nokkuð frá sínu besta. Ég held reyndar að Watford sé bara með þrusugott lið sem er þrælskipulagt og skemmtilega spilandi fram á við á köflum.
Annað sem ég rak augun í um helgina er ótrúlegt mál í Frakklandi sem sannar enn og aftur að Frakkar eru fífl. Makalele ákvað að hætta að spila með landsliðinu en franski landsliðsþjálfarinn velur hann samt í landsliðið og ætlar að fara með málið í hart hjá FIFA ef hann mætir ekki. Fáránlegt mál. Mér finnst einhvern veginn að það eigi að vera val hvers og eins hvort hann vill spila með landsliðinu. Það væri gaman að sjá Chelsea fara með þetta mál í mannréttindadómstólinn ef úr verður.

Utanvegaakstur
Ég er alveg gáttaður á fréttum dagsins. Það voru einhverjir mótorhjólagarpar að leika sér á torfæruhjólum á melum og söndum á hálendinu og einhverjir landvarðahálfvitar hringdu á þyrlu landhelgisgæslunnar til að elta þá uppi. Það er ekki svo að skilja að ég er alfarið á móti utanvegaakstri en þegar hann á sér stað á melum og söndum þá finnst mér það bara allt í lagi. Þessi hjólför verða sjálfsagt horfinn eftir ár og enginn skaði skeður. Við höfum svo sem lent í þessum miðborgarbörnum sem starfa sem landverðir í hestaferðunum okkar. Besta dæmið er þegar við lentum í einum úr Landmannahelli fyrir nokkrum árum. Við áðum við á ca. 5 km frá skálanum. Þar var grasflöt sem var í hálfgerðri órækt og hafði greinilega verið sina þar frá árinu áður. Hestarnir gátu þó kroppað eitthvað aðeins og skitu líka úr sér í leiðinni. Eftir um það bil 10 mínútur kom landvörður á Land Rover á öðru hundraðinu til að reka okkur í burtu. Við hrökkluðumst af stað og hestagreyin stóðu á mel alla nóttina með einhverja hálfónýta heyrúllu sem seld var gegn okurverði af sama landvarðargreyinu. Árið eftir fórum við um sömu slóðir og litum á litla viðkvæma grasbalann. Þar var auðvitað eini græni bletturinn á stóru svæði enda hafði engin sina að ráði verið þar um haustið og skíturinn hafði nært grasrótina á þessum endalausa helvítis vikurmel þarna í kringum Heklu. Síðan eru það sömu helvítis aumingjarnir sem éta helst ekkert nema lífrænt ræktað grænmeti sem er auðvitað ræktað með lífrænum áburði, nefnilega skít. Sumt fólk er bara ekki með heilann gangandi á öllum stimplum.

26. ágú. 2006

Boltinn
Djöfull er ég sáttur við Stuart Pearce og enska knattspyrnusambandið. Pearce er búinn að bannfæra Thatcher hjá City og sambandið hefur ákveðið að gera undantekningu á reglum sínum agabrot og taka mál Thatchers sérstaklega fyrir. Sambandið tók líka ákvörðun um að fella dómara leiksins Dermot Gallagher niður um deild og ég segi bara farið hefur fé betra. Þvílík yfirsjón hjá þessum gagnslausa dómara sem alltaf hefur dæmt eins og hauslaus hæna.

Leikur minna manna í dag er svo gegn nýliðum Watford á Vicarage Road. Ætli maður reyni ekki að kíkja á hann einhvers staðar. Ég held að Watford verði ekki mikil fyrirstaða fyrir mína menn sem eru í feiknastuði þessa daganna. Solskjær setur tvö og Saha eitt. Ronaldo leggur allt upp. Bjartsýni.

Afmæli í kvöld
Við erum boðin í u.þ.b. 60 ára afmæli hjá Hjölla og Toniu í kvöld. Hjölli varð nú þrítugur á sl. ári og mér skilst að Tonia sé 29 svo þau eru að halda upp á þrítugsafmæli svona að meðaltali í kvöld. Góð hugmynd. Ég hlakka til að sækja þau skötuhjúin heim en þarf svo reyndar að sinna sjúkum frá kl. 21 í kvöld til morgunns. Það er svo merkilegt að ég var alltaf mjög fiskinn á rólegar og þægilegar vaktir þegar ég var stúdent og kandídat en eftir að ég byrjaði á svæfingunni hefur færst yfir mig eitthvað "mikiðaðgerarigningarský" svo nú eru allar vaktir hjá mér brjálaðar. Er búinn að taka 3 vaktir eftir að ég byrjaði á lyflækningasviði og það hefur verið heilmikið að gera. Að hluta til er það líklega vegna þess að ég er ekki nógu rútíneraður í þessari vinnu lengur og það kemur nú reyndar fljótt en svo hefur líka bara verið heilmikið að gera líka. Vonum að það verði skárra næstu tvær nætur.

Samfylkingin
Ég hef allt frá stofnun Samfylkingarinnar haft mikinn áhuga á því að heyra hvers vegna fólk kýs þessa vitleysinganna í stórum stíl. Ég get alveg skilið liðið sem kýs Steingrím J. þó ég mundi aldrei gera það en ég get bara ekki skilið hvað fólk sér við Ingibjörgu og Dag svo ekki sé nú talað um Stefán Jón og Steinunni Valdísi. Dagur er að vísu sómadrengur að vinna með og hörkuklár í sínu fagi eftir því sem ég best veit en hann er ekki bara á rangri hillu í pólítíkinni, hann er í kolvitlausri hillusamstæðu. Það sem fer þó mest í taugarnar á mér við stjórnartíð Samfylkingarinnar í borginni var hvernig borgarfulltrúar eyddu stórfé úr sjóðum borgarinnar til að redda einstökum tilfellum vandamála í stað þess að ráðast að rótum vandans og leysa öll tilfellin í eitt skipti fyrir öll.

Pæling
Hafið þið spáð í hvað það er merkilegt hvað við hneykslumst á hlutum í ákveðnu hlutfalli við bakrunn einstaklingsins sem á í hlut. Hvernig haldiði t.d. að það væri ef landsamband kvenfélaga ákvæði að fara í árlega gleðigöngu niður Laugaveginn á nærfötunum einum fata. Nú eða ef læknar og hjúkrunarfræðingar sem reykja mundu stofna sérstök samtök um mannréttindi reykingafólks. Ég vil taka það fram að mér finnst Gay pride frábært innlegg í menningarlíf borgarinnar og það gleður mig að sjá að réttindastaða samkynhneigðra er í stöðugri framför. Réttindastaða reykingafólks er mér líka hugleikin því það er eftir allt saman ekki annars flokks borgarar. Mér finnst bara svolítið gaman að setja einhvern annan minnihlutahóp inn í umhverfið og hefðina sem ákveðinn hópur hefur skapað sér.

Misnotað orð - Mannréttindi
Það er svolítið sorglegt hvað menn bera litla virðingu fyrir orðinu mannréttindi. Ég hef heyrt misbrattar mannvitsbrekkur tala um reykleysi öldurhúsa sem sjálfsögð mannréttindi starfsmanna þeirra. Það eru líka orðin mannréttindi að ríkið borgi brúsann í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfinu. Það eru sjálfsögð mannréttindi að 17000 manns útskrifist úr viðskipta- og tölvufræði á hverju misseri að stórum hluta á kostnað hins opinbera. Svo á líka ríkið að lána námsmönnunum fyrir sígó og mohito á námsárunum og námsmennirnir vilja helst ekki borga neitt til baka, a.m.k. er það af og frá að ríkið eigi að fá nokkra vexti. Þetta eru allt saman orðin mannréttindi. Svo eru náttúrlega líka mannréttindi að þjóðin fái að kjósa um hverja einustu helvítis framkvæmd ríkisins, hvort sem það eru virkjanaframkvæmdir eða lög gegn hringamyndun. Nú til dags er allur andskotinn orðinn mannréttindi og ég verð nú bara að segja að ég kæri mig ekki um öll þessi helvítis mannréttindi. Ég á fullt í fangi með trúfrelsið, fjárræðið og sjálfsákvörðunarvaldið svo ekki sé nú talað um málfrelsið eins og mýmörg dæmin sanna.

25. ágú. 2006

Langt síðan síðast
Mér ætlar ekki að takast almennilega að halda dampi við þessa endurlífgun bloggsins en nú þegar haustar ætla ég að reyna að taka mig á. Nú er því ofurblogg.

