31. mar. 2004

Innsláttarvillur Geislans
Það kemur ósjaldan fyrir (ekki "ekki ósjaldan" eins og sumir mundu segja) að innsláttarvillur laumast inn í textann hjá Geislanum. Hann biðst velvirðingar á þessu en hefur í skjóli nætur reynt að leiðrétta þetta eftir á. Vonast hann til að þetta valdi þjóðinni ekki hugarangri.

Bloggveiran
Bloggveira hefur skotið rótum meðal duglegra bloggara og virðist sem hún haldi annars ágætum bloggurum frá netskrifum þessa dagana. Viðar er sjaldséður skríbent, Inga Huld hefur ekki skrifað síðan í nóvember og tel ég að hún hafi verið svokallað "index tilfelli" eða sú fyrsta sem varð fyrir barðinu á veirunni. Gunni hefur líklega smitast í móðurkviði því hann hefur svona væga en króníska bloggletiveirusýkingu. Þorgeir skrifar einstaka sinnum eitthvað bull en ekki hefur komið færsla af viti frá honum og virðist heilastarfsemin rýrna í öfugu hlutfalli við vöðvauppbyggingu. Sjonni hefur verið óvenjulega líflegur síðastliðna daga en ég hef grun um að það sé skammgóður vermir. Heiðar skýlir sér á bak við dugnað Fríðu í blogginu og þegar vel er að gáð nær hann varla 2 bloggum að meðaltali í viku. Önni stendur sig prýðilega og er líklega sá eini sem ég skoða reglulega sem skrifar líka reglulega. Elna vinkona hennar Eddu er líka dugleg sem og Ellinn. Haukur Þór og Hjörleifur hafa algerlega misst flugið eftir ágæta byrjun. Geislinn fer því fljótlega að draga þá ályktun að hann sé bestur í að blogga og hættir á toppnum.


30. mar. 2004

Leifar fornrar jarðmiðjukenningar
Í gær var ég að spá og spekúlera og datt allt í einu í hug að spá í orðið "sólarhringur". Ég spáði og ég spekúleraði og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri algert rangnefni og að réttast væri að kalla þetta jarðarhring. Það er jú jörðin sem snýst einn hring um möndul sinn á "sólarhring" ef ég man stjörnufræðina mína rétt. Sólarhringur væri rökréttara nafn á árið þar sem jörðin ferðast jú einn hring umhverfis sólina á einu ári.
Mér finnst nú ótrúlegt að ég sé fyrsti maðurinn sem rek augun í þessa rökvillu en ég hef altént ekki komið auga á umfjöllum um þetta efni nokkurs staðar. Þess ber að geta að ég er nú ekkert gífurlega víðlesin þannig að það kann að vera að slíkar pælingar sé einhvers staðar að finna. Ef einhverjir stjörnufræðispekingar (ath. ekki stjörnuspekingar því þeir eru leiðinlegir) eru í hópi þeirra tugþúsunda sem heimsækja þessa síðu daglega og vita meira um málið eru þeir beðnir að láta mig vita í síma 5-88-55-22.

Leaves...
...fara ótrúlega vel saman við matareitranir og aðra meltingarsjúkdóma. Í dag fór John Williams, sem sennilega er annar af tveimur bestu gítarleikurum sögunnar, vel með lifrar- og brissjúkdómum. Kannski hefði verið rökréttara að Leaves fylgdu lifrarsjúkdómunum en eftir því sem ég veit best eru þeir reglusamir piltar og því kannski ekki augljós tenging milli þeirra og lifrarinnar. Stefni samt á að hlusta á Krumma öskra með Mínus um leið og ég les um greindarskort.
Æfing nr. 2
Ég held að það væri hægt að stilla upp nokkuð sterku liði hjá Dufþaki. Það er töluvert af góðum leikmönnum þarna og svo nokkrir liðtækir í viðbót. Það verður erfitt fyrir mig að komast í liðið því það virðist vera töluvert af góðum sóknarmönnum þarna. Það er að sjálfsögðu bara meira gaman þannig, gerir mann ákveðnari í að standa sig ef tækifæri gefst. Það er stefnt að æfingaleik á laugardaginn og þátttaka mín veltur á dugnaði við lestur þangað til og því hvort þjálfarinn kærir sig um krafta mína, sem eru eins og allir vita umtalsverðir. Hvað knattspyrnuhæfileikana varðar ætla ég ekki að tjá mig. Ætti kannski að benda honum á að ég skoraði einu sinni tvö mörk gegn Dufþaki í bikarleik - þegar hann var að dekka mig. Reyndar ætti ég kannski ekkert að vera að rifja það upp því Ástin tapaði þeim leik 4-2 og hefur eftir því sem ég kemst næst aldrei unnið Dufþak.