Hamarsheiði II
Þvíumlík snilld að vera kominn með athvarf frá amstri hversdagsins á mölinni. Við höfum, fyrir þá sem ekki vita það nú þegar, keypt fjórðung í jörð austan fjalls, nánar tiltekið í Gnúpverjahreppi. Þetta er í næsta nágrenni við Steinsholt þar sem við feðgarnir vorum í sveit og Sigurður bóndi hefur verið sérlegur ráðgjafi okkar í hverju því sem viðkemur búskap, allt frá girðingavinnu til heyskapar svo ekki sé nú talað um yfirvofandi dráttarvélakaup. Hina fjórðungana eiga foreldrar mínir, Nonni bróðir og Sigrún konan hans og svo Guðrún systir hans pabba ásamt manninum sínum nafna mínum. Þarna hef ég eytt drjúgum parti frítíma míns í sumar og við vorum t.d. þarna fyrstu 12 dagana í ágúst að girða og koma þessu í stand. Síðan var reyndar heyskapur í síðustu viku en þá var ég bundinn við vinnu hér í bænum. Það hefur í stuttu máli gengið framar vonum með heyskapinn en girðingarvinnan reyndist seinlegri en talið var í fyrstu og þarf ég að klára þetta einhverjar helgar í haust áður en hægt verður að hleypa skepnum á þetta land sem verið var að girða.
Við höfum reyndar ekki staðið í þessu einir því við fengum ómetanlega hjálp frá Ingvari, Þór og Viðari um verslunarmannahelgina en móðir náttúra kom í veg fyrir að við gætum notað krafta þeirra til fullnustu, bæði með leiðinlegu veðri og erfiðu girðingarstæði. Íris hans Þórs kom líka og hjálpaði til við að koma húsinu í stand og draga óheppna gesti upp úr drullupyttum á jeppanum þeirra Þórs. Við skemmtum okkur síðan við mat, drykk, útreiðar og pottaböð á kvöldin svo úr varð ein alskemmtilegasta verslunarmannahelgi sem ég hef upplifað. Það var sérstaklega skemmtilegt þegar Íris fór hálf í kaf í Kálfá en það verður að teljast afrek út af fyrir sig. Henni varð ekki meint af og nú höfum við stórskemmtilega sögu að segja í hvert sinn sem við förum saman á útreiðar.

Hestamennskan
Það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast í seinni tíð er að sjálfsögðu það að mér er að takast að smita fjöldann allan af félögum mínum af hestabakteríunni og það án nokkurrar fyrirhafnar. Fyrir utan þau fjórmenningana eru Ingólfur og Áslaug og Emil og Berglind veik fyrir og svo er Gunni Thor allt í einu orðinn heitur og það án nokkurrar fyrirhafnar af minni hálfu. Gunni hefur alltaf verið frábeygður hestamennsku og á köflum bara hreint út sagt smeykur við hesta þegar við vorum strákar. Nú er hann hins vegar ákveðinn í að láta á þetta reyna og ætlar að fylgja pabba sínum í þessu í vetur. Það verður gaman að sjá hvernig það lukkast en það er nú reynsla mín að þegar menn koma inn í þetta með því hugarfari sem Gunni hefur þá eru þeir fljótir að bíta á öngulinn.

Boltahornið
Víkingarnir mínir eru ekki alveg að slátra deildinni en þeir eru alla vega ekki að tapa mikið og vinna síðan stórt á milli. Ég er hræddur um að síðustu umferðirnar verði þeim erfiðar en það eru leikir við KR-inga og Skagamenn heima og FH-inga í Kaplakrika. Þeir hafa síðustu ár verið í miklum vandræðum með að vinna KR en eru í sumar búnir að vinna Skagamenn uppi á skaga og FH-inga í Kaplakrikanum í bikarnum. Sennilega dugir þeim að vinna aðeins einn af þessum leikjum en betra væri að taka tvo og tryggja sig. Þeir eru líka með bestu markatöluna af þessum liðum þarna í baráttunni svo það getur fleytt þeim langt.

Mínir menn í Manchester eru hins vegar í þrumustuði með markatöluna 8-1 eftir fyrstu tvo leikina og það voru meira að segja leikir gegn liðum sem hafa oft strítt okkur seinni árin. Reyndar tókum við 6 stig á móti báðum þessum liðum í fyrra en þetta er engu að síður fín byrjun. Ég er sérstaklega ánægður með Ronaldo sem virðist hafa þroskast heilmikið á mótlætinu og hreinlega þrífst á því. United aðdáendurnir standa líka vel við bakið á honum sem er auðvitað það eina rétta þó hann hafi hagað sér kjánalega. Það kemur fyrir á bestu bæjum. Ég verð nú að segja að mér finnst þeir ekkert mjög sannfærandi í vinaleiknum hann og Rooney en á meðan það hefur ekki áhrif á leik liðsins er mér slétt sama þó þeir þoli ekki hvorn annan utan vallar. Sendingin hans Rooneys á Ronaldo í markinu á sunnudaginn var náttúrlega bara snilld og afgreiðslan ekki síðri. Svo er Skerið komið á kreik aftur og þá held ég að mörkin muni ekki láta á sér standa.

Chelsky er líka eitthvað að fatast flugið. Ég las mjög skemmtilega tölfræði í Fréttablaðinu í dag um það að þeir hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum í úrvalsdeildinni og aðeins unnið tvo leiki á útivelli síðan í janúar. Ég held að Chelsea sé liðið sem önnur lið þurfa að skáka til að vinna deildina og held að MUFC og Liverpool verði liðin sem munu gera hvað harðasta hríðina að meistaratitlinum. Arsenal verður í lægð eitt ár í viðbót en koma svo sterkir á næsta ári. Tottenham gæti blandað sér í toppbaráttuna en ég held að þeir hafi ekki nógu mikla breidd til að taka titilinn. Held samt að þeir muni verða í meistaradeildarsæti þegar tímabilið er á enda á kostnað Arsenal. Kannski er þetta bara óskhyggja en maður má alltaf vona.

Það síðasta sem ég ætla að minnast á í boltahorninu er líkamsárás Bens Thatcher á Pedro Mendes. Persónulega finnst mér að þetta brot eigi að negla síðasta naglann í kistu þeirrar fáránlegu reglu að þegar refsað er fyrir brot í leik t.d. með áminningu, sé ekki hægt að bæta í refsinguna að leik loknum. Svona lagað finnst mér verðskulda langt bann, helst út tímabilið. Menn fá fleiri mánaða bann fyrir að gleyma að pissa í glas en sleppa svo með svona líkamsárásir af því að dómarinn er svo mikill heigull að gefa bara gult. Fáránlegt mál og ég vona bara að hann verði settur í grjótið helvískur og dómarinn með. Svona eru þessir helvítis Citymenn.

Pólítíkin
Framsóknarflokkurinn er merkilegt fyrirbæri sem virðist hafa einhverja innri sjálfseyðingarhvöt. Hvernig dettur mönnum í hug að kjósa Halldór yngri í formannsstólinn? Ég bara skil ekki svona einbeittan brotavilja. Ég held að þessi kosning á formanni og varaformanni verði banabiti flokksins og það mun litlu breyta þó Sæunn samstúdent minn sitji þarna og skrifi fundargerðir. Ég geri mér svo sem grein fyrir að ritari flokksins gegnir viðameira hlutverki en það en mér fannst borðleggjandi að losa flokkinn úr viðjum fortíðar með því að kjósa Siv í formannsstólinn. Ég er svo sem ekki að gráta það að Framsóknarflokkurinn deyji en mér finnst reyndar að það vanti hér einhvern buffer á vinstra liðið ef hann hverfur af sjónarsviðinu og vinstri stjórn verður mynduð. Ég hugsa til þess með hryllingi að Samfylkingin og Vinstri grænir komist einir saman til valda. Þá ætla ég beint í sérnám. Ég vona samt að Frjálslyndir geti tekið við þessu hlutverki Framsóknar að verða brúin milli vinstrimanna og hægri manna. Mannskapurinn þeirra núna er bara ekki til að hrópa húrra fyrir þó þar finnist einn og einn með vitsmuni umfram mikið notaðan strákúst.

Nostalgía dauðans
Andreas bróðursonur minn er að byrja í MR og ég hef verið að hjálpa honum aðeins við bókakaup þar sem foreldrar hans búa erlendis og eru farin heim. Þvílík nostalgía að standa í löngum biðröðum á skiptibókamörkuðum. En það er búið í bili.
Hann ætlar að búa hjá settinu og ég held að það eigi eftir að ganga vel. Hann er í 3-J sem er 23 manna náttúrufræðibekkur sem er í frönsku. Hlutfallið er 14/9 stelpunum í vil svo það er ekki slæmt. Skynsamur drengurinn að láta náttúruna ráða og velja sér frönsku sem þriðja tungumál. Í fljótu bragði sýnist mér hann aðeins hafa einn kennara sem ég hafði á mínum árum í MR en það er líka einn besti kennari sem ég hef nokkurn tíma haft, Guðfinna Ragnarsdóttir efnafræðikennari. Hún vakti áhuga minn á efnafræði fyrir alvöru og þegar til kastanna kom var það efnafræðin sem ég lærði í MR sem fleytti mér í gegnum numerus clausus. Það má því segja að Guðfinna beri að hluta til ábyrgðina á því að ég er læknir í dag. Annars hef ég alltaf verið mjög heppinn með efnafræðikennara því í Garðaskóla var það Ögmundur Gunnarsson sem var framúrskarandi kennari og í 4. og 5. bekk í MR kenndi mér Skarphéðinn Óskarsson sem er líka frábær kennari. Marta Konráðsdóttir kenndi mér síðan lífræna efnafræði í 5. bekk og var líka í miklu uppáhaldi.

Pæling
Ef ég væri kvenmaður og héti Andrea Emma Bergmann mundi ég fara í tannlækningar, fá mér vinnu hjá Colgate og hafa netfangið andremma hjá colgate.com. Það væri svalt.

25. júl. 2006

Uppáhaldsknattspyrnumaðurinn
Var að hugsa um það um daginn hver væri uppáhaldsknattspyrnumaðurinn minn. Ég var fljótur að finna það út. Það mundi vera krúttíbollan Ole Gunnar Solskjær. Það er svo margt við þennan leikmann sem ég dáist að. Hann hefur ótrúlegt rándýrseðli í vítateig andstæðinganna. Ótrúlegar staðsetningar, enn betri afgreiðslur og svo hefur hann svo margt annað fram að færa. Hann er fljótur, harður í horn að taka en samt aldrei grófur eða með leikaraskap, frábærar fyrirgjafir og mikil leikgleði. Þetta allt hafa hins vegar margir aðrir leikmenn en það er eitt sem gerir Ole litla að mínum manni. Hann hefur trygglyndi. Hann hefur verið varaskeifa stóran hluta af ferlinum sínum hjá United og a.m.k. 3x hefur Ferguson samþykkt tilboð í hann frá öðrum félögum en Solskjær hefur alltaf neitað að fara á þeim forsendum að hann sé hjá eina liðinu sem hann kærir sig um að spila fyrir það sem eftir er ferilsins. Svona leikmenn eru gulls ígildi. Ég hlakka til að sjá hann spila í vetur og vona að hann hafi losað sig við meiðslin sem hafa þjakað hann síðastliðinn misseri.

Fínn dagur í dag
Við feðgarnir og Andreas bróðursonur minn fórum saman austur á Hamarsheiði í dag til að girða aðeins og járna. Það gekk vel og nú er stefnan sett á rúmlega viku törn eftir mánaðarmótin og þá á að girða hressilega og ríða út á kvöldin. Það verður hressandi.
Kominn heim frá Noregi
Jæja! Þá er maður kominn heim frá Noregi eftir 12 daga sumar og sól - beint í yndislega sumarveðrið á Íslandi. Það var reyndar sæmilegt í gær þegar við komum en nú rignir bara og rignir. Gott fyrir gróðurinn en súrt fyrir okkur hin. Annars held ég að öll þessi rigning geri gróðrinum ekkert sérlega gott ef sólin skín ekki inn á milli. En hvað um það. 5 dagar eftir í vinnu og svo er það bara sveitasælan í næstu viku. Ég verð sem sé á Hamarsheiði frá 1. ágúst og sennilega alveg fram til 11. en þá er fyrirhugað að fara norður í Hrísey með Garðabæjargenginu. Það er nú að verða hefð hjá þessum hóp að kíkja í Hrísey í ágúst (annað árið í röð) og við Edda hlökkum mikið til enda komumst við ekki í fyrra í margrómaða ferð. Síðan er ný vinna eftir sumarfrí þar sem ég hef árs rotation á lyflækningadeildum LSH. Byrja á lungnadeildinni og svo mun ég taka 2ja mánaða bunur á hverri deildinni af annarri út júlí 2007. Síðan er stefnan tekin á svæfinguna á Hringbraut eftir það í a.m.k. hálft ár. Síðan fer maður að huga að sérnámi.

"Sérfræðingar í fréttum"
Í gær var ég að hlusta á fréttirnar á Rás 2 og þar var verið að fjalla um málefni Ísraels og Líbanon og áhrif Bandaríkjanna á þær deilur. Þar var kallaður til einhver stjórnmálafræðingur sem var sagður sérfræðingur í málefnum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Í fyrsta lagi var ekkert farið ofan í saumanna á því hvers vegna þessi hálfbjáni var svona mikill sérfræðingur og því varð innlegg hans í umræðuna strax hálfkjánalegt. Hérlendis virðist vera nóg að menn hafi áhuga á einhverju sviði og lesi kannski eina erlenda vefsíðu um málefnin til að teljast sérfræðingar. Ekki skánaði það síðan þegar viðtalið hófst því þessi maður, sem vel getur verið vel að sér um málefnin þarna suðaustur frá, sagði ekkert annað en "menn telja..." og "það er talið...". Fréttamaðurinn hafði nú ekki vit á því að ganga svolítið á sérfræðinginn og pumpa hann svolítið um hvaða menn þetta voru sem telja allan þennan andskota. Fréttaflutningurinn hérna er því miður litaður af því að fréttamennirnir eru ekki nógu grimmir. Svona lagað mundu menn aldrei komast upp með hjá metnaðargjörnum hlutlausum fréttastofum erlendis. Nú var ég reyndar sammála flestu því sem sérfræðingurinn sagði um að áhrif ísreala væru sterk í Bandaríkjunum vegna fjölda gyðinga þar en það er ekki þar með sagt að skoðanir manna séu heilagur sannleikur og eigi að predika í fréttatímum. Menn verða að gera greinarmun á því hvort sérfræðingar eru spurðir eftir skoðunum sínum, annarra eða bláköldum harðsönnuðum staðreyndum. Skoðanir eru fyrir fréttaskýringaþætti en staðreyndir fyrir fréttatíma.

Ég ætla að drífa mig í vinnuna áður en ég fer að pípa eins og hraðsuðuketill. Reyni að blogga eitthvað á næstunni en vera mín í sveitinni gæti slegið slíkum framkvæmdum á frest. Þar til síðar.

28. jún. 2006

Ameríkuferð!
Þá er maður loksins kominn heim. Ég kom reyndar á sunnudaginn var en er búinn að vera fremur upptekinn síðan í vinnu og svoleiðis. Ég var sem sagt í rúma viku í San Antonio og var svo hjá Óttari bróður í viku. Ég hafði það nú bara notalegt hjá Óttari, horfði á fótbolta, drakk bjór og verslaði svolítið. Það er alltaf gaman að koma til Iowa og hitta mannskapinn sem þar er við nám. Nú voru Hjalti Guðmunds og Geir Tryggva að koma sér fyrir þarna úti og voru báðir að byrja í svona orientation á meðan ég var úti. Það var líka verið að pakka Árna Kjalari og fjölskyldu saman en hann var að flytja sig yfir til Cleveland til að læra dermatopatologiu eins geðveikislega skemmtilegt og það nú hljómar. Nú eru því staddir þarna: Óttar bróðir að læra meltingarlæknisfræði með lifrarsjúkdóma sem undirsérgrein, Sif Hansdóttir að læra lungnalæknisfræði, Birgir Jóhannsson (maðurinn hennar Sifjar) að læra smitsjúkdómalæknisfræði, Ágústa Ólafsdóttir að læra innkirtlalæknisfræði, Örvar Jónsson (held hann sé Jónsson, leiðréttið mig annars) að læra hjartalæknisfræði og síðan er Hjalti kominn út í residency í lyflæknisfræði og Geir ætlar að læra háls-, nef- og eyrnalækningar. Mér líst alltaf betur og betur á þennan stað og ef mér snerist hugur um svæfingarnar og ákvæði að fara í lyflæknisfræði þá mundi ég líklega snúa mér á þetta svæði til að læra því ég hef trú á að "the american way" henti mér betur ef til slíks náms kæmi. En nóg um það.

HM2006
Þetta er að þróast eins og venjulega. Þjóðverjar og Brassar gera nóg eins og venjulega. Ítalir berjast áfram eins og mafíósar, fá rauð spjöld og redda sér en falla síðan út þegar þeir fara að mæta alvöru liðum. Englendingar og Spánverjar valda vonbrigðum eins og venjulega. Frakkar væla yfir dómgæslunni en svo snýst hún einhvern veginn þeim í hag þegar þeir þurfa virkilega á því að halda. Argentínumenn og Hollendingar toppa á vitlausum tíma eins og venjulega og Portúgalar gera allt vitlaust eins og venjulega. Þetta er bara venjuleg heimsmeistarakeppni, engin almennileg spútníklið eftir, engar glænýjar stjörnur nema kannski Lennon hjá Englendingum ef hann fengi að spila eitthvað. En það er nú samt alltaf gaman að fylgjast með þessu.

Það eru þrjú lið sem ég hef sterkar taugar til og þau eru öll ennþá með. Ég held alltaf Brössum því þeir eru einfaldlega með hæfileikaríkustu leikmennina, skemmtilegustu knattspyrnuna og mestu hefðina. Síðan hef ég alltaf verið veikur fyrir Argentínumönnum enda eru þeir svona sambalið nr. 2. Svo hef ég einhvern veginn alltaf vonað að Englendingar standi sig vel því ég er náttúrlega aðdáandi enska boltans og mér finnst að landið sem fóstrar bestu deild í heimi eigi að standa sig vel á HM.

Spáin fyrir 8-liða úrslitin
Þýskaland - Argentína 2-3 eftir framlengingu (1-1 eftir 90 mín)
Ítalía - Úkraína 3-1
England - Portúgal 2-0 Rooney skorar fyrra markið og leggur upp seinna
Brasílía - Frakkland 2-0 Verður auðveldari leikur en Ghanaleikurinn

Spáin fyrir undanúrslitin
Argentína - Ítalía 3-1
Brasilía - England 3-2

Úrslit
Argentína - Brasilía 1-2

Boltinn annars
Ég hef enn ekkert tjáð mig hér um að feiti víkingurinn skuli vera kominn í Barcelona en mér finnst það snilld. Ég er mikill Barcamaður og nú er besti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar orðinn leikmaður þar. Ekki nóg með það heldur er hann nr. 7 sem er náttúrlega ennþá meiri snilld því ég spila yfirleitt nr. 7. Það er nokkuð ljóst að maður þarf að skella sér á Nou Camp einhvern tíma á næstu árum og sjá kallinn spila og síðan þarf maður auðvitað að skella sér á treyju. Ég held að hann eigi eftir að standa sig vel þarna strákurinn. Persónulega finnst mér hann miklu betri leikmaður en Ludovic Guily sem lék stórt hlutverk hjá Barca í vetur og ég held að hann eigi eftir að ná vel saman við Messi, Ronaldinho og Eto'o.