Lestur...
...hefur gengið ágætlega síðustu daga en margir hafa krafist nærveru minnar og því hefur stundum gengið illa að einbeita sér. Mikið af afmælum og svoleiðis en það er svo sem ágætt að standa upp frá lestri í 2-3 tíma af og til. Frá og með mánaðarmótum verður allt svoleiðis látið lönd og leið og setið við lestur mestan hluta sólarhringsins. Maður nær nú reyndar sjaldan nema 6-8 góðum lestrartímum á dag en lesformið er óðum að batna og ég sat t.d. vel við í dag. Nú er bara að drulla sér í háttinn, taka daginn snemma og láta augu standa fram úr tóftum við lestur á morgun.


Afmælisbarn dagsins...
...er hún mamma gamla. Það var reyndar í gær því nú er kominn 30. mars en hún verður að sætta sig við seinagang Geislans.
Höddi og Guðrún klippikona fá líka afmæliskveðju en þau urðu 26 og 25 ára í gær (fyrradag - 28. mars).

Spakmæli dagsins

Vincent Vega: Want some bacon?
Jules Winnfield: No man, I don't eat pork.
VV: Are you jewish?
JW: No I ain't jewish, I just don't dig on swine, that's all.
VV: Why not?
JW: Pigs are filthy animals. I don't eat filthy animals.
VV: Yeah but bacon tastes good, pork chops taste good.
JW: Hey, sour rat meat might taste like pumpkin-pie, but I'd never know 'cause I'd never eat the filthy mothafucka'. Pigs eat and root in shit. Thats a filthy animal. I ain't eating nothing thats got no sense of disregard for its own feces.
VV: How 'bout a dog? Dog eats its own feces.
JW: I don't eat dog either.
VV: Yeah but do you consider a dog to be a filthy animal?
JW: I wouldn't go so far as to call a dog filthy, but they're definately dirty. But dogs got personality, personality goes a long way.
VV: So by that rational, if a pig had a better personality, she'd cease to be a filthy animal. Is that true?
JW: Well we'd have to be talkin' 'bout one charming motherfuckin' pig. I mean he had to be ten times more charming than that Arnold on Green Acres, you know what I'm sayin'?

Sennilega er þetta besta samtal í kvikmynd fyrr og síðar. Eða að minnsta kosti fyrr, veit ekki með síðar.

28. mar. 2004

Boltinn
Mínir menn stóðu sig með prýði í dag og náðu jöfnu í Háboru þeirra Rassenalmanna eftir að hafa lent stórglæsilegu marki undir. Ég er reyndar nokkuð viss um að Howard hefði haft'ann en Carroll á nú alveg skilið lof fyrir prýðilega markvörslu undanfarið þannig að ég ætla ekkert að púa á hann í dag. Það er hins vegar ekki mörgum liðum sem tekst að sækja stig í Háboruna og það hefur aðeins stórliðunum Portsmouth og Fulham tekist á leiktíðinni. Saha er að koma rosalega sterkur inn í þetta United-lið og ég held að m.a.s. Magnús Gísli sé farinn að halda upp á hann.
En þrátt fyrir ágæta ferð í Háboruna þá stendur eftir sá blákaldi veruleiki að við erum að tapa Chelsea alltof langt frá okkur í baráttunni um 2. sætið í deildinni og því blasir við mínum mönnum umspil um sæti í Meistaradeildinni næsta vetur. Það er ekki gott.

Nýjir hlekkir
Datt inn á skemmtilegt blogg í dag og hef ákveðið að bæta því á uppáhaldslistann. Það er svona 1. deild bloggara en með sama áframhaldi mun Hjalti Snær verðskulda hlekk hér til hliðar, þ.e. komast í úrvalsdeild bloggara.

27. mar. 2004

Prófbókin!
Geislinn hefur lengi haldið þann sið að trappa sig niður úr stressi próflestur með því að lesa góða bók í bælinu fyrir svefninn á meðan á lestrartörnum stendur. Í ár varð fyrir valinu bókin House of God eftir Samuel Shem sem var svona hálfgerð cultbók fyrir lækna og læknanema á sínum tíma. Bókin fjallar á afkáralegan en jafnframt eilítið raunsannan hátt um fyrsta árið eftir útskrift í lífi bandarísks læknis á einu virtasta sjúkrahúsi USA (sem heitir The House of God í bókinni). Þarna er sagt frá vinnugeðveikinni, líflegu kynlífi aðalpersónanna og mörgu skemmtilegu. Bókin er alveg hrikalega skemmtileg og mjög erfitt að sannfæra sjálfan sig um að leggja hana frá sér og fara að sofa. Með sama áframhaldi klára ég hana fyrir næstu helgi og þarf þá að finna mér nýja bók. Ætli ég reyni ekki einhverja Laxnessbók eða ævisögu Hitlers sem ég festi nýverið kaup á. Hver veit?