18. jún. 2006

Bloggað frá Ameríku!
Jæja! Ég er búinn að vera hérna vestan hafs síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Flaug fimmtudaginn 8. júní til Minneapolis og var þar í eina nótt áður en ég flaug til San Antonio á upprifjunarkúrs í svæfingum. Það var vikunámskeið sem var keyrt frá 8 á morgnanna til 18.30 á kvöldin. Það kláraðist svo á föstudaginn og ég flaug á laugardaginn til Cedar Rapids í gegnum Minneapolis og er nú kominn hérna til Óttars bróður. Ætla að vera hérna fram á laugardag og verð síðan lentur heima snemma á sunnudagsmorguninn. Búið að vera fínt en ég verð að viðurkenna að það er erfitt að vera svona lengi án konunnar. Það verður reyndar aðeins öðruvísi hérna hjá Óttari þar sem maður hefur fjölskylduna en það verður samt gott að koma heim.

Ætli maður slappi ekki bara af hér, horfi á HM (hér eru allir leikirnir sýndir beint svo ef eitthvað er þá er umfjöllunin betri hér) og sötra öl. Reyndar eru fyrstu leikirnir hérna kl. 9 á morgnanna svo maður fær sér kannski ekki öl fyrr en í seinni hálfleik á honum. ;) Annars er ég ánægður með mína menn Brassana að klára fyrsta leikinn. Þeir voru nú reyndar ekkert sérlega sannfærandi en þeir bæta sig hægt og stígandi vona ég. Argentínumenn eru búnir að vera sannfærandi en ég óttast að þeir séu að toppa aðeins of snemma. Englengingar og Ítalir hafa ekki verið nógu sannfærandi þannig að ég spá því að Brasílía, Argentína eða helvítis Þjóðverjarnir taki þetta.

Læt þetta duga héðan frá landi tækifæranna. Heyrumst, sjáumst ja eða bara hvorugt.

27. maí 2006

Kosningadagur!!
Nú er runninn upp sá dagur merki dagur sem sveitarstjórnarkosningar bera með sér fjórða hvert ár. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer allt saman og svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn ætli að styrkja stöðu sína alls staðar á höfuðborgarsvæðinu nema í Hafnarfirði og á Álftanesi. Ég hef reyndar ekki trú á að þeir nái hreinum meirihluta í Reykjavík heldur er ég nær fullviss um að Björn Ingi skríði inn á kostnað áttunda manns sjálfstæðisflokksins. Annars hef ég aldrei verið eins efins um hvað skal krossa við í kjörklefanum því mér finnst enginn af oddvitunum traustsins verður að verða borgarstjóri í Reykjavík. Ætli maður endi ekki á því að krossa í xD af gömlum vana en yfirstrikanirnar verða misnotaðar allhressilega ef sú verður raunin.
Mér finnst samt áhugavert að rýna í þessar skoðanakannanir allar því svo virðist sem Vilhjálmur hafi meira persónufylgi en sem nemur fylgi Sjálfstæðismanna í Reykjavík og það sem kemur ennþá meira á óvart er að Dagur skuli ekki fá stuðning Samfylkingarmanna í borgarstjórastólinn. Það hljóta að vera heilmikil vonbrigði að hans eigin flokksmenn treysta honum ekki fyrir borgarstjórastólnum. Það fær mann líka til að efast um réttmæti þess að hafa opin prófkjör því það er greinilegt að Dagur hefur smalað mannskap úr öðrum flokkum á kjörstað. Ég geri hins vegar ráð fyrir því að Stefán og Steinunn hafi gert slíkt hið sama svo það kemur á sama stað niður.

26. maí 2006

Risinn vaknaður!
Mínir menn í Víkingi vöknuðu loksins og tóku Blikana í kennslustund í dag í Víkinni. 4-1 sigur staðreynd og nú verður þrautin þyngri að stöðva Fossvogshraðlestina. Annars held ég að Víkingarnir muni ströggla pínulítið í ár en verða þeim mun sterkari á næsta ári ef þeir ná að halda sér uppi. Dollan í Víkina 2008 eins og Viktor sagði í viðtali við RÚV í dag.

Notaleg sumarbústaðarferð
Við Edda fórum upp í Svínadal í bústaðinn hjá tengdó og höfðum það notalegt. Lásum, spiluðum, lágum í sólbaði og borðuðum góðan mat. Það er ótrúlegt hvað góður skjólveggur getur gert fyrir íslenskt sólbaðsveður því í dag var hávaðarok þarna upp frá en í skjóli við vegginn var bara notalega hlýtt og hörkusólbaðsveður. Komum svo heim undir kvöld og fórum bæði á æfingu. Ég hjá Duffa en Edda skellti sér í ræktina. Hún er nýbyrjuð á einhverju herþjálfunarnámskeiði og er handónýt í skrokknum eftir hverja einustu æfingu enda eru þau greinilega látin taka á því. Spurning um að skella sér á eitt slíkt námskeið með haustinu og sjá hvað gerist hjá gamla. Annars lofar sumarið góðu hjá Duffa því við unnum fyrsta leikinn örugglega eins og sjá má í síðustu færslu en það vantaði samt slatta af góðum leikmönnum eins og Jóhann Svein sem var besti leikmaðurinn okkar í fyrra (reyndar óvíst hvort hann verði nokkuð með í sumar vegna meiðsla), fyrirliðann Magga Gísla sem var meiddur eins og systir hans Jón Helgi sem var bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í fyrra. Síðan er Helgi litli læknanemi ekki enn kominn á ról en hann klárar prófin á morgunn og verður klár í slaginn eftir það. Síðan komst undirritaður ekki og þó ég sé yfirleitt ekki í byrjunarliðinu getur verið gott að hafa gamla framlínujaxla á bekknum ef illa gengur að skora, hehe.

Jamie Cullum og Micheal Buble
Þessir menn eru búnir að endurvekja einhverja mögnuðustu tónlistargullöld veraldarsögunnar. Þeir eru að syngja gamla gullmola sem voru gerðir ódauðlegir af Frank Sinatra, Bobby Darin, Nat King Cole og fleiri snillingum. Þeir eru reyndar að taka nýrri lög með sem eru útsett í svipuðum stíl og þessir gömlu gullmolar og úr verður frábær blanda af jazzskotnu eðalpoppi sem ég kann virkilega vel að meta. Robbie Williams gerði reyndar plötu í svipuðum stíl fyrir u.þ.b. 2 árum síðan sem var líka alveg frábær og ég held að hann hafi opnað svolítið fyrir þessa gerð tónlistar aftur inn á markaðinn. Gott hjá honum. Annars vil ég líka ítreka aðdáun mína á íslensku eðalsveitinni Diktu sem gaf út hinn frábæra snilldardisk Hunting for Happiness nú fyrir áramótin. Hef hlustað heilmikið á hann og það verður að segjast að hann verður þéttari með hverri áhlustun.

Læt þetta annars gott heita í bili. Gleðilega kosningahelgi ef ég skyldi detta úr blogggírnum um helgina. Góðar stundir.

24. maí 2006

Allt of langt á milli...
...þess sem ég skrifa hérna. Ætla að reyna að vera duglegri í sumar en ég lofa engu enda mikið að gera hjá mér næstu vikurnar og mánuðina. Af okkur er heilmikið að frétta. Ég er reyndar ennþá á svæfingunni hér í Fossvoginum og verð út júlímánuð en er síðan búinn að tryggja árs ráðningu á lyflækningasviði spítalans þar sem ég hyggst ná mér í dýrmæta reynslu sem mun nýtast mér á mínu sviði í framtíðinni. Ég hef tekið ákvörðun um að gerast svæfingalæknir og geri ráð fyrir að bæta síðan við mig framhaldsnámi í gjörgæslulækningum í framhaldinu. Eftir ársdvölina á lyfjadeildunum ætla ég að vera í hálft ár á Svæfinga- og gjörgæsludeildinni á Hringbrautinni og í framhaldinu ætla ég að brúa bilið fram á sumar í vinnu sem gæti hentað. Stefnan er sem sagt að fara út sumarið 2008 og vera úti í 6-8 ár. Þá horfi ég helst til Lundar, Osló eða Gautaborgar (í þessari röð).

Aðrar enn stærri fréttir eru þær að við feðgarnir vorum í félagi við tvo aðra að festa kaup á jörð austur í hreppum. Er þar gamall draumur okkar að rætast - draumur sem ég veit að foreldrar mínir voru úrkula vonar um að mundi nokkurn tíma rætast. Nú er raunverulega bara eftir að borga og ganga frá stofnun hlutafélags um reksturinn en hvort tveggja er langt á veg komið. Ég var um helgina þarna fyrir austan að girða enda var jörðin raunverulega afhent við undirritun kauptilboðs. Þarna er 250fm einbýlishús, töluvert af útjörð og ca. 40ha af túnum í heimalöndum. Ég var algerlega búinn að gleyma því hvað það er gaman að girða girðingu, hvað það er raunverulega gaman að búa eitthvað svona til. Þegar maður vinnur svona vinnu eins og ég er ótrúlega mögnuð tilbreyting og raunverulega hvíld að komast í smá at, grafa holur, berja niður staura, negla, bora, skrúfa, stilla o.s.frv. Það er einhver undarleg sælutilfinning sem fylgir því að geta bent á eitthvað "mannvirki" með stolti og segja: "Ég bjó þetta til".

Kosningar
Jesús, María og allt þeirra slekti! Ég hef aldrei upplifað aðra eins kosningabaráttu. Það er eins og frambjóðendur flokkanna hér í Reykjavík keppist við að vera óframbærilegir, illa að sér og bara hreint út sagt vitlausir. Mér lýst eiginlega ekki vel á neitt framboð en þó held ég að gamla íhaldið sé lögulegasti kúkurinn í lauginni. Ekki dettur mér í hug að kjósa umræðustjórnmálamennina í Samfylkingunni sem aldrei gera neitt nema blaðra á kostnað okkar hinna. Kollegi minn hann Dagur ætti bara að halda sig við læknisfræðina held ég því hann er sleipur í henni. Þó er hann langframbærilegasti frambjóðandi Samfylkingarinnar því Steinunn Vældís og Þjóðarsálin Stefán eru einhverjir sterkleiðinlegustu pólítíkusar sem fæðst hafa sunnan norðurpólsins. Vinstri grænir eru náttúrlega bara vinstri grænir en þeir hafa nú frambærilegan mann í honum Árna Þór sem ég hef alltaf verið svolítið veikur fyrir. Ekki sérlega sjarmerandi maður en hann hefur eitthvað svona "brettuppermar" yfirbragð sem mér líkar. Sama má segja um Steingrím J. en gallinn við þá er að ég er eiginlega aldrei sammála þeim um hvernig sé best að koma hlutunum í verk. Þeir eru svona menn sem grafa stagið á undan staurnum. Frjálslyndingurinn Ólafur F. er mjög sérkennilegur maður og ég hef aldrei fattað hann almennilega. Ég kýs ekki fólk sem ég fatta ekki. Framsókn er síðan bara Framsókn, er ekki bannað að kjósa þá fyrir fimmtugt. Ég held ég hafi lesið það einhvers staðar.

Fótboltinn
Margt gerst síðan síðast. Chelsea orðið meistari eins og allt stefndi í. Barcelona bjargaði sambandi mínu við tengdafjölskylduna með því að vinna Rassenal í úrslitum Meistaradeildarinnar. Rooney brotinn, Arsenal búið að kaupa Rosicky og semja við Henry og Ruud á leiðinni frá United - allt saman vont. Eiður og Diarra á leið til United sem er gott. Spennandi tímabil framundan og ég vona að næsti vetur verði meira spennandi en síðustu tveir.
HM er síðan að byrja og ég held með S-Ameríkuþjóðunum eins og venjulega. Argentína og Brasilía eru einfaldlega tvær bestu þjóðir heims og ég vona að önnur þessara vinni dolluna. Síðan er maður náttúrlega alltaf veikur fyrir Englandi en ég held að þeir muni ekki standa sig. Sjáum til hvað gerist.

Dufþakur
Tímabilið hófst með látum í utandeildinni hjá Duffa því þeir tóku Henson í kennslustund á Tungubökkum á sunnudag með því að skora 7 mörk gegn 3. Bogi og Eiki áttu víst stórleik og Gauti var sterkur á miðjunni. Gaman að þessu. Annar leikur á sunnudagskvöld og þar verð ég.

Bústaður
Við Edda ætlum í bústaðinn hjá tengdó í kvöld og koma heim annað kvöld eða á föstudagsmorgunn. Það verður notalegt hjá okkur bara tveimur einum í rólegheitum. Er síðan að vinna næturvaktir um helgina og svo tekur við frí um hvítasunnuhelgina þangað til á annan í hvítasunnu, er þá að vinna um kvöldið. Þá helgi verðum við pabbi í girðingavinnu fyrir austan og í fermingu hjá Gígju í Steinsholti þar sem ég var í sveit. Þar verður stuð ef ég þekki mitt fólk rétt.

Læt þetta nægja í bili en reyni að skrifa eitthvað meira fljótlega.

29. apr. 2006

Afmælisbörn!
Margir búnir að eiga afmæli síðan síðast.
Mamma átti afmæli 29. mars
Iðunn Ózonsdóttir átti afmæli 5. apríl
Andreas Bergmann bróðursonur minn 7. apríl
Gissur 10. apríl
Gunni Thor 21. apríl
Nonni broðir 26. apríl
og svo átti ég náttúrlega sjálfur afmæli í gær.
Til hamingju öll. Þið eruð snillingar.

Það er sama hvaðan gott kemur
Stundum kemur fólk manni á óvart. Í sjoppunni á Borgarspítalanum vinna margar konur og fæstar þeirra eru í því að segja manni brandara eða bara yfirleitt að tala. Þær tala eflaust heilmikið á öðrum vettvangi en ég held að það sé kannski ekki eftirspurn eftir því að spjalla mikið við viðskiptavinina svona dags daglega. Ég er hins vegar vel upp alinn og reyni alltaf að tala um eitthvað en bara kók og prins. Ég legg það einnig í vana minn að líta á fyrirsagnirnar á blöðunum á meðan ég bíð eftir kortakvittuninni og um daginn fussaði ég einu sinni sem oftar yfir forsíðunni á DV og sagði eitthvað á þá leið að þetta væri nú meiri endaleysan sem þeir prentuðu. Þá sagði þessa líka snilldarkona í sjoppunni: "Já, þeir ljúga svo hratt að manni að maður hefur bara ekki undan að trúa því." Þessi kona bjargaði deginum fyrir mér þennan dag.

Lífið og tilveran
Lífið hefur gengið sinn vanagang undanfarinn mánuð. Ég hef verið duglegur að vinna en ekki eins duglegur í hestunum. Það hefur reyndar gengið illa hjá Duffa í síðustu æfingjaleikjum eftir góða byrjun í vor. Erum búnir að missa pínulítið dampinn og höfum tapað þremur leikjum á stuttum tíma núna. Annars gengur lífið bara sinn vanagang.

Boltinn
Mínir menn að skíttapa fyrir Chelsea í dag. Það var svo sem viðeigandi endir á ömurlegu tímabili minna manna. Leiðinlegt að Rooney skildi meiðast. Ef hann verður ekki með á HM held ég að Englendingar komist ekki upp úr riðlinum sínum.

23. mar. 2006

Jæja
Ég er á vaktinni. Það er allt að róast núna og maður hefur aðeins tíma til að pústa. Það er svolítið skrýtið með allar þessar vaktir að það er einhver undarleg blanda af tilhlökkun og kvíða sem hellist yfir mann. Tilhlökkun yfir því að maður sjái áhugaverð tilfelli sem bjóða upp á að maður læri eitthvað nýtt og svo aftur kvíði yfir því að maður lendi í aðstæðum sem maður ræður ekki við. Hvort tveggja hjálpar manni að tileinka sér nýja hluti svo það er bara jákvætt. Síðan eru slysin alltaf erfið að takast á við, sérstaklega þegar unga fólkið kemur inn.

Pólítíkin
Heiðar bendir á hermálin og vatnalögin. Ég hef persónulega engan áhuga á þessu hermáli. Mér er slétt sama hvort það eru 4 eða engin herþota hér á landi. Hvort heldur sem er held ég að stoppi ekki innrás hingað ef einhver ætlar sér það í alvöru. Hins vegar hef ég áhyggjur af því að útgjöld ríkisins til landhelgis- og flugrekstrarmála muni snaraukast í kjölfarið á brottrekstrinum og því miður held ég að ríkisstjórnin okkar hafi ekki verið allskostar undirbúin undir það. Hvað varðar viðbrögð við allri þeirri atvinnustarfsemi sem tapast held ég að menn verði að stíga varlega til jarðar. Ég hef ekki trú á að ferðamannaiðnaður með tilheyrandi offramboði á gistirýmum á svæði sem ferðamenn hafa enn ekki tekið ástfóstri við sé hættulegt. Ég held líka að það væri óskynsamlegt að sleppa öllum þessum íbúðum inn á fasteignamarkaðinn í einu því við það mundi íbúðaverð þarna suðurfrá hrapa niður úr öllu valdi. Háskólaþorpið er svo sem ágætis hugmynd en ég held að það yrði þá að vera einhver af þeim háskólum sem þegar eru starfræktir hérlendis því það síðasta sem við þurfum er að bæta enn einum slíkum í sarpinn.
Annað sem fer í taugarnar á mér við alla þessa umræðu og reyndar almennt um mál þar sem ljóst er að einhver á eftir að missa vinnuna er það að menn ætlast alltaf til að ríkið komi þeim til bjargar. Fólk er ekki tilbúið að taka ábyrgð á eigin velferð. Ég man ekki til þess að það sé minnst á það einu orði í stjórnarskránni að ríkinu beri einhver skylda til þess að redda fólki vinnu sem missir vinnuna sína vegna skipulagsbreytinga í "einkafyrirtæki". Algerlega fáránleg krafa og hana á að kaffæra í fæðingu. Því miður fyrir Suðurnesjamenn held ég að þarna verði kippt fótunum undan forsendum svo stórrar byggðar ef þeir sjálfir hafa ekki frumkvæði að uppbyggingu atvinnustarfsemi til að bæta upp missinn. Ríkið getur ekki enn einu sinni bjargað deginum með því að neyða stofnanir til að flytja út á land.