Boltinn
Er duglegur í boltanum þessa daganna, mánudagar, miðvikudagar og laugardagar eru boltadagar. Boltadagar eru góðir dagar.
Lífsýni í Álverinu í Straumsvík
Ég skil ekki fjaðrafokið út af þessu máli. Það ætti að vera hagsmunamál starfsmanna álversins að fyrirtækið sjái til þess að menn séu edrú í vinnunni. Þarna er verið að vinna á stórum vinnuvélum með stórhættuleg efni og því mikilvægt að menn séu alsgáðir. Ég get hins vegar verið sammála því að ákvæðið í ráðningasamningnum er illa orðað og þarf frekari útskýringar við. Þarna er fyrirtækið raunverulega að áskilja sér þann rétt að krefjast þess að menn séu alsgáðir í vinnunni og bjóða mönnum því upp á blóðsýni á vegum fyrirtækisins. Annar kostur væri sá að koma aftan að mönnum sem taldir eru undir áhrifum vímuefna með því að boða lögreglu á staðinn til að heimta blóðsýni því ég geri ráð fyrir að lög um ölvun við akstur gildi jafnt innan sem utan álversins. Álverið er því raunverulega að bjóða mönnum leið til að missa aðeins vinnuna en ekki bílprófið sitt líka ef upp kæmist að þeir væru undir áhrifum.
Einhvern veginn held ég að fyrir stjórnendum fyrirtækisins vaki ekki að rannsaka lífsýnin frekar nema ef til kemur ósk starfsmannsins. Slík lífsýnataka er alvanaleg í stórfyrirtækjum erlendis og þjónar þá yfirleitt hagsmunum bæði einstaklingsins og fyrirtækisins. Fyrirtækið útilokar að einstaklingurinn sé undir áhrifum ólöglegra efna og í staðinn fær starfsmaðurinn ókeypis læknisskoðun með reglulegu eftirliti. Slíkt hefur sennilega margoft bjargað mannslífum, þegar sjúkdómar uppgötvast snemma, áður en þeir verða ólæknandi.
Ég tel einnig að, alveg eins og ekki má skerða rétt einstaklinga til sjálfsákvörðunarréttar um eigin heilsu og meðferð eigin lífsýna, þá megi heldur ekki skerða rétt fyrirtækja til að gera ákveðnar kröfur um líkamlegt og andlegt atgervi starfsmanna sinna með þeim sjálfsagða fyrirvara að þær séu rökstuddar haldbærum rökum.

Eftir stendur þó bjánalegt orðalag sem mætti breyta.

25. mar. 2004

Þorgeir...
...greyið! Hann er eins og Arsenalmaður þegar hann er að tapa. Lætur öllum illum látum, lendir í slagsmálum, fær rautt og allir gera grín að honum. Þorgeir er svo óður í bræði sinni að hann skilur ekki einfalt hugtak eins og alæta á tónlist. Alæta er sá sem getur étið hvað sem er en það þýðir ekki endilega að hann éti hvern sem er. Hann velur úr það besta, creme de la creme, og geymir draslið þar til hann á ekkert betra. Eins er með alætur á tónlist. Þeir hlusta ekki endilega á allt heldur fíla það besta sem hver tónlistarstefna hefur upp á að bjóða. Reyndar fíla ég ekki hipphopp og tölvutónlist frekar en alætur fíla skítinn úr sjálfum sér.
Þorgeir sem á að baki nám í líffræði við kommúnuna við Norræna húsið ætti nú að skilja svo einfalt hugtak sem alæta er en eins og öðrum vinstrisinnuðum sagnfræðingum (því þeir eru allir laumukommar sem sést best á ritgerðum þeirra og bókum) hefur honum tekist að rækta með sér þann ósið að ljúga, pretta, beygja, breyta og þvæla hugtökunum þannig að þau henti hans málstað.
Þorgeir er vinsamlegast beðinn að lesa orðabókina og eitt stykki líffræðibók áður en hann svo mikið sem skoðar bloggsíðuna sína aftur. Vertu svo til friðs Þorgeir.
Já og svo ég minnist á Júróvisjónlagið fyrir Tyson litla. Mér fannst lagið bara þrælfínt, Jónsi syngur það vel eins og ég hafði áður sagt og sá því enga ástæðu til að minnast á það aftur í fyrra svari mínu til þín Tyson litli. Ég hafði hins vegar gleymt að taka til greina að gullfiskaminni Þorgeirs nær ekki 2 daga aftur í tímann svo ég minnist á það aftur fyrir hann. Þið hin leiðið það bara hjá ykkur.

24. mar. 2004

Gvöð menn almáttegur!!!
Morgunblaðið er sífellt að gera betur í gúrkufréttum. Allir kannast við forsíðufréttir Morgunblaðsins af pósthússstjóraskiptum í Viðey eða vitavarðaskiptum í Kolbeinsey en nú gerðu þeir enn betur.