Byggðastefnan
Hlægileg þessi byggðastefna á köflum. Þingmenn landsbyggðarinnar róa að því öllum árum að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni því það sé svo nauðsynlegt fyrir landsbyggðarfólk að vera nálægt allri þjónustu um leið og það stígur fæti úr flugvélinni. Sömu þingmenn vilja síðan flytja þessar sömu þjónustu í litlu krummaskuðin sem þeir koma úr. Ég held þetta sé allt samsæri til að þrýsta á um uppbyggingu flugvalla við hvert einasta kotbýli landsins.

22. mar. 2006

Pólítík
Það er magnað hvað mér finnst pólítíkin hérna heima orðin leiðinleg. Það virðist sem unga fólkið í pólítík sé þarna bara til að komast í þotuliðið en ekki til að láta hendur standa fram úr ermum. Eitt heitasta málið hefur verið reykingabann á veitingastöðum sem ég er hálft í hvoru fylgjandi, a.m.k. að hluta en ég á samt svolítið erfitt með að útskúfa svo stórum þætti í skemmtanalífi Íslendinga. Þessi forsjárhyggja sæmir ekki almennilegri hægri stjórn. Ég er líka sammála Sigurði Kára með það að það er ófagmannlegt að vinna skýrslu um áhrif óbeinna reykinga á fólk án þess að taka tillit til beggja sjónarmiða. Að því sögðu þá get ég ekki sagt að ég muni sakna reykinganna af skemmtistöðunum.

Enski boltinn
Mínir menn eru allir að braggast og Chelsea er farið að fatast flugið. Ég hef reyndar ekki mikla trú á að MUFC muni ná þeim en það verður gaman ef þeir ná að hleypa svolítilli spennu í þetta með því að þrengja bilið. Ef þeir vinna leikinn sem þeir eiga til góða eru þeir ekki nema 9 stigum á eftir Chelsea en fimm stigum á undan Liverpool með annan leik til góða. Arsenal er svo rétt fyrir ofan botnbaráttuna 13 stigum á eftir United þrátt fyrir að United eigi leik til góða. Þetta er því allt saman hið besta mál.

Utandeildin
Við í Duffa höfum verið á fljúgandi siglingu. Vorum að spila við arfaslakt lið AC Mullet í gær og unnum fremur auðveldlega 6-2 þar sem bæði mörkin þeirra voru gefins af varnarmönnum okkar. Þeir fengu eitt almennilegt sjálfskapað færi en Grétar varði glæsilega í markinu. Okkur vantaði nú samt báða aðalmiðverðina okkar (Jóa og Magga fyrirliða), einn besta bakvörðinn (Bigga H.), markahæsta mann síðasta árs (Jón Helga) og fimm af miðjumönnunum okkar (Eika, Daða, Árna Grím, Gísla Geir og Helga). Því voru margir að spila út úr stöðum. Ég var á vinstri kantinum. Gauti var aftarlega á miðjunni. Stebbi í vörninni og svo mætti áfram telja. Þetta var samt síst of stór sigur og við klúðruðum fullt af færum, m.a. vítaspyrnu. Við erum því fremur brattir fyrir sumarið enda eru allir framherjarnir okkar heilir núna en við vorum tveir frá vegna meiðsla frá byrjun og fram í júlí auk þess sem annar meiddist illa í júní og annar gat lítið verið með vegna anna. Við verðum því mun sterkari í ár held ég, a.m.k. ef allir halda sér sæmilega heilum frameftir sumri.

Vinnan
Mér líkar áfram alveg frábærlega í vinnunni. Hef ekki áður upplifað svo gott og náið samstarf fagfólks í heilbrigðisgeiranum né heldur jafngóðan anda á vinnustað. Þó margir séu frekar ósáttir við launin og vinnuálagið þá eru nær allir að skila vinnunni sinni af áhuga og samviskusemi. Ég hef þegar ákveðið (99,9% viss) að ég ætla að leggja fyrir mig Svæfinga- og gjörgæslulækningar og mun skipuleggja deildarval mitt næstu 2 árin með það að leiðarljósi að það nýtist mér í slíku námi. Ég fékk stöðu sem deildarlæknir á lyflækningasviði frá og með 1. ágúst og ætla mér að vera þar í a.m.k. 6 mánuði en sennilega fram á sumar 2007. Þá hyggst ég færa mig á svæfinguna á Hringbrautinni en þar er töluvert öðruvísi starfsemi en í Fossvogi. Í Fossvoginum erum við með Heila- og taugaskurðdeild, Bæklunarskurðdeild, Lýtaskurðdeild, Æðaskurðdeild og Háls-, nef- og eyrnaskurðdeild. Auk þess sinnum við slysum og bráðveikum sjúklingum sem leita á bráðamóttöku og þurfa gjörgæsluinnlögn. Á Hringbrautinni eru Brjóstholsskurðdeild (hjarta og lungu) og Almenn skurðdeild sem sér um aðgerðir á meltingarfærum. Auk þess eru Nýrnaskurðdeild, Barnaskurðdeild og Kvennaskurðdeild á Hringbraut. Gjörgæslan sinnir að mestu hjartasjúklingum og langveikum börnum en auðvitað koma þar líka sjúklingar með sýklasótt og önnur hefðbundin gjörgæsluvandamál þó það séu kannski fyrst og fremst tilfelli í inniliggjandi sjúklingum. Ég hlakka í það minnsta til að takast á við verkefni næstu tveggja ára og vonast til að komast út í sérnám eigi síðar en sumarið 2008.

Sumarbústaðarferð um helgina
Gamla Garðabæjargengið er á leiðinni í sumarbústað um helgina og ég kemst loksins eftir að hafa misst af síðustu 3 ferðum vegna anna í vinnu eða einkalífi. Það verður gaman og við förum líklega á föstudag og komum heim á sunnudag. Þó gæti farið svo að við förum ekki fyrr en á laugardag en það kemur í ljós á föstudaginn. Nonni bróðir er á landinu og því er svolítið freistandi að fresta ferðinni í Borgarfjörðinn fram á laugardag til að eyða aðeins meiri tíma með honum en við sjáum til hvernig gengur með það. Við bræður og sá gamli erum reyndar að fara með minn gamla og trygga Hjört austur fyrir fjall á morgunn og ætlum að ná í tvo aðra í staðinn þar sem Fluga hans pabba er líka farin úr húsinu í tamningu. Svo stendur til að koma Sindra hennar Eddu í tamningu líka svo við gætum þurft að fara aðra ferð í næstu viku. Mér finnst vetrarútreiðar hérna á malbikinu svo sem ekki sérlega skemmtilegar en það er skárra en ekki neitt. Ég er miklu meira fyrir lengri eða skemmri sumartúra um hálendið því þar kynnist maður því fyrir alvöru úr hverju hestar eru gerðir, ekki á skeiðvöllum þéttbýlisins.

Góðar stundir.

20. mar. 2006

Letin að drepa mann!
Hef ekki bloggað í rúman mánuð og er það nær eingöngu vegna leti og anna við eitthvað ómerkilegra en að koma skoðunum mínum á blað. Reyni að bæta úr þessu fljótlega en get glatt hundtrygga lesendur með því að mínir menn í ensku eru að draga Chelsea uppi. Munurinn kominn í 12 stig og við eigum leik til góða. Það verður létt að ná þeim fyrir vorið með sama áframhaldi. Annars vildi ég að Heiðar Helguson væri í öllum liðum sem Chelsea spilar á móti. Hann mundi fiska einhvern út af með rautt í hverjum leik. Alger klikkhaus þessi drengur.

Annars er bara gott að frétta af okkur. Við erum búin að standa í stórræðum með stofuna sl. vikur - keyptum okkur stofuskáp og bókaskáp í sama stíl í febrúar og byrjum mars og svo hefur hestamennskan verið í lykilhlutverki hjá mér. Edda er ekki úr hófi fram dugleg en það lagast alltaf með vorinu þegar veðrið setur ekki strik í reikninginn.

Síðan er fótboltinn farinn að rúlla með ágætum. Æfum á fimmtudögum og spilum leik á þriðjudögum. Erum búnir að vera að skora mikið og fá á okkur lítið af mörkum sem er alltaf jákvætt. Ég er búinn að setja eitt og leggja upp a.m.k. eitt líka. Þetta er allt að slípast og ég er kominn i sæmilegt form sem skánar reyndar með hverjum deginum. Ég hef eiginlega alveg sloppið við meiðsli í vetur sem er alltaf gott en utanlandsferðirnar tvær hafa ekki hjálpað til með björgunarhringinn. Það er þó að leka úr honum hægt og bítandi svo þetta er allt í áttina.
Þar til næst;)

14. feb. 2006

Jesús minn!
Stundum skil ég ekki vinstri menn. Samfylkingarfólk og óháðir kusu Dag B. Eggertsson sem oddvita sinn. Dagur er myndarlegur strákur sem kemur ágætlega fyrir. Hann er reyndar full skrúðmæltur fyrir minn smekk auk þess sem hann hefur ekki almennilega tök á þeim orðum og orðasamböndum sem hann notar en ég get auðveldlega séð hvað það er sem heillar allt þetta fólk. Dagur er líka að mínu viti ágætis læknir og hann á góða konu sem líka er góður læknir. Allt þetta breytir hins vegar ekki þeirri skoðun minni að Dagur er algerlega gersneyddur öllu því sem ég leita eftir í frambærilegum stjórnmálamanni. Hann er maður orða en ekki verka en mér hefur alltaf líkað betur við menn sem koma einhverju í verk. Að því leyti passar hann eins og sívalningur í þetta Samfylkingar- og Reykjavíkurlistabatterí allt saman. Ég er hins vegar afskaplega glaður yfir því að hann var kosin því ég held að hann sé ólíklegastur af þeim þremur kandídötum sem í boði voru til að leiða listann til sigurs en ég er auðvitað hægri maður og því kannski ekki dómbær á kjörþokka vinstri manna. Tíminn einn mun leiða í ljós hvort ég hef rangt fyrir mér. Það ber ekki að skilja það sem svo að ég sé sérlega hrifinn af Vilhjálmi Vilhjálmssyni heldur. Síður en svo. Ég held ég þurfi alvarlega að setjast niður og hugsa minn gang fyrir þessar kosningar því ekki eru valkostirnir kræsilegir.

Liverpool vs. Manchester United á Anfield...
...í enska FA bikarnum. Ég verð þar með fjórum félögum mínum næstkomandi laugardag og verð þar að auki líklega eini United maðurinn í Liverpoolstúkunni - það verður erfitt verkefni.

Helvítis CV
Er að gera CV fyrir starfsumsókn sem ég er að skila inn á miðvikudag. Það er leiðinlegasta verkefni sem ég hef komið að.

2. feb. 2006

Karpað um keisarans skegg!
Magnað að horfa á Ingibjörgu Sólrúnu og Árna Matthiesen karpa um skattbyrði Íslendinga. Þau tvö voru hvort um sig að matreiða mjög einfaldan hlut á þann hátt sem hentaði málflutningnum. Það gefur augaleið að þegar tekjur hækka án þess að persónuafsláttur eða skattbyrði breytist í takt að skattbyrði á hvern einstakling hækki að meðaltali en það gera ráðstöfunartekjurnar að sama skapi. Það er því tilgangslaust fyrir ríkisstjórnina að þræta um það að skattbyrði hafi hækkað að meðaltali í þeirra stjórnartíð. Miklu nær væri að benda á að laun hafa hækkað meira en gengur og gerist annars staðar og að ráðstöfunartekjur einstaklinga hafa hækkað að meðaltali. Það er engum til skammar. Auk þess er hægt að benda á að skattbyrði á fasta krónutölu hefur minnkað, þ.e. það hlutfall sem ríkið tekur af hverri krónu sem einstaklingur vinnur sér inn hefur lækkað. Hins vegar hefur sama hlutfall sem sveitarfélagið Reykjavík hirðir af hverri krónu hækkað og það er eitthvað sem mér fannst Árni ekki koma almennilega á framfæri.

Strákarnir okkar
Eftir frábæra baráttu og framúrskarandi frammistöðu hafa strákarnir okkar líklega lokið keppni á EM í handbolta. Eina von okkar er að Rússar flengi Dani sem ég held að sé ekki líklegt. Mín skoðun er sú að það eina sem hafi komið í veg fyrir að við færum í undanúrslitin sé ótrúleg óheppni með meiðsli og svo var dómgæslan í þessum leik í dag náttúrlega fyrir neðan allar hellur. Ég meina Norðmennirnir voru meira að segja hissa á sumum dómunum sem við fengum á okkur. Sem dæmi má nefna rauða spjaldið sem Heimir fékk í lokin. Þetta var klárlega tveggja mínútna brot en að gefa manni beint rautt fyrir þessa smámuni er náttúrlega fáránlegt. Eins fannst mér þeir gefa Norðmönnum allt of frjálsar hendur með að ýta mönnum inn í teiginn á meðan okkar menn máttu ekki einu sinni horfa á þeirra menn án þess að dæmt væri aukakast. Markvarslan hjá okkur var náttúrlega skelfileg í seinni hálfleik og ég er ekki sammála þessu bulli að vörnin verði að vera góð til að góðir markmenn verji. Við erum að sjá þessa markmenn eins og norska, danska og króatíska hirða algjöra deddara hvað eftir annað og jafnvel verja 3-4 vítaköst í hverjum leik. Við höfum því miður ekki átt almennilegan markvörð síðan Einar Þorvarðarson hætti og það er eitthvað sem ég held að íslensk handboltalið þurfi að skoða. Ef við eigum almennilega markmenn eins og sumir rembast við að halda fram - af hverju er þá enginn af þessum strákum að spila erlendis hjá einhverju stórliði? Svarið er einfalt. Þeir eru einfaldlega ekki nógu góðir. Birkir mundi í mesta lagi teljast meðalmaður á evrópskan mælikvarða og Hreiðar svona skítsæmilegur. Roland var sennilega einn besti markmaður heims 1-2 árum áður en hann fékk íslenskan ríkisborgararétt en þrálát meiðsli setja mark sitt á svona íþróttamenn og slök þjálfun virðist heldur ekki hafa hjálpað honum hér heima heldur. Hann er því bara svona la la í dag. En það breytir því ekki að síðustu daga eru þessir strákar búnir að kynda hressilega undir þjóðarstoltinu og það sannast enn einu sinni að enginn hópur manna er jafnmassívur í að þjappa saman litla þjóðartetrinu í okkur á köldum vetrarkvöldum. Ég segi því áfram strákar og ég hlakka til að sjá ykkur á næsta stórmóti því þetta lið getur aðeins skánað úr þessu. Óli á örugglega 4-5 ár eftir miðað við hvað hann er góður í dag, Guðjón hefur aldrei verið betri og restin eru bara ungir guttar sem eiga langt í land að ná tindi ferilsins svo framtíðin er björt og ég hreinlega hlakka til framtíðarinnar.

CV...
...er held ég það leiðinlegasta fyrirbæri sem ég hef komist í tæri við.

29. jan. 2006

Boltinn
Mínir menn að klára Úlfana í þessum töluðu orðum. Komnir í 3-0 og Saha heldur uppteknum hætti að skora þegar hann er í byrjunarliðinu. Richardson búinn að setja tvö líka og er að standa sig strákurinn. Það er hins vegar gaman að sjá Rassenal skíta á sig og með þessu áframhaldi held ég að þeir muni ekki geta haldið í Henry enn eitt árið. Það verður gaman að sjá hann og Etoo saman hjá Barca á næsta ári. Síðan virðast auradrengirnir hjá Chelsea eitthvað vera að missa flugið og gerðu bara jafntefli gegn arfaslöku liði Everton. Vonandi er það bara merki um það sem koma skal.

Strákarnir okkar
Þeir voru góðir á móti Serbum og enn betri á móti Dönum. Snorri að standa sig vel í báðum leikjunum og maður skilur ekki af hverju Dagur hefur haldið þessum strák út úr liðinu sl. ár. Síðan hafa Alexander, Guðjón og Arnór átt góða spretti líka. Fúsi búinn að vera góður í vörninni svo þetta er allt að smella saman. Annars eru þeir búnir að vera fremur slakir á móti Ungverjum í fyrri hálfleik en nú er kominn hálfleikur og við erum 2 mörkum undir. Það er samt gaman að sjá að við getum hvílt lykilmenn í dag og leyft þessum lítið reyndu strákum að spreyta sig aðeins. Fínt fyrir þá að fá þessa reynslu.

Frábær teiti í gær
Vorum í matarboði hjá Eika og Guðnýju í gær með Hjalta og Silju. Frábært boð og við tókum vel á því Mr&Mrs og Pictionary. Við Edda stóðum okkur sæmilega en unnum ekki í Mr&Mrs en stelpurnar rasskelltu okkur strákana í Pictionary. Síðan var tekið hressilega á Jagermeisterflöskunni sem ég er búinn að eiga hér í frystinum síðan í sumar. Síðan var vel veitt af léttvínum og kokdillum enda er heilsan ekki upp á marga fiska í dag.

28. jan. 2006

Framhald ferðasögunnar
Mánudagurinn 16. janúar
Áttum rólegan dag. Sváfum úr og vorum ekki komin út fyrr en eftir hádegið. Gengum að Montparnasse-verslunarmiðstöðinni með viðkomu í garði Luxemborgarhallarinnar. Versluðum svolítið þar en gengum síðan um verslunargöturnar alla leiðina niður í miðbæ. Komumst í m.a. í Aigle-búð en það er rosalega fínt hestavörumerki og þar keypti ég reiðskó og reiðlegghlífar fyrir Eddu. Síðan gengum við heim eftir Rue Mouffetard. Samtals gengum við upp undir 20 km þennan dag. Keyptum okkur mat á leiðinni og borðuðum hann í kósílegheitum uppi á herbergi. Síðan var farið snemma að sofa.