Sagan af kofanum
Morgunblaðið birti í gær frétt um kofabruna á Álfanesi. Maður hefði nú haldið að þetta hefði verið eitthvað merkilegur kofi í eigu fóstursonar fyrrverandi tengdadóttur móðurömmusystur nýskipaðs pósthússstjóra í Viðey en neinei. Þetta var bara kofi einhvers staðar á víðavangi sem enginn hafði komið í síðan ég flutti af Nesinu. Eru ritstjórarnir á Mogganum dauðir eða? Góð saga!!!!

Meistaradeildin
Chel$kymönnum tókst ekki að knýja fram sigur gegn Arsenalmönnum sem virðast ekki geta tapað þessa dagana þrátt fyrir ömurlega leiki. Sá reyndar ekki nema korter af þessum en Arsenal komst varla í sókn í upphaf seinni hálfleiks. Ég held að markið hjá Pires hafi komið í fyrsta skipti sem þeim tókst að komast nálægt Chel$kymarkinu í seinni hálfleik. Þá stóð ég upp og fór að klára skattframtalið mitt. Skilaði því áðan, duglegur!!! Real klikkaði heldur ekki í sínum leik og kláraði Mónakó 4-2. Þetta seinna mark Mónakó sem Morientes skoraði held ég að gæti orðið Madrídingum dýrt í Frakklandi en við vonum að sjálfsögðu að þeir klári þetta. Draumaúrslitaleikurinn yrði AC Milan og Real Madrid sem ég held að séu bestu liðin í keppninni. Arsenal er síðan í þriðja, ekki langt undan og væri allt í lagi þó þeir skiptu við annað liðið. Annars verður maður bara að vona að Milan taki þetta því þeir eru mitt lið (ásamt Inter reyndar - gat aldrei valið á milli þannig að ég held með báðum).

23. mar. 2004

Æfing!
Mætti á mína fyrstu æfingu hjá Dufþaki í gær. Stóð mig held ég ágætlega, lagði upp nokkur mörk og skoraði eitt sjálfur. Sjáum til hvort mér verður boðið að sækja aðra æfingu. Mér leist annars ágætlega á hópinn. Svolítið af gömlum jöxlum í bland við unga og spræka (misspræka þó). Stefnt að æfingaleik þann 4. apríl þannig að þá sér maður hvernig liðið virkar. Kannski maður fái að hlýja bekknum.

Þorgeir...
...er með einhvern kjaft og þykist hafa "vit" á tónlist. Ekki man ég til þess að Þorgeir hafi neinn sérstakan smekk í tónlist. Einu skiptin sem ég hef heyrt hann tala um tónlist er þegar hann fjargviðrast út í lélega tónlist á "fóninum". Ekki það að ég hafi sérstakt "vit" á tónlist eins og margir þykjast hafa. Hlusta bara á það sem mér finnst skemmtilegt og er yfirleitt ekki að láta það trufla mig þó öðrum finnist það halló. Hlustaði t.a.m. á Bob Marley þegar allir félagar mínir nema Gunni og Haffi hlustuðu á Death og Rapp. Þeir félagarnir hlustuðu á Queen. Síðan þegar ég var kominn í menntó var ég nú aðeins farinn að fíla U2 og REM sem voru vinsælir þá en hlustaði jafnhliða á Bogomil Font og Gling Gló með Björk. Tónlistarsmekkur er nefnilega nákvæmlega það, smekkur, og enginn getur því sagt að eitthvað sé lélegra en annað. Margir hafa sagt að sú tónlist sem er á boðstólnum í dag sé miklu óvandaðri en það sem áður var en menn verða að átta sig á að fæstir snillingar í tónlist fortíðarinnar hafa vera metnir að verðleikum af fjöldanum á sínum tíma. Yfirleitt voru það aðeins örfáir sem áttuðu sig á snilli manna á meðan þeir lifðu. Mín kenning er því sú að góð tónlist sé afstætt hugtak. Hver verður að ákveða fyrir sig hvað honum finnst skemmtilegt og fyllandi að hlusta á.
Ég er þeirrar blessunar aðnjótandi að vera það sem kallað er alæta. Ég get setið við lestur í einn dag, byrjað með Azhkenazy að spila Rachmaninov, skipti síðan yfir í O með Damien Rice en þegar hann hefur gengið sinn gang set ég Gling Gló með Björk á fóninn. Þegar fer að líða að kvöldi set ég kannski Dave Brubeck á og slæ síðan botninn i daginn með svolitlu af John Williams, besta klassíska gítarleika sögunnar, að mínu mati.
Staðhæfingu Þorgeirs um að Eurovisionlagið sé lélegt vísa ég því beint til föðurhúsanna. Föðurlegar staðhæfingar um að maður hafi rangt fyrir sér varðandi tónlist er eins og að reyna að kenna samkynhneigðu fólki að elska einhvern af hinu kyninu. Ekki aðeins bjánalegt heldur ber það vott um virðingarleysi gagnvart skoðunum og tilfinningum annarra. Vendu þig af þeim ósið Þorgeir.