Þriðjudagur 17. janúar
Vöknuðum um kl. 10 og fengum okkur morgunverð á hótelinu. Tókum svo lestina niður í bæ og skoðuðum Frúarkirkju. Eyddum þar góðri stund en ákváðum svo vegna veðurs að skynsamlegast væri að vera sem mest innandyra og fórum því aftur að versla. Gengum nú eftir Rue Rivoli en fljótlega hittum við á H&M búð en eins og margir vita er það í miklu uppáhaldi hjá Eddu Guðrúnu og því var ekki farið mikið lengra þann daginn. Við þessa götu má líka finna að minnsta kosti tvær Zara búðir auk þess sem C&A og fleiri keðjur hafa útibú þarna. Fengum okkur síðbúinn hádegisverð á subbulegum stað við St. Jaques torg og þar sem orkan var fremur lítil og veðrið leiðinlegt ákváðum við að drífa okkur til baka. Fengum okkur að borða í bakaleiðinni og slöppuðum af á hótelinu það sem eftir var dags.

Miðvikudagur 18. janúar
Þar sem við höfðum komist að því að Louvre væri sérlega lengi opið á miðvikudögum varð þessi dagur fyrir valinu til að heimsækja þetta fornfræga safn. Vöknuðum því fremur snemma, fengum okkur morgunmat og tókum svo neðanjarðarlestina þangað. Vorum mætt þar fyrir 11 og ákváðum að byrja á besta stað og skoðuðum því ítölsku meistarana fyrst þar sem Da Vinci er að sjálfsögðu frægastur. Mannfjöldin við Monu Lisu var ótrúlegur og maður varð svolítið hissa að sjá hversu lítil þessi mynd er raunverulega. Það var hins vegar mikil upplifun eins og reyndar að sjá öll hin frægu verkin sem þarna voru. Tókum síðan frönsku málverkin og fengum okkur síðan hádegismat í einni kaffiteríunni. Síðan var tekinn púlsinn á rómverskum, grískum og egypskum fornminjum auk þess sem við rétt kíktum á mesópótamísku deildina. Að auki skoðuðum við skúlptúra franskra meistara en þegar hér var komið sögu og rúmir sex tímar liðnir ákváðum við að líklega væri komið nóg og kíktum þá í nýju verslunarmiðstöðina sem er undir nýja inngangnum. Verslaði þar svolítið af DVD myndum en urðum fljótlega þreytt á því og drifum okkur heim á hótel. Slökuðum aðeins á en fórum síðan á frábæran ítalskan veitingastað við Rue Descartes sem heitir Al Solito Posto. Hann skartaði ljúffengum ítölskum mat á hlægilegu verði. Eftir matinn fórum við síðan heim á hótel og slökuðum á.

Fimmtudagurinn 19. janúar
Vöknuðum um kl. 10 og fengum okkur að borða á hótelinu. Drifum okkur svo í neðanjarðarlestina og fórum að Eiffelturninum. Því miður var efsta hæðin lokuð vegna viðhalds en við fórum á miðhæðina í staðinn en hún er í 115m hæð. Höfðum þaðan stórkostlegt útsýni yfir stóran hluta Parísar en þó sérstaklega miðborgina. Gengum síðan niður á 1. hæðina og maður mundi þá eftir byrjunaratriðinu í A View to a Kill sem gerðist að miklu leyti í þessum þröngu stigum. 1. hæðin er í 57m hæð en tókum síðan lyftuna þaðan. Gengum að Chaillothöllinni sem er hinum megin við Signu. Þaðan er frábært að taka myndir af turninum og hún er líka sérlega falleg sjálf. Síðan tókum við metroið að Sigurboganum og gengum síðan þaðan niður Champs Elysees. Það sem vakti held ég mesta furðu okkar í París var hringtorgið í kringum Sigurbogann en það er líklega 7-8 akreinar og ástandið þar er hin mesta súpa. Margir aka hring eftir hring á innstu akrein og eiga í vandræðum með að komast út. Settumst síðan inn á mjög fínan veitingastað (Roman Bistrot) ofarlega við breiðstrætið. Þar fengum við okkur frábæran málsverð áður en göngunni var haldið áfram niður í bæ fram hjá mörgum af frægustu tískuhúsum heims. Gengum síðan Marcel Proust stíginn í gegnum Pierre Cardin garðinn og komumst þannig að Concorde torgið. Þaðan er örstutt að La Madelaine sem við gripum tækifærið til að skoða. Það er líklega en magnaðasta kirkja sem ég hef skoðað en því miður var hún næstum almyrkvuð þegar við skoðuðum hana. Tókum síðan lestina heim og gripum með okkur take-away á leiðinni á hótelið. Áttum síðan notalega kvöldstund og fórum seint í háttinn.

Föstudagurinn 20. janúar
Vöknuðum seint og slöppuðum af í tilefni bóndadagsins. Tókum síðan lestina að nútímalistasafninu í Georges Pompidou miðstöðinni. Okkur langaði reyndar aðallega að skoða húsið sjálft og fórum því ekki í safnið sjálft. Fórum síðan suður fyrir safnið og hittum á alveg hreint stórkostlegan pönnukökustað sem heitir Creperiea Beaubourg en framan við hann er mjög flottur gosbrunnur með nútímalistaverkum. Fengum okkur ljúffengar franskar pönnukökur með öllu tilheyrandi. Södd og glöð gengum við síðan niður að Rue Rivoli og versluðum aðeins meira. Fylgdum síðan aftur tveimur gönguleiðum úr boxinu góða frá Eika, Hjalta og co. en við notuðum þær mikið í ferðinni. Skoðuðum Gallerie Vivienne, Place de Victoires og Palais Royal. Þá skall á algjört skýfall og við hentumst því í metróið og fórum heim á hótel þar sem við borðuðum notalegna kvöldverð og slökuðum svo á.

Laugardagurinn 21. janúar
Við vöknuðum rétt fyrir tíu, fengum okkur morgunmat og tókum síðan lestina niður í bæ þar sem við fórum í mikla gönguferð um eyjarnar á Signu. Byrjuðum á Ile St. Louis og fengum okkur þar hádegismat á fínum veitingastað þar sem við gátum síðan fengið okkur hinn fræga Berthillonís í eftirrétt. Þessi frægi ís er framleiddur þarna á eyjunni og hefur langa hefð og reyndist eftir allt saman mjög ljúffengur en mjög bragðsterkur. Fórum síðan yfir á Ile de la Cite og skoðuðum allar fallegu brýrnar sem tengja hana við Rive Gauche (vinstri bakkann). Meðal þeirra er Pont Neuf og Pont des Arts. Ákváðum síðan að fara í klukkustundarlanga siglingu um Signu þar sem siglt var framhjá öllum frægustu stöðunum við ána og við sáum hluti sem við höfðum þegar skoðað frá nýju sjónarhorni. Eftir siglinguna gengum við heim á hótel eftir Rue Monge. Lögðum okkur í rúman klukkutíma en drifum okkur svo út að borða á frábærum stað við Rue Mouffetard sem heitir Au Petit Bistrot. Eftir massíva nautasteik og nokkur glös af rauðvíni röltum við heim á hótel og slökuðum á.

Sunnudagurinn 22. janúar
Ákváðum að slappa af í dag. Sváfum fram yfir hádegi en fórum svo í góðan göngutúr um nágrenni hótelsins. Fengum okkur morgunn-/hádegisverð á frábærum crepes-stað sem heitir Chez Nicos og stendur við Rue Mouffetard. Gengum svo í stóran hring aftur að hótelinu og byrjuðum að pakka aðeins. Röltum síðan eftir snarli um kvöldið og borðuðum saman uppi á herbergi. Kampavín og jarðaber í eftirrétt og síðan slökun og rólegheit.

Mánudagurinn 23. janúar
Vöknuðum snemma, kláruðum að pakka, tjékkuðum okkur út og fengum okkur svo morgunmat. Tókum síðan skutlu sem hótelið útvegaði út á flugvöll. Hittum miðaldra ameríska konu og aðra amerísku stelpu um tvítugt í skutlunni og spjölluðum heilmikið við þær. Vorum síðan samferða þeirri miðaldra alveg út í flugvél því hún flaug með Icelandair til New York. Vorum mjög tímanlega út á flugvöll og allt gekk eins og í sögu. Lentum á Íslandi um klukkan hálffimm og mamma gamla var að sjálfsögðu komin að sækja okkur. Frábær ferð á enda en við eigum fullt af frábærum myndum, nokkur ágæt vídeó og að sjálfsögðu allar minningarnar. París er klárlega rétti staðurinn fyrir brúðkaupsferð ef þið eruð að velta því fyrir ykkur. Bon appetit.

27. jan. 2006

Takið eftir neðstu línunni

Your Scholastic Strength Is Evaluating

You are great at looking at many details and putting them all together.
You are talented at detecting subtle trends, accuracy, and managing change.

You should major in:

Statistics
Speech
Conflict studies
Communication
Finance
Medicine