Á fóninum
Þetta er hugtak sem ég held að eigi eftir að haldast í íslensku þrátt fyrir að grammófónar heyri brátt sögunni til. Það þýðir að við sem nú erum í barneign eigum eftir að þurfa að útskýra fyrir börnunum okkar hvað í fjandanum það þýðir að vera á fóninum. Skemmtilegt hvernig sagan gerir hugtök úrelt séu þau tekin bókstaflega en við mennirnir lærum að nota þau í öðrum tilgangi og höldum þeim þannig gagnlegum.

21. mar. 2004

Eurovisionlagið...
...var frumflutt hjá Gísla Marteini í gærkvöldi og verð ég að segja að mér finnst það bara fjandi gott. Jónsi stendur sig bara vel, syngur þetta af krafti og innlifun. Ég held nú samt að við séum ekki að fara að vinna þetta með þessu lagi en við fáum örugglega nokkur stig. Áfram Jónsi!!!

Dr. Gunni...
...tróð upp í þessum þætti líka. Guð minn almáttugur hvað hann er ömurlegur tónlistarmaður. Lögin voru léleg og hann söng þau eins og einhver górilla. Mér finnst alveg merkilegt að leyfa svona ógeð í RÚV. Líklega er það rétt sem sagt er um gagnrýnendur að þeir velja sér starfið af örvæntingu yfir að geta ekkert sjálfir.
Í sama þátt kom greyið litla hún Sif umhverfisspjallaráðherra sem ég hef alltaf látið fara í taugarnar á mér og það breyttist ekkert í gær. Mér finnst hún alltaf vera eitthvað svo upptekin af því að gera mikið úr sjálfri sér.
Síðan kom Björn Jörundur Friðbjörnsson sem ég held bara að sé orðinn fullmarineraður í undarlegheitunum. Rak útgerð í Brasilíu my ass!!! Ég held hann hafi verið að temja þessar brasilísku og reykja eitthvað annað en njóla þarna suðurfrá.

Tveir nýjir diskar í safnið
Fjárfesti loksins í OK computer með Radiohead og finnst hann ágætur. Á eftir að hlusta á hann almennilega en ætli maður þurfi ekki að pæla aðeins í honum áður en maður kann almennilega að meta hann.
Hinn diskurinn er "Swinging When You're Winning með Robbie Williams sem er frábær ef maður fílar svona swingtónlist. Þetta eru dægurlög 5. og 6. áratugarins og eru mörg hver alveg hrikalega skemmtileg. Þarna var mikið lagt upp úr röddum og tónlistin var kannski meira svona undirspil. Hann er fæddur á röngum áratug drengurinn. Syngur þetta snilldarlega.
Scent of a Woman
Myndin er á Skjá einum í þessum töluðu orðum. Ég var búinn að gleyma hvað Al Pacino var snilldarlegur í þessari mynd. Hann átti svo sannarlega skilið að fá Óskarinn fyrir leik sinn í þessari mynd. Hann verður alltaf í miklum metum hjá mér og þegar maður horfir til baka þá eru óteljandi myndirnar sem hann hefur verið brilliant í. Scarface var snilld. Í Serpico var hann frábær og í Guðföðurmyndunum líka að sjálfsögðu. Al Pacino er maðurinn!!!

Önnur mynd sem var á topp tíu listanum er myndin Kramer vs. Kramer (Pacino var reyndar ekki í henni). Fæst ykkar hafa líklega séð hana en ég mæli með því að þið takið hana einhvern tíma á leigunni. Munið nafnið því þið verðið ekki svikin af þessari mynd. Dustin Hoffman leikur hotshot businessmann sem er kvæntur óhamingjusamri konu og á með henni ungan son. Einn daginn yfirgefur konan hann en skilur soninn eftir. Myndin fjallar svo um samband þeirra. Meryl Streep leikur eiginkonuna og Justin Henry sem lék soninn er líklega yngsti karlmaðurinn sem tilnefndur hefur verið sem leikari í aukahlutverki. Hann var sjö ára þegar myndin var tekin og á algeran leiksigur.

20. mar. 2004

Afmælisbarn dagsins
Helga Steinþórsdóttir, kennari, móðir, líkamsræktarsnillingur og réttargæslumaður Sverris Hannesar er 25 ára í annað skipti í dag. Til hamingju með það Helga mín.

Aðdáendur mínir...
...hafa vakið athygli mína á því að meginástæða heimsókna þeirra hingað sé ekki að fá fréttir af boltanum. Mönnum finnst víst eitthvað sniðugt þegar ég fæ mínar einstöku ritræpur og hrauna yfir hluti sem mér finnst aumkunnarverðir. Ég verð því miður að hryggja ykkur góðu vinir að ég er bara í svo hrikalega góðu skapi í dag að ég get ekki hraunað yfir nokkurn skapaðan hlut. Eða jú kannski...

Útskriftarferð
Nokkra bekkjarfélaga mína hefur lengi dreymt um að komast til Thailands af því það eru svo ódýrar hó...örflíkur þar. Það var því ákveðið að skella sér en ákveðinn hluti bekkjarins var ekki tilbúinn að eyða fleiri hundruð þúsundum króna í hálfsmánaðarflugferð til Thailands til þess eins að stoppa þar í nokkra daga. Ég ætla bara að fara til Thailands þegar ég er orðinn svona "dirty old man" og Edda löngu búin að átta sig á því hvað ég er leiðinlegur og ná sér í einn sem þorir að taka Viagra back to back í viku.
Ég ákvað því í staðinn að gera eitthvað skemmtilegt og ætla því að heimsækja bróður minn og fjölskyldu hans í Ameríku. Sú ferð kostaði fyrir okkur bæði einn þriðja af því sem hefði kostað mig að fara einn til Thailands, þannig er nú það.
Óttar bróðir býr í "fly-over-country" eða Iowa í Bandaríkjunum og stúderar þar heilmikla læknisfræði á tágrönnum Amríkönum. Við ætlum reyndar að eiga rómó Hvítasunnuhelgi á rosafínu hóteli í Minneapolis 28. maí til 1. júní en síðan förum við til Iowa og slöppum af í tvær vikur. Ég ætla að kíkja á sjúkrahúsið með gamla og síðan kaupir maður sér slatta af læknadóti, bókum, fötum og öðru drasli. Er að spá í að fara bara út með tóma risastóra tösku.

19. mar. 2004

Sælinú!
Í dag var síðasti dagurinn sem ég þarf nokkurn tíma að mæta í skólann og vinna án launa. Í dag kláraði ég átta vikna medicin-kúrsus og ég vona að ég hafi staðið mig sæmilega. Nú er bara að standa sig í lestrinum sem er framundan. Síðan hef ég fengið næstum endanlegt plan fyrir vinnuna næsta árið en það er eftirfarandi:
Byrja þann 21/6 á hjartadeildinni og verð til 31. júlí með pásu frá 10.-20. júlí en þá verð ég í hestaferð.
Í ágúst verð ég á krabbameinsdeildinni,
í september verð ég á lungnadeildinni og
í október fer ég svo á taugadeildinni.
Í nóvember verð ég síðan á slysadeildinni,
síðan taka við þrír mánuðir á heilsugæslunni í Hafnarfirði.
Í febrúar og mars verð ég á skurðdeildum en
í apríl byrja ég aftur á lyflækningadeildum og fer þá á nýrnadeildina.
Í júní verð ég síðan á smitsjúkdómadeildinni.

Afmælisbörn
Halli átti afmæli 17. mars, Árni Grímur þann 18. og Júlía Rósa Sverrisdóttir og Fríða Heiðarskona eiga svo afmæli í dag. Síðan hefur mér borist til eyrna að Tómas Helgi Harðarson hafi orðið þriggja ára þann 18. mars. Drengurinn sá er einatt kenndur við Hörð Bjarnason stórmógúl í sögu íþróttafélagsins Ástarinnar en margir eru þeirrar skoðunnar að raunverulegur faðir Tómasar sé hinn dulúðlegi Heinrich sem fáir menn hafa augum barið og en færri lifað til að segja frá því.

Tvö stórveldi riða til falls...........og falla!
MR tapaði í fyrsta skipti í ellefu ár í Gettu Betur í gær. Því miður missti ég af keppninni en eftir því sem ég heyri þá var Borgarholtsskóli bara með betra lið. Til hamingju með þetta Borghyltingar, það var kominn tími til að einhver annar ynni þessa keppni.
Nú eru líka traustabrestirnir í MUFC orðnir aðeins of háværir fyrir minn smekk og vona ég að menn taki á þessum málum á Old Trafford í sumar. Sjáum til.

15. mar. 2004

Draumalið Geislans
Ég er hrifnastur af leikkerfinu 3-5-2 (eða 5-3-2 eftir því hvernig á það er litið) og mundi stilla liðinu þannig upp.

Markvörður: Tim Howard kemur sterkur inn en ég held að ég verði að segja Gianlugi Buffon. Howard til vara.

Miðverðir: Allessandro Nesta, Sol Campbell og Walter Samuel en til vara Rio Ferdinand, Fabio Cannavaro og Lucio

Hægri kantur: Javier Zanetti eða Beckham eftir því hvort ætti að sækja eða verjast. Samt frekar Beckham þó hann sé tjelling

Vinstri kantur: Roberto Carlos en Ryan Giggs á bekknum.

Afturliggjandi miðjumaður: Keane og Makalele til vara

Framliggjandi miðjumenn: Zidane og Ballack en Scholes og Figo til vara.

Framherjar: Henry og Nistelrooy. Raul og Ronaldo til vara.
Græt mig í svefn á hverju kvöldi...
...yfir ömurlegu gengi minna manna. Það er lélegra en dollarinn þessa dagana. Ef ég man rétt hafa þeir ekki unnið nema einn leik í deildinni síðan Ferdinand var dæmdur. Altént hafa þeir ekki unnið í mánuð og viku betur því síðasti sigurleikur þeirra í deildinni var gegn Everton þann 7. febrúar. Ekki hafa þeir unnið í Evrópukeppninni en þeir unnu einn leik í bikarnum ef ég man rétt, gegn Fulham.
Eina von okkar um bikar í vetur er því hinn eftirsóknarverði FA bikar (verður furðulega fallegur þegar maður á ekki möguleika í neitt annað) en sú von beið alvarlega hnekki þegar við drógumst á móti Rassenal í undanúrslitunum. En hey, það er líklegra að við vinnum þá þar en í úrslitum þannig að það er eins gott að reyna það bara strax.

Matchstick Men...
...er ágætis mynd. Heyrði ekki mikið um hana þegar hún var í bíó þannig að ég gerði mér ekki miklar vonir. Hins vegar má færa rök fyrir því að mynd með Nicholas Cage og Sam Rockwell hljóti að vera góð, eða a.m.k. sæmileg. Eins og áður sagði varð ég ekki fyrir neinum vonbrigðum. Skemmtileg flétta og boðskapurinn í sögunni ekki svo slæmur, stundum hlýst eitthvað gott af smá mótlæti í lífinu. Fyrir svona læknisfræðinörda eins og mig fjallar myndin miklu meira um sjúkdóm aðalpersónunnar en hinn yfirbyggða söguþráð og er mjög gaman að sjá hvað Cage nær góðum tökum á kækjunum og sérviskunni sem oft fylgir fælnisjúkdómum. Endirinn kom líka mjög á óvart og iljaði manni um hjartaræturnar. Svona er ég meyr inn við beinið þrátt fyrir að ég sé svona ofurkúl töffari á yfirborðinu. He, hehehe, múhahahahaha!!!!

Trúin er skrýtin
Merkilegt. Eftir að hafa verið afspyrnu mikill slóði í bænum og öðrum trúarlegum athöfnum alla mína ævi hef ég tekið upp á því að biðja bænirnar mínar upp á síðkastið. Ég er ekki frá því að það sé gott fyrir sálina (þ.e. þá sál sem sálfræðingar og geðlæknar höndla, ekki þessa sem prestar blaðra um). Ég hef alltaf verið svolítill uppreisnarseggur hvað varðar trúmál. Ekki endilega tekið trúanlegt það sem hinir svokölluðu "guðsmenn" predika heldur finnst mér Guð miklu frekar endurspegla það góða í hverjum manni. Guð finnst mér sitja í góðum minningum um gott fólk, allt sem er gott er Guði þóknanlegt því það lætur okkur líða vel. Það er mín kenning. Guð er því ekki endilega í bæninni fyrir alla, því það finnst ekki öllum gott að biðja. Skiljiði? Ætli ég sé búinn að lesa yfir mig?

Halldór...
...er ein sterkleiðinlegasta bók sem ég hef lesið. Hannes er nú ágætur þó hann sé monthani og kverólant en þessi bók er bara ekkert sérstök. Hún er eiginlega miklu frekar upptalning á öllu því sem Halldór tók sér fyrir hendur. Hún ber þess bersýnilega merki að hún er unnin í flýti þar sem ekki hefur gefist tími til að skera niður. Stundum er minna betra. Ég ætla nú samt að berjast við að klára hana því inn á milli leynast oft skemmtileg atvik og fróðlegir molar. Það eru nú einu sinni bara rúmar 300 bls. eftir.

Að Halldóri loknum verður hafist handa við að lesa House of God sem er fræg bók um vinnugeðveiki unglæknis í USA. Þar er að finna stórkostlega frasa eins og: "no man should be allowed to die without the possible benefit of corticosteroids". Snilld

11. mar. 2004

Grátlegt
Ég verð víst að viðurkenna hér, þó ég mundi að sjálfsögðu aldrei gera það opinberlega, að Rassenal hefur borið höfuð og herðar yfir mína menn í vetur og eru komnir með eitt allra skemmtilegasta liðið í Evrópu. Þeir eru reyndar alveg ógeðslega miklir ruddar og fávitar, líka þvílíkir vælukjóar og aumingjar en það verður ekki tekið af þeim að þeir eru með frábæra leikmenn innanborðs. Henry er líklega besti leikmaður heims, Pires er frábær sem og Ljungberg. Bergkamp er náttúrlega bara snillingur, Campbell er stórkostlegur varnarmaður og fíflið hann Vieira er ágætur á miðjunni. Svo hafa leikmenn eins og Toure og Cole staðið sig mjög vel inn á milli. Reyes er líka að koma sterkur inn.
Það sem hefur hins vegar fleytt þessu liði hvað lengst er frábær andi, samheldni og liðsheild. Skipulagið er líka frábært og það sést best á því að þeir geta haft handlama fábjána í markinu og samt tapa þeir varla leik. Það er sárt að viðurkenna það en ég held að Arsenal séu bara vel að enska Englandsmeistaratitlinum komnir, a.m.k. eiga mínir menn ekki skilið svo mikið sem fimmeyring fyrir frammistöðu sína á tímabilinu - þeir minna mann bara á Val eða eitthvað!!!

9. mar. 2004

Athyglisvert!
Átta af sextán bíómyndum sem ég nefni hér að neðan gerast að stórum hluta í stríði:
WW2: La Vita e Bella, The Pianist, Schindler's List, Saving Private Ryan og The Bridge on the River Kwai.
Víetnam: Deer Hunter og Forrest Gump...
...og svo Braveheart sem fjallar um frelsishetju Skota, William Wallace.
Boltinn
Er að stelast til að horfa á mína menn í Meistaradeildinni því ég er búinn að vera svo duglegur að lesa síðustu daga. Líst ágætlega á þetta. Staðan er 1-0 fyrir mína menn, Scholes sett’ann og þeir eru m.a.s. búnir að skora annað fullkomlega löglegt mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Vonum bara að þeir klári dæmið í seinni hálfleik.

Jafnrétti til náms...
...er að rukka 30000 kall fyrir árið í Háskólanum en milljónkall fyrir meirapróf.

Ljós-Gíslinn mælir með...
...geisladisknum O með Damien Rice, uppáhaldsdiskurinn minn þessa dagana en ég fékk hann í jólagjöf frá Thoroddsen.
...Master & Commander með Russel Crowe sem ég sá um helgina, góð mynd.
...We Were Soldiers með Mel Gibson sem er ein átakanlegasta stríðsmynd sem ég hef séð.
...Pirates of the Caribbean með Johnny Depp, Orlando Bloom og Keiru Kneightley – Orlando fyrir stelpurnar og Keira fyrir strákana.

Topp tíu popp/rokkgeisladiskar í eigu Geislans í engri sérstakri röð
Brothers in Arms með Dire Straits,
O með Damien Rice,
A Rush of Blood to the Head með Coldplay,
Parachutes með Coldplay,
All that You Can’t Leave Behind með U2,
Achtung Baby með U2,
Megas með Megasi,
Document með REM,
Galore með Cure og
Sailing to Philadelphia með Mark Knopfler

Tíu bestu myndir sem Geislinn hefur séð í engri sérstakri röð
Forrest Gump með Tom Hanks, Robin Wright, Gary Sinise, Sally Field o.fl.
Deer Hunter með Robert De Niro, Christopher Walken, John Savage og Meryl Streep
Kramer vs. Kramer með Dustin Hoffman og Meryl Streep
The Shawshank Redemption með Tim Robbins og Morgan Freeman
The Pianist með Adrian Brody
Scent of a Woman með Al Pacino og Chris O’Donnell
La Vita e Bella með Roberto Benigni og Giustino Durano
One Flew Over the Cuckoo’s Nest með Jack Nicholson og Louise Fletcher
As Good as it Gets með Jack Nicholson, Helen Hunt, Greg Kinnear og Cuba Gooding jr.
The Godfather með Marlon Brando, Al Pacino, Robert Duvall, James Caan o.fl.

...og svo þessar sem komust næstum á listann...

Braveheart með Mel Gibson, Sophie Marceau o.fl.
Schindler’s List með Liam Neeson, Ralph Fiennes o.fl.
Rain Man með Tom Cruise og Dustin Hoffman
American History X með Edward Norton og Edward Furlong
Saving Private Ryan með Tom Hanks, Tom Sizemore, Matt Damon o.fl.
The Bridge on the River Kwai með Alec Guinness, William Holden og fleirum

Guð minn almáttugur!!!
Porto jafnaði í lokin og þar með er tímabilið búið hjá MUFC. Best að pakka bara niður og búa sig undir næsta vetur. Eftir stendur þó að MUFC gerði fullkomlega löglegt mark sem var dæmt af. Kannski hefði leikurinn þróast öðruvísi ef það mark hefði staðið.

4. mar. 2004

Sá þessi skemmtilegu próf hjá nýliðanum Hannesi Þór Guðbrandssyni. Ótrúlega viðeigandi að ég skuli vera hestur, finnst ykkur ekki? Er nú ekki eins viss með Lincoln.
Horse
What Is Your Animal Personality?

brought to you by Quizilla